Vísir - 11.09.1961, Page 10
1P
VISIR
Mánudagur 11. september 1961
*
.Undraglerin'
Viðtal dagsins —
Framh. af 4. síðu.
— E.t.v. hef ég haft mest
gaman af því að leika í
„Sumri í Týrol“ enda þótt
það hafi líka verið langerf-
iðasta hlutverkið, hafði aldr-
ei sungið hlutverk áður og
röddin var mjög erfið fyrir
mig. Eiginlega tók ég þarna
að mér hlutverk, sem var
ætlað öðrum. En ég fékk
ágætustu dóma. Það hefur
svo ýmislegt broslegt komið
fyrir, eins og þegar ég hopp-
aði upp á borð á sviðinu,
sökk með rassinn niður úr
borðplötunni og sat þar fast-
ur. Alveg ætlaði fólkið að
rifna af hlátri. Líka hafði ég
gaman af hlutverkunum i
„Kysstu mig, Kata“ og
„Kirsuberjagarðinum". En\
það er sýo margs að minn-
ast, hlutverkin eru þegar
orðin 47.
— Hverjir eru eftirlætis-
leikarar þínir?
— Mér finnst William
Holden einna beztur alhliða
leikari, en ef ég á að nefna
gamanleikara eingöngu, þá
verða það helzt Fernandel
og Danny Kaye.
— Finnst þér mest gam-
an að gamanhlutverkum?
— Ég veit ekki, hvað
segja skal. Ég held bara
ekki. A.m.k. finnst mér nóg
komið af svo góðu í bili.
Maður hlýtur að staðna í
þessu sama til lengdar. Ég
varð ósköp feginn að fá al-
varlega hlutverkið í „Horfðu
reiður um öxl“, vildi gjarna
fá fleiri af svipuðu tagi. En
það var svo margt í hlut-
verkinu í „Sumri í Týrol“,
slegið á marga strengi.
— Þú, sem ert eitt af fá-
um átrúnaðargoðum barn-
anna, hvernig þykir þér að
leika fyrir börn?
— Það er ánægjulegt, en
ekki eins auðvelt og marg-
ur hyggur. Það er enginn
leikur að „plata“ þau, og
vonlaust að bera tóma vit-
leysu á borð fyrir þau. Það
verður að vera meining á
bak við það, sem maður seg-
ir við börn, því að þau eru
nokkuð strangir gagnrýn-
endur. Þau eru góðir áhorf-
endur, svo miklu meira op-
in en eldri áhorfendur. En
það er hins vegar mjög erf-
itt.að leika með börnum, þau
lokast, þegar þau koma upp
á sviðið og er mjög erfitt
að fá þau til að vera eðli-
leg. Það er dásamlegt, hvað
þau lifa sig inn i leikinn ut-
an úr sal. Þau gleyma sér
gersamlega og það kemur
fyrir, að þau geta ekki stillt
sig um að blanda sér í leik-
inn. T.d eru mér í minni
viðbrögðin, þegar ég lék
Litla Kláus og átti að kasta
mér i lækinn. Nokkrum
börnum úti í sal þótti meir
en nóg um þá meðferð og
ætluðu að ryðjast upp á
sviðið til að bjarga mér!
50 vestur-þýzkir hermenn
komu til Bretlands í s.l. viku
og 350 fleiri væntanlegir,
allir til skriðdrekaþjálfunar
í Wales.
Bandaríska flugkonan Jac-
qucline Cochran gerði ný-
lega kröfu til hraðamets í
flugi fyrir konur. Kveðst
hún hafa náð nærri 1500
km. hraða.
Þlng S.U.S. —
Frh. af 16. s.
vinnulöggjöfinni. Tveir af
ráðherrum Sjálfstæðis-
flokksins, þeir Bjarni Bene-
diktsson dómsmálaráð-
herra og Gunnar Thorodd-
sen fjármálaráðherra komu
á þingið og ávarpaði Bjarni
þingheim.
SUS-þingi var slitið að
Grund í Eyjafirði um kl. 6 í
gærkvöldi með ávarpi for-
manns Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna. Var komið við að
Grund í kynnisför um Eyja-
fjörð, og þar flutti Jónas G.
Rafnar, alþingismaður, ávarp
til þingfulltrúa. Á laugardags-
kvöld var kvöldvaka haldin á
Hótel KEA.
Þingið hófst á föstudags-
kvöld með setningarræðu for-
mannsins Þórs Vilhjálmssonar.
Flutti hann skýrslu stjórnar
SUS, um störfin á sl. 2 árum,
sem liðin eru frá síðasta sam-
bandsþingi. Voru þau mikil og
fjölþætt. Nefndir störfuðu á
laugardag og sunnudag, og
fóru jafnframt fram umræður
um álit þeirra. Gerði þingið
allmargar ályktanir, sem birt-
ar verða hér í blaðinu síðar.
Fjölluðu þær m.a. um breyt-
ingar á vinnulöggjöfinni, efna-
Frh. af 9. s.
samtök voru stofnuð upp úr
fyrri heimsstyrjöldinni, eða
1920 og var aðalmarkmið
þeirra að hjálpa þeim, sem
hjálpar eru þurfi, og þá
helzt þeim, sem voru óvinir
okkar á styrjaldarárunum.
Hugsjónin er fyrst og fremst
sú að hjálpa, og jafnframt
að sýna fram á, að styrjald-
ir séu „ónauðsynlegar" og
að hægt sé að leiða deilyeíni
til lykta með friðsemd og
hjálpfýsi. Síðan hefur þessi
hreýfing breiðst út, og nú er
svo komið að við förum
hvert sem er í heiminum,
þar sem hjálpar er óskað við
íramkvæmdir, — þar sem
við álítum, að við vinnum
menningu og atvinnulifi
gagn með okkar tveim hönd-
um ...“ »
— Þetta er kauplaust
sjálfboðaliðastarf. er það
ekki?
„Jú, við vinnum alveg
kauplaust, nema að við fá-
um mat og gistingu á hverj-
um stað. Ferðir kostum við
sjálfir fram og til baka.“
— Hvaðan er þetta fólk,
sem hér hefur verið í sum-
ar?
„Það er af ýmsum þjóð-
ernum og af ýmsum stétt-
um. Hér hafa verið Englend-
Ingar. Þjóðverjar Svisslend-
ingar, Kanadamaður og
Norðmaður. Ég sjálfur er
skrifstofumaður, svo eru
hér kennarar, stúdentar, lög-
hagsmál og markaðsmál, utan-
ríkis- og öryggismál.
Þingið sendi Ólafi Thors for
sætisráðherra kveðju sína með
þessum orðum:
Samþykkt var almenn stjórn
málaályktun, þar sem því var
m. a. lýst yfir að þingað telji þá
stefnu horfa til mestra þjóðar-
heilla sem reist er á séreigna-
skipulaginu og- frelsi einstak-
linga til orða og athafna.
Þór Vilhjálmsson.
Þá segiy í stjórnmálaáykt-
uninni að ungir Sjáfstæðismenn
fagni því frumkvæði sem nú-
verandi ríkisstjórn hefur átt
að því að koma ísenzku efna-
hagslífi á traustan grundvöll,
enda sé aldrei hvikað frá því
meginstefnumiði að atvinnu-
vegirnir geti gengið styrkja-
fræðingur, ai'kitekt, vél-
stjóri, hjúkrunarkona, út-
varpsvirki o.fl.“
1 —Hér vinnur þessi flokk-
ur að sjálfsögðu undir ein-
hverri stjórn fólksins á
staðnum, er það ekki?
„Jú. Sveinbjörn Helgason
byggingarmeistari hefur seð
um flestar byggingar á staðn
um undanfarið, og hefur
haft yfirstjórn á allri slíkri
vinnu. Sveinbjörn er ungur
maður og mjög duglegur.
Samvinna við hann hefur
verið með ágætum, og við
færum honum öll beztu
þakkir. Að sjálfsögðu er það
svo Sesselja, sem ræður
hvað gera skuli. — og ser
okkur fyrir viðurværi. Þú
kemst vonandi að því á eft-
ir, þegar þú þiggur hjá
henni góðgerðir, hvort við
þurfum yfir nokkru að
kvarta . ..“
Það var orð að sönnu.
Innan skamms var ég sezt-
ur að borði hlöðnu kræs-
ingum, enda var matnum
ger? góð og tæmandi skil.
Ég dró það eins lengi og
hægt var að fara þaðan aft-
ur úr góðum félagsskap og
viðurgerningi, enda sýndist
mér að svo væri um fleiri.
Víst er að gestirnir fara það-
an með þeim fasta ásetningi
að koma einhvern tíma aft-
ur, og víst er að aftur verð-
ur tekið vel á móti þeim að
Sólheimum.
G. K.
laust og sé ekki íþyngt með
meiri sköttum og hærri kaup-
greiðslum en þeim er bæri á
hverjum tíma.
Á lokafundi þingsins var
j kjörin stjórn SUS til næstu
j tveggja ára og lagði Matthías
j A. Mathiesen, alþm., fram til-
1 lögu uppstillinganefndar. Voru
þær samþykktar óbreyttar og
( eiga sæti auk Þórs Vilhjálms-
I sonar formanns: Árni Grétar
! Finnsson, Hafnarfirði; Jóhann
Ragnarsson. Reykjavík; Sigfús
Johnsen, Vestmannaeyjum;
Jónatan Einarsson, Bolunga-
vík; Ma’gnús Þórðarson, Rvík;
Birgir ísleifur Gunnarsson,
Rvík. í varastjórn eiga sæti:
Þórir Einarsson, Rvík; Ólafur
Hallgrímsson, Droplaugarstöð-
um, N-Múl., Ólafur Egilsson,
Rvik; Svavar Magnússon, Ól-
afsfirði og Hörður Einarsson,
Reykjavik. — Fréttaritari.
Sýja jiyrlan
hrapaili.
S.l. miðvikudag var farið í
reynsluflug frá Farnborough
Englandi í Westland Belvedere
þyrlu, sem er nýjasta brezk
gerð af þyrlum, búin tveimur
þyrlum.
Var þetta jafnframt æfinga-
flug undir flugsýninguna í
Farnborough í næstu viku.
Þegar þyrlan var í um 9 m
hæð hrapaði hún til jarðar og
meiddust tveir menn af 25 svo
að fara varð með þá í sjúkra-
hús, en hinir sluppu með
„taugatitring" — Verið var
að æfa árás á flugturn, er þetta
gerðist, og átti að vera mikið
atriði á sýningunni, sem fram-
undan er. Flugvélin laskaðist.
BílverB hækkar.
Það er ekki laust við að það
sé að færast meira líf í bilasöl-
una þessa dagana, sagði cinn
bílasalinn við fréttamann Vísis
í morgun. — Það er eins og
menn hafi meiri peninga undir
höndum, sérstaklega núna eftir
að menn fóru að koma af síld.
Útborganir eru yfirleitt
meiri á betri bílunum, eins og
t. d. Volkswagen, sem er greini-
lega eftirsóttastur. Síðan eru
hinar ýmsu gerðir af enska
Fordinum, Taunus, Consul
Zephyr og Zodiac. Þar næst
koma nýrri gerðirnar af amer-
ískum 6 manna bílum, enda
mun lítið sem ekkert hafa ver-
ið flutt inn af þeim í ein tvö ár.
Taunus-bíllinn, af árgerð
’55 selst núna á 80—85 þúsund
krónur, miðað við það að helm-
inur sé greiddur út í hönd. Bíl-
ar án útborgunar, — eins og
algengt hefir verið að fá und-
anfarin ár ■— fást nú yfirleitt
ekki, nema þeir sé eldri en ’50.
Sennilegt er að hátt á annað
þúsund bílar séu til sölu á
hinum ýmsu bílasölum. *