Vísir - 11.09.1961, Blaðsíða 5
MSnudagur 11. september 1961
VlSIR
5
KR fslandsmeistarar —
Framh. af 2. síðu.
skiptið. K.R.-ingar fá tvær
homspyrnur í ráð á Skaga-
menn, en Örn sendir knöttinn
of nærri markinu og Hegi gríp-
ur örugglega inn í. Þá á Sveinn
Teitsson fast skot á mark upp
úr frísparki, en Heimir ver vel.
Um þetta leyti er stórsókn K.R.-
inga komin í algleyming og
markið liggur í loftinu. Þórólf-
ur á fallegt gegnumbrot, en
Helgi eygir hættuna og hleypur
fram ó móti og ver skot Þórólfs
án þess að hafa þó hendur á
knettinum, sem hrekkur í síðu
Akurnesinga og þaðan í áttina
að marki þeirra. Þar var bak-
vörður á réttum stað og kemur
í veg fyrir að knötturinn rúlli
inn í mannlaust markið.
Nú var tekið að rigna svo-
lítið og sumir töluðu um sann-
kallað Lundúnaveður. Ingvari
leiddist aðgerðarleysið frammi
og var kominn í vörnina og
hreinsaði duglega frá. Enn
sækja K.R.-ingar. Þórólfur fær
lanan bolta upp vinstri kant,
leikur á varnarmann og sendir
stöðu út við endamörk og sendir
knöttinn þvert fyrir markið.
Gunnar Feixsori ætlar að vera
fljótir til og skalla, en nær ekki,
lendir í þess stað inni í mark-
neti. Knötturinn berst óáreitt-
I
ur út á kant til Arnar, sem send-
ir hann á ný inn á miðjuna,
þar sem Þórólfur var þá kom-
inn, meðtók knöttinn á brjóst-
kassann, lagði fyrir fætur sér
af sinni alkunnu snilli og sendi
síðan viðstöðulaust í markið af
stuttu færi. Þá voru iðnar 24
mínútur af leik og K.R.-ingum
stórlétti. — Upphlaup Akur-
nsingar eru hvergi nærri eins
hættuleg, en á 35. mín. á Þórður
Jónsson langskot framhjá. Á
38. mínútu fá K.R.-ingar auka-
spyrnu nærri miðju vallarins.
Upp úr henni á Gunnar Felix-
son skot sem naumlega er varið
og berst knötturinn til Ellerts
inni í vítateignum en þar var
nokkur þvaga. Ellert var snar
i aðgerðum og sendi knöttinn
í netið af stuttu færi.
Fleiri mörk voru ekki skoruð
í hálfleiknum, þó oft skylli
hurð nærri hælum við mark
Akurnesinga.
Síðari hálfleikurinn var ekki
eins hratt leikinn og sá fyrri og
yfirburðir K.R.-inga ekki jafn
miklir, þó ótvíræðir væru.
Skagamenn ná nú góðum sókn-
arlotum fyrstu 10 mínúturnar,
en það vantar allan þunga og
ákveðni í aðgerðirnar, svo strit-
ið ber ekki árangur. Þórður
Jónsson komst tvisvar fallega
í gegn á vinstri væng, en skaut
í bæði skiptin framhjá. Á 12.
mínútu leikur Þórólfur á Gunn-
ar Gunnarsson miðframvörð
Akurnesinga. Helgi kemur
hlaupandi á’ móti og Þórólfur
>endir knöttinn örugglega
'ramhjá í markið og innsiglaði
par með 3—0. Hægri bakvörð-
urinn var nærri að bjarga, en
varð sekúndunni of seinn á vett-
vang. Gunnar Guðmundsson
og Garðar eiga fallegan sam-
leik, sem endar með því, að
Garðar fylgir eftir alla leið inn
í vítateiginn og skýtur hörku-
skoti á markið, sem Helgi ver
af snilld. Á 27. mín. leikur
Þórður Jónsson inn að marki
og Heimir kemur á móti, steyp-
ir sér fyrir fætur Þórði og hef-
ur knöttinn. 'Strax á eftir á
Ellert gott skot, sem Helgi
sendir í horn og á 32. mínútu
dynur hörkuskot Gunnars Fel-
ixsonar í þverslá á Akranes-
marksins. Minútu siðar er Ell-
ert á ferðinni og le'ikur óhindr-
að inn að vítateig, sendir knött-
inn í eyðu, sem Þórólfur hleyp-
ur í, nær knettinum og skorar
af stuttu færi fjórða og síðasta
mark leiksins, framhjá úthlaup-
andi Helga markverði. Stuttu
seinna er Skúla Hákonarsyni
innherja Akranesliðsins vikið
af leikvangi eftir einhverns-
konar viðureign við Bjarna
Felixson, og í síðustu fjörkipp-
um leiksins reynir Þórður Jóns-
son langskot, sem hafnar í ör-
uggum greipum Heimis mark-
varðar.
I
Heildaráhrif leiksins finnst
mér vera þessi:
K.R. hefir alflrei áður í
úrslitaleik milli þessara að-
ilja sýnt aðra eins yfirburði
á öllum sviðum og í gær.
Það hefði ekkert verið hægt
að segja þó sigur þeirra hefði
orðið enn meiri. Aldrei í
sumar hefj ég séð K.R.-Iiðið
jafnsterka liðsheild og í
þessum leik. Samvinnan og
samleikurinn var upp á það
allra bezta sem liðið hefir
sýnt. Hér að framan hefir
ekkert verið minnst á vörn-
ina. Hún á sannarlega skil-
ið sitt hrós ásamt markverð-
inum Gunnari Guðmannsson
átti og prýðisgóðan leik á
kantinum og gaf aldrei
skakkt frá sér bolta.
Menn bjuggust við meiru
af Skagamönnum, einkum
framlínunni. Vörnin var
sterkari hluti liðsins, þrátt
fyrir mörkin 4. Helgi Dan
átti ágætan leik og verður
ekki sakaður úm mörkin.
Gunnar miðframvörður og
Helgi Hanncsson sömuleiðis
ágætir í sínum stöðum. —
Framverðirnir og innherj-
arnir týndust •löngum stund-
um, annaðshvort báðir í einu
eða til skiptis. Einu bitvopn
framlínunnar, Ingvar og
Þórður nutu ekki þeirrar að-
stoðar er með þurfti til að
skora mörk og ekki má
gleyma Halldóri Sigur-
björnssyni, sem sama og
ekkert hafði að gera allan
seinni hálfleikinn.
Að leikslokum voru sigur-
vegurunum afhent sigurlaun
sín, Islandsbikarinn, sem nú
var afhentur í síðásta sinn.
H.
Forsetinn —
Framh. af 1. síðu.
taka um 8 tíma, skemmsti flug-
tími gæti orðið 7 tímar og 45
mínútur, en lengsti um 8V2
tími.
Kristinn Olsen hefir áður
flogið með forsetann í utanferð-
um hans, enda er hann elzti og
reyridasti flugmaður Loftleiða,
og hefir verið um 14.000 stund-
ir í lofti. Auk hans eru í áhöfn-
inni þeir Skúli Axelsson, að-
stoðarflugstjóri, Ólafur Jónsson,
siglingafræðingur og Baldur
Bjarnason, vélamaður.
Þrjár flugfreyjur eru með í
förinni, að vanda, og eru það
þær Erna Hjaltalín, yfirflug-
freyja, Ásdís Alexandersdóttir
og Stefanía Guðmundsdóttir.
Verk þeirra er fyrst og fremst
að annast alla þjónustu við for-
setahjónin og fylgdarlið þeirra,
meðan á ferðinni stendur.
Fækkar umsókn-
um um lóðir.
Umsóknir um lóðir til bæj-
arverkfræðings eru nú að
jafnaði færri en hefur verið
undanfarin ár, sagði Guðmund-
ur Vignir, skrifstofustjóri hjá
bæjarverkfræðing í morgun.
Annars er ekki mikið upp
úr því að leggja, hve margar
umsóknir liggja fyrir, því
að oft er það að meirihluti
þeirra gengur úr, þegar komið
er að úthlutun. Þá er venjulega
auglýst að nú þurfi að endur-
nýjua umsóknir, eða að umsækj
endum er sent bréf, þar sem
þeim er sagt að endurnýja. Nú
munu liggja fyrir um 200 um-
sóknir um þátttöku í byggingu
tvíbýlahúsa, en líklegast er að
þeim fækkar að mun, þegar
komið er að framkvæmdum.
Síðustu lóðaúthlutanir voru
í Kringlumýr i norðan Miklu-
brautar, við Safamýri og Álfta-
mýri, en næst mun verða út-
hlutað austan Sjómannaskól-
Ólafur Magnússon frá Akureyri kom í morgun inn tfl
Seyðisfjarðar með um 400 tunnur afla af síld. Á laugardaginn
hafði hann landað 1150 tunnum. Er Ólafur nú kominn með
afla sem er að verðmæti til á fjórðu milljón. Að því er Hörður
Björnsson skipstjóri sagði fréttaritara Vísis í morgun er afla-
hlutur hásetanna orðinn um 150.000 krónur. Báturinn var um
90 mílur út af Dalatanga er hann fékk þessa síld, en lmn er
misstór. Hann mun enn fara eina veiðiför á þessi mið. Myndin
er tekin af Ólafi Magnússyni í Akureyrarhöfn.
Rússar —
Framh. ai X. síðu.
en miklu meiri en í hinum víð-
lendu Sovétríkjunum. Mun
þessu hafa verið beint sérstak-
lega að Natolöndxun fleirum
en Bretlandi, sem hann nefndi.
Nehru sagði við heimkomuna
frá Moskvu, að hann væri þeirr
ar( trúar, að
Krúsév myndi fást til þess
að hætta við kjarnorku-
vopnatilraunirnar, ef skil-
yrði væru ákjósanleg að lians
áliti.
Hans Heilagleiki Jóhannes páfi
flutti friðarmessu í gær í. Pét-
urskirkjunni og þar næst talaði
hann í útvarp og sjónvarp og
beindi því til heimsleiðtoga, að
varðveita friðinn. Ef Iagt yrði
út í styrjöld myndi allt glatast
öllum, sagði páfi, en ekkert
myndi glatazt ef varðveittur
væri friðurinn.
Kornakur —
Framh. af 7. síðu.
sæti í stjórn félagsins Pétur
Pétursson, Skúli Thorarensen
og Þórður G. Hjörleifsson.
Annars er það sérkerinandi fyr
ir þennan hóp að þrír hluthaf-
anna eru gamlir skipstjórar, er
lifað hafa mestan hluta ævi
sinnar á sjónum_ en sá fjórði
er útgerðarmaður. Er ánægju-
legt að vita til þess að þeir
skuli ekki einskorða sig við auð
hafsins, heldur einnig moldar-
innar og að þeir skuli hafa
framtak í sér til að breyta ó-
frjóum eyðisandi í akurlendi.
Það var Skúli Thorarensen,
hinn merki og síkviki bænda-
öldungur og útgerðarmaður, er
átti frumkvæðið að þessari fél-
agsstofnun. Og svo er stórhug-
urinn hjá þeim áttmenningun-
um mikill, að þeir hafa hugsað
sér að stækka akurinn um
helming að: ári ef uppskera
þessa árs gengur að óskum.
Með slíku áframhaldi má
vænta þess að allir Rangársand
ar verði að grónu landi innan
fárra ára.
Hluthafarnir í Hafrafelli
telja, að markaðsmöguleikar
fyrir korn séu nær því ótak-
markaðir hjá okkur eins og sjá
megi af því að heildarkorn-
framleiðslan á öllu landinu í
ár nemi vart meir en 5% af
ársnotkun okkar. Alls mun
korni hafa verið sáð í um 400
hektara lands á öllu landinu í
sumar og að langmestu leyti í
Rangárvallasýslu Auk þesa er
nokkur kornrækt í Múlasýslu,
og lítilsháttar í Árnessýslu og
Gullbringu. og Kjósarsýslu.
Þess skal getið að innflutt
fóðurkorn nýtur styrks, sem
1
nemur 16—17\% af verði þess
og vænta kornræktarbændur
hér heima þess fastlega að þeir
fái notið sömu aðstöðu, enda
væri annað í fyllsta máta ó-
sanngjarnt, ekki sízt með til-
liti til þess, að innflutta kornið
er yfirleitt margra ára gamalt
og hefur misst 20—30% af fóð
urgildi sínu.
Kornræktarráðsmaður hefur
verið ráðinn Magnús Pétursson
(Magnússonar bankastjóra og
alþm.). Hann hefur búsetu að
Helluvaði og þar hefur félagið
fengið hina ákjósanlegustu bæki
stöð og aðstöðu fyrir starfsemi
sína. Magnús hefur sjálfur
dvalið langdvölum í Danmörku
og unnið þar að kornrækt. Auk
þess segist hann hafa notið á-
gætra leiðbeininga bæði Klem-
enzar kornræktarmanns Kristj-
ánssonar á Sámsstöðum og Páls
Sveinssonar í Gunnarsholti,
sem hann kvaðst vera þakklát-
ur fyrir. Magnús tjáði Vísi að
kornræktarmenn væru sam-
mála um það að sandur væri
einkar hentugur jarðvegur fyr-
ir kornrækt, þar sem hann
leiddi vel hita.
Hafrafell h.f. hefur komið sér
upp góðum vélakosti, aðallega
enskum og sænskum sem Glob-
us h.f. í Reykjavík hefur flutt
inn. Má þar fyrst og fremst
nefna fullkomna kornsláttar-
þreskjara, sem skapað hafa
byltingu í kornrækt um allan
heim, en eru þó miklu hentugri
hér á landi en annars staðar
vegna óhagstæðs tíðarfars. Enn
fremur hefur félagið aflað sér
kornþurrkara, sáningarvélar,
áburðardreifara og annarra véla
til rekstursins.
Kornsláttur hófst á akrinum
rétt fyrir síðustu helgi.