Vísir - 29.09.1961, Page 2

Vísir - 29.09.1961, Page 2
1 LU -jfw..' Föstudagur 29. september 196 VfSIR Fullskipað í góöaksturs- keppnina. Góðaksturkeppnin hefst kl. 2 e.h. á laugardaginn eins og gert hafði verið ráð fyrir. Keppendur verða 30, en það er hæsta tala þátttakenda, sem unnt er að senda til keppn- innar. Starfsmenn keppninnar verða þó mun fleiri, eða rúmlega 90 talsins. Aksturinn fer fram innan- bæjar að verulegu leyti og sér- stök áherzla lögð á réttan inn- anbæjarakstur. Leiknisprufur verða margar í akstrinumj þ. á. m. margar nýjar. Ráðherrafundur Efnahags- bandalags Evrópu hefur formlega boðið Bretlandi og Danmörku upp á viðræður Ijm aðild, en tilmælum írska lýðveldisins um slík- ar viðræður vísað til nefnd- ar. A. Innanfélagsmót það í köstum, sem frestað var í gær, verður haldið í dag kl. 5.30 á Mclavcllinum. Nokkrir Fóstbræðra koma úr Rússlandsför. Myndin er tckin á Reykjavíkurflugvelli. — Vorum kaffærðir í blðmum í Riga. Flestir söngvarar úr söng- för Fóstbræðra til Rússlands komu heim í fyrrakv., með tveimur flugvélum Flugfé- lags fslands frá Kaupmanna- höfn. Fréttamaður Vísis hitti Sigurð E. Haraldsson, einn úr fararstjórninni, á flugvellin- um, og sagði hann að söng- förin hefði tekizt framúr- skarandi vel og lofaði hann góðar móttökur hjá Rússum. Við fluttum 6 konserta í söng- förinni, einn í Helsingfors, einn í Moskvu, tvo í Riga í Lettlandi og tvo í Leningrad. Hvar fannst ykkur þið fá beztar móttökur? — í Helsingfors, og svo í Riga. Á seinni staðnum vorum við kaffærðir í blómum á báð- um konsertunum og fólkið heimtaði, að við syngjum auka. lög, þangað til við vorum búnir að syngja allt, sem við kunn- um. — Hvernig fannst ykkur Rússum líka við söngskrána? — Þeir þekktu ekki lögin, sem við sungum, en líkaði bezt við íslenzku lögin, sem eru í þjóðlagastíl, svo sem Gimbillinn mælti, í útsetningu Ragnars Björnssonar og Tvö nútímalög eftir Jón Nordal. Jjr -iij, .4 a=TT=ri ^ i—j n r ‘T T//////A ■l W//////Æ IEl '///////Æ ■ E BRIDGEÞÁTI!] It vlsis ** Ritstjóri Stefán Guðjohnsen. Bikarkeppni Bridgesambands íslands er í þann mund að hefj- ast, og þar eð keppni þessi var að ýmsu leyti mislukkuð í fyrra langar mig til þess að skrifa um það örfá orð. Keppni þessi, sem er að nokkru leyti ætluð til að spilamenn úr hinum ýmsu landshlutum kynnist, virðist vera töluvert misskilin af ut- anbæjarmönnum, ef dæma má eftir þátttöku þeirra þau tvö ár, sem hún hefir verið haldin. Annað er það, að til þess að halda þessa keppni, verður hún að vera mjög fjölmenn. Byggist það á því, að sveitum, sem ferð- .ast milli landshluta til keppni er greiddur ferðastyrkur og ekki er fjárhagslegur grund- völlur fyrir þeim styrk, ef þátt- taka í keppninni er treg. í fyrra varð eg var við það, að þær utanbæjarsveitir, sem með voru, höfðu mikinn áhuga og voru spenntar fyrir því, áð spila við Reykjavikursveitirn- ar enda ekki óeðlilegt, þar eð reynslan hefir sýnt, að sterk- ustu bridgemennirnir eru úr höfuðstaðnum. Þess vegna vildi eg eindreg- ið skora á bridgemenn úti á landi að taka þátt í keppnnni, því að hún er haldin ykkar vegna. Þátttökugjöldum er mjög stillt í hóf í keppninni og ætti sú hlið málsins því ekki að vera til fyrirstöðu. Bikarkeppni enska bridgesam bandsins er nýlokið og í fyrsta skipti í 30 ára sögu keppninnar eru tvær konur í vinningssveit- inni. Það eru Mrs. R. Markus og Mrs. F.' Gordon. Ef til vill er það engin tilviljun að þær eru báðar í elzta landsliðinu í kvennaflokki, sem nú etur af kappi í Torquay. Hin sveitin í úrslitunum hafði á að skipa m. a. þeim Reese og Sahpiro, Konstam og Rodrigue. Eftirfarandi spil er úr úi'- slitaleiknum. Aliir á hættu og suður gaf. A 6-4-3 V D-10-7 ♦ D-8 4» Á-8-7-5-2 A K V 6-4-3 ♦ 10-5-3 4. K-D-G-10-9-3 A Á-G-8-5 V K-G-9-5 ♦ 7-6-2 * 6-4 Suður: 1 spaði 2 tíglar 4 spaðar A D-10-9-7-2 V Á-8-2 ♦ Á-K-G-9-4 4» Ekkert Sagnir (lokaða salnum): Vestur: Norður: pass 2 lauf pass 2 spaðar pass pass Austur: pass pass pass Vestur spilaði út laufakóng, drepinn í borði og hjarta kastað heima. Þá kom lágspaði, nían frá suðri og kóngurinn átti slag- inn. Á þessu stigi málsins sést, að skipta verður í hjarta til þess að hnekkja samningnum. En vestur hélt áfram með lauf, sagnhafi trompaði, fór inn á tígul og spilaði trompi Austur lét lágt og sagnhafi fékk slag- inn á tíuna. Síðan voru tíglarn- ir teknir í botn og austri spilað inn á tromp. Hann varð síðan að spila frá hjartakóngnum og þar með var spilið unnið. í opna salnum var meira um að vera. Þar gengu sagnir eft- irfarandi: Suður: Vestur 1 spaði 2 lauf 2 tíglar . pass 4 spaðar pass' pass pass pass Norður: Austir dobl pass 2 spaðar i pass pass dobl redobl pass Hér hitti vestur á að spil út hjarta og eftir óheppileg spilamennsku varð sagnhafi tv niður. Berlín — Framh. af 1. síjju. Karls Karstens aðstoðarutan- ríkisráðherra og Dowlings, og sendiráð Bandaríkjanna stað- festi fréttina. Heinrich von Brentano, utan ríkisráðherra V-Þýzkalands sagði á fundi með þingmönn- um úr Kristilega lýðræðis- flokknum, að bandamenn stæðu sameinaðir í Berlínar- og Þýzkalandsmálinu. Læknakröfur — Framh. af 1. síðu. samlaganna, um hina nýju kröfur. Aðrir í þessari nefnd eru Björn Sigurðsson, læknir í Keflavík, Páll Gíslason, læknir á Akranesi, Guðmundur Karl Pétursson, læknir á Akureyri og Ólafur Ólafsson, læknir á Akureyri. Jón Jóhannsson, læknir, skýrði Vísi svo frá, að fram til þessa hefðu læknar í kaupstöð- um landsins unnið fyrir allt að 15% lægri greiðslu, en tíðkazt hefur hér í Reykjavík. Þeii læknar, sem hér um ræðir, munu vera alls um 25 talsins. Hafa þeir nú sett fram sams konar kröfur, og Læknafélag Reykjavíkur hefur sett fram og þar sem S.R. hefur ekki séð sér fært að ganga til samninga, eru allar líkur á því, að samn- ingar muni heldur ekki takast milli þessarra tveggja ofan- greindu aðila, en það þýðir, að læknar í öllum kaupstöðum landsins, og í Reykjavík, munu taka greiðslu ^amkvæmt hinni nýju gjaldskrá, frá og með 1. okt. að telja, og að sjúkrasam- lögin hætta þá að taka þátt í almennum lækniskostnaði og sérf ræðingaþj ónustu. Jón skýrði blaðinu enn frem- ur frá því, að um 80% þessara kaupstaðalækna (ekki héraðs- lækna) hafi bréflega tjáð sig samþykka hinum nýju kröfum. Þeir telja, eins og læknar í Reykjavík, að sú breyting á starfsháttum lækna og þjón- ustu, sem nauðsynlegt er að gera, til að koma læknaþjónustu í viðunandi horf, sé ekki fram- kvæmanleg, nema sú hækkun komi til framkvæmda, sem hér um ræðir. Eins og áður segir, hafa lækn- ar í kaupstöðum, unnið fyrir allt að 15% lægri greiðslu en Reykjavíkurlæknar. Þetta telja þeir óviðunandi, að sama greiðsla komi ekki fyrir sömu störf, eins og í öðrum atvinnu- greinum. Auk þess hefur frekar borið á skorti á læknum í kaupstöðum en hitt, og munu kaupstaða- læknar ekki sætta sig við annað en fullkomið launajafnrétti, þar eð annað er ekki vænlegt til þess að bæta úr því ástandi. „Svo getur því farið — og raunar sennilegt, að samnings- laust verði einnig við lækna í kaupstöðum landsins frá 1. okt. tð telja,“ sagði Jón Jóhannsson,

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.