Vísir - 11.09.1961, Blaðsíða 3
Mánudagur 11. september 1961
Vf SIR
Norræna listsýningin
Þegar myndlistarsýningin
„Norræn list 1951—1961“
hafði verið formlega opnuð
af menntamálaráðherra,
dreifðu boðsgestir í hundr-
aðatali sér um sali Lista-
safnsins. Ingimundur Ijós-
myndari Vísis, var þar auð-
vitað innsti koppur í búri,
þaut gegnum mannhafið
eins og Siglfirðingur í síldar-
torfur og háfaði allskonar
listafólk og annað fólk í
myndavélina, áður en nokk-
ur maður gat áttað sig. Því
miður getur Myndsjáin sýnt
í dag fátt af veiði Ingimund-
ar, aðeins nokkur sýnishom.
Vart gerist þörf á að kynna
persónurnar, en til vara lát-
um við nöfn þeirra fylgja.
Þarna er Brynjólfur Jóhann-
esson leikari að segja eitt-
hvað mátulega hátíðlegt við
Þorv^ald Garðar Kristjáns-
son og frú hans, en hvort
hann er að útlista fyrir þeim
abstrakt list, skal ósagt lát-
ið. Þá sjáum við þarna önn-
ur hjónakorn, Steinunni
Briem píanóleikara og Krist-
mann Guðmundsson rithöf-
undur, og þau virðast ekki í
vandræðum með viðræðu-
efni. Lokst tókst Ingimundi
með lagni að ná mynd af
þeim þátttakanda sýnipgar-
innar, sem mesta athygli
vakti mcð myndum sínum
— Sverrir Haraldsson mál-
ari og önnur þeirra tveggja
mynda, sem seldust strax
við opnun.
V