Vísir - 11.09.1961, Blaðsíða 16
VÍSIR
Mánudagur 11. september
Yerða raf
virkjar
reknir?
Ársþing Brezka verkalýðs-
samandsins kemur saman í dag
í Portsmouth.
Er margra ætlan, að fyrsti
fundurinn verði einn binn
sögulegasti frá stofnuri sam-
bandsins, þar sem þegar í dag
muni verða tekin ákvörðun um
hvort Félag rafiðnaðarmanna
skuli rækt gert úr sambandinu.
Það er framkvæmdastjórn sam
bandsins, sem ber fram tillögu
í þessu efni, en um hana tók
hún ákvörðun eftir að formað-
ur félagsins hafði neitað að
láta nýjar kosningar fara fram
í félaginu, þótt úrskurðað hefði
verið í rétti, að seinustu kosn-
ingaúrslit í félaginu hcfði verið
fölsuð. Einnig hafði formaður-
inn neitað að taka til greina
kröfuna um að víkja úr for-
mannssætinu.
íslandsmeistarar K.R. 1961, talið frá vinstri, efri röð: Sigurður Halldórsson, form. knattspyrnud. K.R., Óli B. Jónsson,
þjálfari, Óskar Sigurðsson, Heimir Guðjónsson, Gísli Þorkelsson, Garðar Árnason. Ellert Scliram, Hörður Felixson. — Neðri
röð frá vinstri: Gunnar Felixson, Örn Steinsen, Reynir Schmidt, Hreiðar Ársælsson, Helgi Jónsson, fyrirliði, Gunnar Guð-
mannsson, Þórólfur Beclc, Bjarni Felixson, Leifur Gíslason.
KR íslandsmeistarar 1961.
í gærdag fór fram á íþrótta-
Ieikvanginum í Laugardal úr
slitaleikur íslandsmótsins í
fyrstu deild, milil K.R. og
Akranes.
K.R. sigraði leikinn með
yfirburðum 4—0 og urðu
þar með íslandsmeistarar
1961.
Keppt var um íslandsbik-
Þingfulltrúar á tröppunum fyrir utan Akureyrarkirkju.
Þingi S.U.S. lauk í gærkvöldi:
ísland sæki um upptöku í
markaðsbandalagið
Þór Vilhjálmsson endurkosinn
formaður.
Sextánda þing Sam-
bands ungra SjálfstæSis-
manna lauk hér í bænum í
gær. Um 130 fulltrúar
víðsvegar að af landi sóttu
iþingið að þessu sinni. —
Þór Vilhjálmsson lögfræð-
ingur, var endurkjörinn
formaður SUS. — Þingið
gerði m.a. samþykkt þess
efnis að Islandi beri að
sækja um upptöku í Efna-
hagsbandalag Evrópu,
skuli síðar metið hvort
æskilegt sé að óska fullrar
aðildar eða takmarkaðrar
að bandalagi þessu. Auk
margra annara ályktanna,
lagði þingið til að róttækar
breytingar yrðu gerðar á
Framh, á bls. 10.
arinn í 50. og síðasta skipti
en fyrst var keppt um hann
1912. Þá vann K.R. einnig.
Leikurinn var hinn skemmti-
legasti en ekki að sama skapi
eins spennandi. Til þess voru
yfirburðir K.R. of miklir.
Þeir léku skínandi knatt-
spyrnu, sérstaklega í fyrri
hálfleik svo Akranes, þrátt
fyrir harða og drengilega
baráttu, gat aldrei ógnað
sigri þeirra.
K.R. skoraði tvívegis í
hvorum hálfleik. Þórólfur
Beck 3 mörk og Ellert
Schram eitt.
Veður var hið bczta, og
Hættir sem
ræðismaður.
LÖGBIRTINGABLAÐIÐ
skýrði nýlega frá því, að Krist-
ján Einarsson forstjóri hefði
lagt niður störf, sem ræðismað-
ur Kúbu á íslandi. Kristján
hefur haft þetta embætti síðan
árið 1953.
fjölmenni mikið horfði á
leikinn. Mun metaðsókn
hafa verið á leik milli
tveggja innlendra liða, 8—9
þúsund manns. Eftir leikinn
afhenti Björgvin Schram
sigurlaunin og bað viðstadda
að hrópa ferfallt húrra fyrir
íslenzkri knattspyrnu.
Nánar um leikinn á íþróttá
síðunni.
Bjarnadóttir.
hélt aðra skemmtun sína s.l. ■
laugardagskvöld í Austur- j
bæjarbíói. Húsið var þétt- )
skipað og fögnuðu áheyr- [
endur eftirhermum og söng J
Hallbjargar. — Framkoma )
hennar á sviði einkennist af j
öryggi þess sem víða hefir J
.,komið, séð og sigrað“. — )
Næsta skemmtun Hallbjarg- •
ar verður á miðvikudags- »
kvöld. 1
Ól barnið í
sjiíkrabíinum.
Síðdegis á laugardaginn, er
brunaverðir voru önnum kafn-
ir vegna brunans í Háskólabíói,
var beðið um sjúkrabíl vegna
sængurkonu, sem býr í úthverfi
bæjarins.
Ekki var hægt að senda
sjúkrabílinn um hæl vegna
brunans. Dróst nokkra stund
að fá menn leysta frá störfum
við bíóið, svo senda mætti þá
í sjúkraflutninginn. Á leiðinni
í fæðingardeildina ól konan
barnið í sjúkrabílnum,
Ekki er þetta neitt einsdæmi,
sögðu þeir á slökkvistöðinni,
og það eru ekki svo sem hálf-
ur mánuður síðan kona fæddi í
einum sjúkrabílanna hér á
Snorrabrautinni.
Austan og NA
gola, úrkomu
laust, Iéttskýj
að með köfl.