Vísir - 11.09.1961, Side 1
VISIR
51s^ftrg*- Mán'udagur 11. septembcr 1961. — 267. tbl.
TJALDUR FRÁ FÆR-
EYJUMIÁREKSTRI.
Færeyska farþegaskipið
Tjaldur sem var á leið til
Kaupmannahafnar lenti í
árekstri í gær við flutninga-
skipið Colorado. Meiddust
menn á báðum skipunum
og bæði löskuðust.
Áreksturinn ”ar úti fyrir
Kullen. Veður var bjart og
kveðst skipstjórinn á Tjaldi
hafa séð til ferða Colorado og
séð, að nokkur hætta væri á
■^f.ll sjómenn á kúbönsku
skipi læstu aðra skips-
menn undir þiljum, til
þess að komast til hafnar
í Bandaríkjunum og fá
þar hæli. Hinir voru 23
talsins.
árekstri, nema stefnunni væri
breytt, og gaf hann fyrirskipun
um að beygja, en það dugði
ekki og löskuðust bæði skipin.
Gekk inn önnur hliðin á Tjaldi
framarlega og meiddust nokkr-
ir menn á skipinu. Það gat hald-
ið áfram ferð sinni Kaupm.-
hafnar. í síðari fregn segir, að
10 af 240 farþegum á Tjaldi
hafi skrámast, en tvær fær-
eyskar konur, er voru meðal
farþega, voru fluttar í sjúkra-
hús, en ekki munu þær lífs-
hættulega meiddar.
Flutningaskipið Colorado er
eign Sameinaða og er 5510 lest-
ir og var á leið til Suður-Ame-
ríku, við áreksturinn kom gat
á skipið og fyllti eina lestina.
Skipið sneri við og er nú í
Kaupmannahöfn til viðgerðar.
Heiðursvörður stóð á báðar hendur er forsetahjónin gengu um
borð í Eirík rauða.
Handhafar forsetavalds, Ólafur Thors forsœtisráðherra og Jónatan Hallvarðsson, forseti Hæsta-
réttar að kveðja forseta íslands á Keflavíkurflugvelli í morgun.
Forsetinn Wur af
staö til Kanada.
Laust fyrir kl. 11 í
morgun stigu forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, og forsetafrúin,
Dóra Þórballsdóttir, ásamt
fylgdarliði, um borð í flug-
vél Loftleiða, Eirík Rauða,
á Keflavikurflugvelli, og
héldu í hina opinberu heim-
sókn til Kanada. ÁIIs munu
forsetabjónin dvelja vestra
í briár vikur.
Hefur mikið verið vandað til
þess, að aðbúnaður allur verði
sem beztur á leiðinni, og tjáði
Harry Kjærnested, matsveinn
Loftleiða, fréttamanninum, að
á leiðinni væru fyrirhugaðar
tvær máltíðir, önnur skömmu
eftir að lagt verður af stað héð
an, eða um hádegisbilið.
Þá verður snæddur humar
og rækjukokkteill, en drukkið
með hvítvín og moselvín, en
síðan verður drukkið kaffi og
koníak, og snædd með terta er
Loftleiðir hafa sérstaklega lát
ið gera til fararinnar. Sýnir
hún leið vélarinnar, og er yf-
irborð tertunnar líkast landa-
\
korti, en yfir svífur líkan af
Eiríki Rauða.
Aftur verður snætt um kl.
5,30. Þá verður á matseðlinum
kjúklingar og súpa og drukkið
með rauðvín. Eftirréttur verð-
ur triflé.
Forsetinn og fylgdarlið hans
Rússar sprengdu vetnissprengju
2500 km. frá íslandi
Kjarnorkuráð Bandaríkjanna
liefur tilkynnt, að Rússar hafi
sprengt tvær kjarnorkusprengj-
ur, báðar yfir Norður-íshafs-
slóðum. Önnur var vetnis-
sprengja og hin aflmesta, sem
þeir hafa sprengt, síðan er þeir
hófu tilraunir sínar með kjarn-
orkuvopn á nýjan leik. Sprengi
magn hennar mun vera sem
svarar til milljónalesta af TNT-
sprengiefni. Sprengimagn hinn
ar mun hafa verið sem svarar
til nokkurra þúsundalcsta af
TNT. í síðari fregn var sagt, að
sprngingai-nar hefðu átt sér
stað í lofti í grennd við Novaja
Semla (Vegarlengdin milli ís-
Iands og N. S. er 2700 km.).
Hætta á geislaverkunum
Þessum nýju tilraunum
Rússa fylgir að sjálfsögðu mjög
aukin geislaverkunarhætta á
norðurhveli jarðar. Slíkra af-
leiðinga af sprengingunum yf-
ir sovézku landi í Mið-Asíu er
nú farið að gæta norðarlega.
Gtgátur hafa komið fram um,
að hér sé um keðjutilraunir að
ræða og muni alls verða sprengd
ar sprengjur um 100 milljónir
lesta.
Fréttirnar um þessar nýju
kjarnorkusprengingar komu
nærri samtímis því, er Krúsév
var að halda enn eina ræðuna,
og kom þar í ljós,- að hann held-
ur sömu baráttuaðferðum og
fyrr, að láta sem vígalegast
annað veifið, en talar svo sem
friðarins maður hitt.
Krúsév taldi, að þess sæjust
merki hjá vestrænum leiðtog-
um nú, að samkomulagsumleit
anir um Berlín myndu bera
árangur, en svo gerði hann sam-
anburð á því að hættan af
kjarnorkuárásum væri miklu
meiri í litlum þéttbyggðum
Iöndum eins og í V.-Evrópu,
Frh. a bls. 5.
sitja fremst í flugvélinni, í sér
stökum 14 manna klefa, en að
öðru leyti er flugvélin þétt-
skipuð farþegum, enda er hér
um að ræða venjulegt áætlun-
arflug. Alls eru því með vél-
inni 78 farþegar, auk áhafnar.
Er Eiríkur Rauði kemur til
Quebeck verður höfð þar stutt
viðstaða, en síðan haldið á-
fram til New York. Sigurður
Magnússon, fulltrúi Lofleiða,
fylgir forsetahjónunum í dag,
en heldur síðan um Bandaríkin
í erindum Loftleiða.
í fylgd með forsetahjónunum
herða Guðmundur í. Guðmunds
son, utanríkisráðherra, Thor
Thors, sendiherra, en hann mun
koma til móts við hjónin í Kan-
ada, Haraldur Kroyer, forseta-
ritari, Hallgrímur Fr. Hall-
grímsson, ræðismaður Kanada á
íslandi og Finnbogi Guðmunds-
son. Eiginkonur þeirra eru einn
ig með í förinni.
Er forsetahjónin stigu um
borð í Eirík Rauða í morgun,
stóð heiðursvörður, bandarísk-
ur, og íslenzku lögreglunnar
fyrir framan vélina. Ólafur
Thors, forsætisráðherra, var og
viðstaddur brottförina, og ósk-
aði hann forsetahjónunum góðr-
ar ferðar. Allmargir aðrir opin-
berir starfsmenn og gestir voru
og staddir þar, og fyrir hönd
Loftleiða var viðstaddur Krist-
ján Guðlaugsson, stjórnarfor-
maður. Fréttamaður Vísis fékk
þær upplýsingar hjá Kristni
Olsen, flugstjóra á Eiríki rauða,
að ferðin til Quebeck myndi
Framh. á bls. 5.