Vísir - 11.09.1961, Síða 7
Mánudagur 11. september 1961
VISIB
7
Frá kornakrinum.
Einn stærsti kdrn-
akur Evrúpu.
Athyglisverf framtak nokkurra
bjartsýnna Bslendinga.
ÞAÐ mun mörgum koma
spánskt fyrir sjónir að stærsti
samfelldi kornakur á Norður-
löndum og jafnvel í allri
Evrópu, ef Rússland er undan-
skilið, , skuli vera austur í
Rangárvallasýslu.
Þetta er þeim mun undar-
legra sem fæstir vita að korn-
rækt er stunduð hér á landi
öðru vísi en þá í tilraunaskyni
og flestir sem eru þeirrar skoð
unar að korn fái ekki þrifist á
íslandi.
En svona er þetta nú samt
að því er forystumenn hluta-
félagsins Hafrafell tjáðu Visi
fyrir helgina. Hafrafell er ný-
stofnað hlutafélag, sem hefur
það að merkmiði að rækta korn
og hefur fengið í því skyni
land á mörkum þriggja jarða á
Rangárvöllum, Geldingalækj-
ar, Helluvaðs og Ketilhúshaga.
Þetta er að mestu eða öllu eyði-
sandur, sem ekki var til neinna
nytja og á sl. vori var sáð þar
byggi og höfrum í 110.—115
hektara lands, ‘ en það telja
hluthafarnir vera einn stærstó
samfelda akurinn í Evrópu að
Rússlandi einu undanskildu.
Það voru átta menn sem
stofnuðu hlutafélagið og er
Arni Gestsson stórkaupmaður,
formaður þess og annar fram-
kvæmdastjórinn, en hinn fram
kvæmdastjórinn er Ásgeir
Bjarnason. Aúk þeirra eiga
Framh á bls 5.
Tjarnarbíó
sýnir nú
Skemmtikraft-
urinn (The
Tntertainer).
Myndin fjall-
ar um Archie
Rice, sam-
vizkulausan
og ómerkilegan dansai'a og
söngvara, sem séð hefir sitt
fegursta. Hann syngur ættjarð-
arsöngva, klámvísur og segir
vafasama brandara, sem fæstir
eru fyndnir. Hann dansar tap-
dans, hendir svívirðigum í all-
ar áttir og stingur stafnum sín-
um upp í trómbonið og hristir
hann þar. Eftir sýningu sína er
hann kynnir á fegurðarsam-
keppni og fær mikinn áhuga
fyrir stúlkunni. sem fær önnur
verðlaun. Þegar hann svo
kemst að því, að fjölskylda
liennar á peninga blossar áhug-
inn enn meira upp og hann
giftist henni. Hann þarf á pen-
ingum að halda til að koma
nýjum leikflokki af stað, en
enginn treystir honum lengur.
Hann lætur sig það engu skipta
þó að hann sé tvisvar sinnum
eldri en hún og að hann hefir
verið giftur Phoebe (Brenda de
Banzie) í tuttugu ár. Þannig er
hans sóðalega lífi lýst, þangað
til loks að hann er að lenda í
Kalli frændi
steininum. Þá segir hann: „Eg
er viss um að eg hitti einhvern
sem eg þekki“, sem enginn ef-
ast um. Sé einhver sá maður til,
sem ekki gerir sér grein fyrir
hvað afburðaleikur er, getur
hann farið í Tjarnarbíó og séð
eitthvert bezta dæmi, sem völ
er á. Leikur Sir Laurence Oli-
ver er betri en svo, að eg treysti
mér til að gera honum nokkur
fullnægjandi skil. Leikritið var
skrifað af J ohn Osborne, er
samdi Horfðu reiður um öxl.
Hann semur einnig kvikmynda-
handritið. Tilraunir hans til á-
deilu á velferðarríkið eru ekki
sérlega áhrifamiklar, en þó að
efni iyndarinnar sé ekki sér-
lega léttilegt er hún töfrandi
skemmtileg.
Ó. S.
'Fréttaaukinn
í laugardags-
kvöldið var
frá opnun nor
-ænu listsýn-
ngarinnar.
Norðmaður-
inn sem tal-
aði fyrir hönd
frændþjóða okkar, var himin-
hrifinn af íslenzkri náttúru, sá
þar slíkar andstæður, að þær
minntu hann á hvort tveggja:
víti og himnaríki Ólafs Ástu-
sonar úr hinu dulfagra norska
Draumkvæði. Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra flutti
vel samda ræðu. Hann kvaðst
hafa komizt að raun um, að
hið nána samband fulltrúa
Norðurlanda á alþjóðlegum
þingum vekti undrun manna
frá öðrum þjóðum, einkum
þeirra, sem vissu, að Norður-
landabúar væru keppinautar
um markaði og hefðu ekki
sömu afstöðu í utanríkismál-
um. Kvað Gylfi það vera hinn
forna menningararf, sem sam
einaði Norðurlandabúa, en þar
koma fyrst og fremst til greina
íslenzkar fornbókmenntir. —
Menntamálaráðherra vék síð-
an. að gildi lista til menning-
ar- og manngildisauka og lét í
ljós þá von sína, að þessi sýn-
ing mætti verða til að efla
blómgun norrænnar menning-
ar. Er vonandi, að sú verði
raunin, þótt mjög beri þar á
viðfangsefnum, litum og form
um, sem ekki virðast frekar í
tengslum við náttúru, þjóðlíf
og menningarerfðir Norður-
landa en til dæmis Frakklands,
Bandaríkjanna, Spánar eða
Mexíkó.
Brynjólfur Jóhannesson leik
ari las söguna Blautu engjarn-
ar í Brokey, eftir Jón Dan, og
hygg ég, að lestur hans hafi
verið órækt vitni þess, hvað
unnið er við túlkun góðs leik-
ara á stíl og persónulýsingum
höfundar, sem ekki ar allur
þar, sem hann er í skyndi séð-
ur.
Laugardagsleikritið var
Harmoníkan, eftir Óskar heit-
inn Kjartansson. Óskar dó
kornungur, en lét eftir sig
nokkur leikrit, sem bera glöggt
vitni æsku hans og takmark-
aðrar kunnáttu, en hins vegar
sýna Ijóslega, að af honurni hafi
mátt einhvers vænta á vett-
vangi leikritagerðar. Harmoník
an ér gallagripur, en vitnar þó
um fjör og gamansemi hins
unga höfundar, og í leikstjórn
Helga Skúlasonar og náttúr-
legri túlkun leikendanna mun
leikurinn hafa vakið mörgum
hollan hlátur. Og Harmoníkan
sómir sér stórum betur í flokki'
leikrita, en mikill þorri dans-
lagatextanna islenzku í félags-
skap íslenzkra Ijóða.
Margur mun liafa skemmt
Sér vel við þátt Guðmundar
Jónssonar söngvara Úr einu í
annað, en sá þáttur var dag-
skráratriði kl. 8 í gærkvöldi.
Rödd og tækni hinna frægu
erlendu einsöngvara var
hafin yfir sönglistar-
þekkingu mína og mikils
þorra hlustenda, en svo kum
þingmannaþátturinn, þ.e. lög
— ýmist eftir fyrrverandi eða
núverandi þingmenn og ráð-
herra — eða tengd þeirra list-
iðkun á annan hátt. Mun marg
ur hafa haft gaman af hinni
nýstárlegu kynningu á annars
flestum ókunnum kostum þess
ara þjóðskörunga — utan vett-
vangs þjóðmálalegra umsvifa
og ábyrgðar.
Loks ber að geta þáttarins
um Brasilíu. Hann hafði Bene-
dikt Gröndal tekið saman, en
þulir voru ásamt honum And-
rés Björnsson og Guðni Guð-
mundsson. Slíkir þættir mættu
verða fleiri, og þá undirbúnir
með það miklum fyrirvara, að
unnt væri að gera þá enn fjöl-
breyttari en þennan, meðal
annars með tónlist frá því
landi sem kynnt er Undarlegt
virtist mér það, að hvorki var
nefnt Ævintýrið frá íslandi til
Brasilíu, eftir Þorstein Þ. Þor-
steinsson — né Brasilíufarar
Jóhanns Magnúsar Bjarnason-
ar, og væru þær bækur raunar
efrti í sérstakan útvarpsþátt.
Árni Vaag talaði um skógar-
þresti, og var þáttur hans fróð-
legur, vel saminn og vel flutt-
ur.
Guðm. Gíslason Hagalín.
I
Veðrið í ágiíst.
Meðalhitinn var 10.4 stig,
eða aðeins fyrir neðan meðal-
lag, sem í þessum mánuði er
10.6 stig.
Úrkoma reyndist 51 mm, en
er í meðalárferði 71 mm. Mest
rigndi 12 mm 16.—17. ágúst og
22.—23. ágúst.
Sólskin var í 143 klst., en í
meðalárferði í þessum mánuði
154 klst.
Copyrighl P. I. B. Box 6 Copeobogei