Vísir - 29.09.1961, Síða 5
Föstudagur 29. september 1961
VÍSIB
5
Byltingin í Syrlandi stórt
áfall fyrir Nasser.
í fyrrinótt gerðu Sýr-
lendingar uppreisn gegn
Egyptum, en þessi tvö
lönd hafa verið í ríkjasam-
bandi síðan 1958.
Svo er nú að sjá, sem
allt Sýrland sé á valdi bylt-
ingarmanna og hefur Nass-
er forseti hins sameinaða
Arabalýðveldis beðið stór-
kostlegan álitshnekki við
þetta, sérstaklega bar sem
það voru Sýrlendingar sem
ákveðnast óskuðu þess
1958, að löndin sameinuð-
ust þá.
Barizt í Ladiakia
Útvarpið í Damaskus, höfuð-
borg Sýrlands, sem er á valdi
uppreisnarmarma skýrði frá
því í morgun, að þá um nóttina
hefði 200 manna fallhlífarlið
frá Egyptalandi varpað sér nið-
ur yfir borgina Ladiakia á
strönd Sýrlands. Gripu fallhlíf-
arhermennirnir strax til vopna
en sýrlenzki herinn snerist gegn
þeim og vann bug á þeim í harð-
vítugri orustu.
Hefur útvarp byltingarmanna
harmað að þessi atburður skyldi
koma fyrir. Segir það að þeir
hafi vonað, að byltingin gæti
orðið án þess að blóði yrði út-
hellt, en Nasser hefði kosið að
senda egypzkt herlið fram til
bardaga og bæri hann ábyrgð
á því blóði sem hefði verið út-
hellt.
Allt landið á valdi
byltingarmanna.
IMytt verð á
landbúnaðar-
afurðum.
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins hefur nú gengið endanlega
frá verðlagi allra landbúnaðar-
afurða, nema verði á nauta-
kjöti og hrossakjöti. Söluskatt-
ur er innifalinn í smásöluverð-
inu. Niðurgreiðslur verða
óbreyttar.
Samkvæmt verðskrá fram-
leiðsluráðsins hækkar smásölu-
verð á .1. fl. súpukjöts úr 22.00
í 27.50, á heilum lærum dika-
kjöts úr 25.30 í 32.00. Mjólk
í lausu máli hækkar úr 3.20 í
3.90, hjólk í heilflöskum hækk-
ar úr 3.40 í 4.15 og mjólk 1
hyrnum mun kosta 4.55 liter-
inn. Skyr hækkar úr 10.20 í
11.60 og gæðasmjör úr 55.75 í
60.00 pr. kg. Úrvalskartöflur
hækka úr 2.58 í 3.55 pr. kg.
Ekki var búið að færa út
hækkanir á nautakjöti og
hrossakjöti, en meðaltalshækk-
anir á þessum vöruflokkum
verða væntanlega um 13%.
Ef ekki er tekið tillit til nið-
Flugmenn fá
verulegar kaup-
hækkanir.
SAMKOMULAG hefur náðst
milli fulltrúa íslenzku flugfél
aganna og flugmanna þeirra
um kaup og kjör.
Ekki var í morgun liægt að
fá upplýsingar um einstök at-
riði samninga þar sem félags-
fundir eiga eftir að samþykkja
niðurstöður samningaviðræðna.
Búizt er við því að félagsfund-
ir verði í dag.
Það er þó kunnugt að flug-
menn hafa fengið allverulegar
kauphækkanir auk þess sem
fríðindi þeirra verða aukin.
urgreiðslna er hækkunin mest
á súpukjöti eða 25%. Ef tekið
er tillit til þess að súpukjötið
er greitt niður verður hækkun-
in 17—18%. Slátur hækkar
einna minnst, eða um 5%, það
er ekki greitt niður. Smjörið,
sem er greitt niður hækkar um
20% og mjólkin um 9%.
Svo virtist í gær, sem herlið-
ið í borginni í Aleppe í norður
Sýrlandi ætlaði að reynast
Nasser traust, en í morgun
höfðu byltingarmenn náð út-
varpsstöð Aleppe á sitt vald og
tilkynntu þar að allar fjórar
herdeildir borgarinnar, þeirra á
meðal ein vélaherdeild hefðu
gengið í lið með byltingunni.
IManns saknað
Frá fréttaritara Vísis.
Vestmannaeyjum í morgun
í Vestmannaeyjum Iiefur leit
verið gerð að rosknum manni,
Vilhjálmí Guðmundssyni á Sæ-
bergi, en hann er á sjötugs-
aldri.
Vilhjálmur fór að heiman
frá sér í fyrradag og sást síð-
ast til ferða hans þá um há-
degisleytið, er hann gekk upp
svokallaðan Heiðarveg. Vil-
hjálmur átti tvo kálgarða í Of-
anleitishrauni og var helzt
gizkað á að hann hafi ætlað sér-
að huga að þeim.
Þegar Vilhjálmur kom ekki
heim til sín í fyrrakvöld var
tekið að óttast um hann og í
gær var gerð út fjölmenn og
ýtarleg leit, þar sem bæði leit-
arflokkur skáta auk annarra
leituðu. Var liði skipt um alla
eyna en megináherzla lögð á
leit í Ofanleitishrauni, einkum
í kringum kálgarðana. Enn-
fremur var froskmaður fenginn
til að leita í höfninni og stóð
leit hans yfir, hálfa aðra
klukkustund.
Leitin bar ekki árangur og
geta menn ekki látið sér detta
neitt í hug hvað um Vilhjálm
hafi orðið, nema það helzt að
hann hafi fengið aðsvif ein-
hversstaðar á afviknum stað.
í dag verður ekki nein skipu-
leg leit gerð að honum.
Vilhjálmur var útgerðarmað
ur áður, en hefir nú síðast ver
ið starfsmaður í Hraðfrystistöð
inni í Eyjum. Hann átti heima
að Urðarveg 9 var 65 ára gam-
ali og lætur eftir sig eiginkonu,
en börn þeirra tvö eru upp-
komin.
Hinn almenni kirkjufúndur verður Páll V. G. Kolka læknir
verður haldinn í Reykjavík í en um veiting presfsembætta
haust dagana 22.—24. október þeir Hákon Guðmundsson
næstkomandi. hæstaréttarritari og Ásmundur
Rætt verður um framtíð Skál- Guðmundsson biskup. Dr. Árni
holts og veiting prestsembætta. læknir Árnason Jlytur erindi er
Framsögumaður um Skálholt hann neínir: Kirkjan og ríkið.
Þessi hörundsdökki snaggaralegi maður heitir Muke og ber titil-
inn hershöfingi. Hann er hinn formlegi yfirmaður Katanga-hers,
sem Tsjombe forseti styðst við. Við hlið sér hefur hann þó
hóp hvítra liðsforingja sem ráða mestu um hernaðaraðgerðir.
Mynd þessi var tekin í Elisabethville/nýlega, eftir að vopnahlé
hafði komizt á.
Var Vínland á
Nýfundnalandi?
í sumar hefur norslci heim-
skautafarinn Helge Ingstad
verið í könnunarferð um strend
ur Labrador og Nýfundnalands
í leit að fornnorrænum leifum,
frá þeim dögum, er Leifur
heppni og Þorfinnur Karlsefni
voru þar á ferð. Þóttist Ingstad
frá upphafi viss um að finna
leifar einhverrar bygginga á
þessum slóðum, þar sem ljóst
er af gömlum íslendingasögum,
að íslendingarnir höfðu þar oft
vetursetu.
Nú hefur Helge Ingstad sent
skeyti um það, að hann hafi
fundið fyrstu norrænu rústimar
á Nýfundnalandi. Sé þetta rétt
hjá honum, þá er hér um stór
merkilegan fund að ræða. Fann
hann rústir þessar skammt frá
Lance Meadows á Nýfundna-
landi.
Ingstad segir, að rannsófenir
hans sanni að húsin sem hér
er um að ræða séu frá byrjun
11. aldar, eða einmitt frá tímum
hinna íslenzku landkannana.
Telur hann að Vínland sem get-
ið er um í íslendingasögum sé
hið sama og norðanvert Ný-
fundnaland.
Fiskleysi - hátt fiskverð
SKRIFSTOFA Félags ísl. botn
vörpuskipaeigenda skýrði blað
inu frá því í morgun, að miðað
við magn, væi'i ísfisksalan hjá
Ingólfi Arnarsyni í Hull í gær-
morgun sú hæsta sem um get-
ur hjá íslenzkum togara þar í
landi. Fengust kr. 11,85 fyrir
hvert kíló, en aflinn var 119
tonn og heildarsala 11.733
pund. í Bretlandi er nú mikill
skortur á fiski, sem stafar af
aflaleysi togaranna, hvort held
ur er brezkra eða annarra
þjóða, og stormasöm tíð hefur
einnig áhrif. í dag selur Geir
í Grimsby og á morgun verða
þar og í Hull Apríl og Ágúst.
BERKLAVARNADAGURINN
er á morgun. Að vanda verða
seldi merki um land allt, Þau
verða öll tölusett og verður
dregið um 15 vinninga.