Vísir - 29.09.1961, Blaðsíða 16
VISIR
Verkamenn í vélaiðnaðinum,
3 milljónir talsins, hóta verk
föllum — scgjast ekki vilja
sætta sig við kaupfrystingu
þá, sem fjármálaráðherra
Selwyn Lloyd boðaði.
Djarflegt innbrot í
Á.V.R. — litlu stolii.
1 morgun, þegar starfs-
menn í áfengissölunni við
Snorrabraut komu til
vinnu sinnar, kom í ljós, að
þar hafði verið framið
djarflegt innbrot í nótt, en
ekki miklu magni af áfengi
stolið, þó þjófurinn kæm-
ist alla leið inn í sjálfan
áfengislager útsölunnar,
þar sem áfengi fyrir
hundruð þúsunda stendur
í hillum.
Þjófurinn hefur ráðizt með
einhverju handverkfæri að
timburhlera sem er fyrir
glugga skrifstofu útsölunnar.
Eftir að hafa komizt í gegnum
hann, og inn í skrifstofuher-
bergið, hefur þjófurinn reynt
að sprengja upp öfluga hurð
sem liggur að áfengisgeymsl-
unni. En í þeim aðgangi öllum
hefur skráin verið eyðilögð.
En þá hefur það gerzt, að
þjófurinn hefur ráðizt á sjálft
skilrúmið milli skrifstofuher-
bergis og víngeymslunnar, með
þeim árangri, að hann hefur
brotið sig í gegnum vegginn. Á
honum eru margar hillur sem
áfengi stendur í, svo ekki hef-
ur manninum tekist að brjóta
mjög stórt gat, en þó nægilega
stórt til þess að geta skriðið
í gegnum það, og rutt í burtu
nokkru af vodkaflöskum. Hann
hefur síðan valsað um í áfeng-
isgeýmslunni, farið fram í búð-
ina, einnig brotizt inn í verzl.
Kjöt og Grænmeti. Þar var
líklega engu stolið.
í áfengisgeymslunni aftur á
móti hefur þjófurinn stolið 16
flöskum af forláta Skota, sem
hver flaska kostar 400 krónur.
Leiðin í gegnum skrifstofu-
gluggann er sú eina, sem kom-
izt verður eftir inn í útsöluna
og höfðu rannsóknarlögreglu-
menn bent Jóni Kjartanssyni,
forstjóra á, að einfalt mál væri
að tryggja þennan glugga með
því að setja þar upp þjófa-
bjöllu.
Islendingar
töpuðu fyrir
Egyptum.
Á Evrópumeistaramótinu í
bridge, fóru leikar svo, að Is-
lendingar töpuðu fyrir Egypt-
um 108:75. Aftur á móti hefur
þeim tekizt að ná góðu forskoti
á móti Dönum í hálfleik 8. um-
ferðar, ísland 60 Danmörk 42.
Kópavogur
Dagblaðið Vísi vantar
karl eða konu til að annast
útbreiðslu Vísis í Kópavogi.
Upplýsingar * síma 11660.
Seudisveinar
Dagblaðið Vísi vantar
scndisvcina. Uppl. í síma
11660.
Kaffistofa í Svína-
hrauni brennd í nótt
Snemma í morgun brann
Litla veitingastofan til kaldra
kola og varð engu bjargað.
Litla veitingastofan er timb-
urskúr, sem stendur í Svína-
hrauni þar sem Þrengslavegur-
inn og gamli Svínahraunsveg-
•urinn að Kolviðarhóli mætast.
í þessum skúr hafa verið seldar
veitingar, öl, tóbak og sælgæti.
Bílstjóri sem var á leið austur
yfir Hellisheiði um sexleytið í
morgun sá reyk leggja upp frá
(húsinu, flýtti hann sér þá í
: Skíðaskálann í Hveradölum og
símaði þaðan til lögreglunnar í
Reykjavík og skýrði frá atburð-
EH*
Lögreglan tilkynnti slökkvi-
liðinu þetta. Brá það við þeg-
ar í stað, en þegar það kom
að skúrnum var hann alelda og
ekki viðlit að bjarga neinu,
hvorki húsi né því sem í því
var geymt Brann húsið til
kaldra kola.
Litla kaffistofan var lokuð
og búið var að setja hlera fyrir
glugga hennar. Er fullvíst að
hér hafa skemmdarverkamenn
verið að verki, sem borið hafa
eld að húsinu. Eigandi þess er
kona að nafni Ólína Sigvalda-
dóttir, Ásvallagötu 55 hér í
bæ.
Hin nýja fangageymsla lögreglunnar við Síðumúla lætur lítið yfir sér, en hún er 360 m.-
„Kjallarinn lagöur nlður
í næsta
Blaðamenn frá Vísi
skutust í gærdag inn í hið
nýja fangahús, sem lög-
reglan er að láta reisa inn
við Síðumúla. Ljóst fannst
þeim af hinni stuttu heim-
sókn, að þegar það verður
tekið í notkun, muni verða
mikil straumhvörf í gæzlu-
varðhaldsmálum.
r ■
manuoir
Margt iðnaðarmanna er að
störfum í lögreglustöðinni.
Málarar voru í varðstpfunni,
járniðnaðarmenn voru í klef-
unum að setja upp hin vegg-
föstu járnrúm, og smiðir voru
önnum kafnir. Strákarnir
höfðu orð á iþví, að blaðamenn
irnir myndu geta gengið að því
sem nærri vísu, að þeir myndu
eiga gistingu vísa í lcrk október
því svo langt sé verkið komið.
Átján eins manns fangaklef-
ar verða í húsinu og er þar
bjart inni. Loftræsting verður
góð, en húsið allt hitað upp
með blásara. Þá verður sér-
stakur 4ra manna klefi, sem er
ætlaður konum. Þar verða böð
og allur aðbúnaður fanganna
til fyrirmyndar. Þegar þessi
varðhaldsstöð lögreglunnar,
sem á að vera til þess að setja
inn drukkna menn, verður tek
in í notkun, mun Kjallarinn í
lögreglustöðinni við Pósthús-
stræti verða lagður niður, sagði
Ólafur Jónsson, fulltrúi lög-
reglustjóra Vísi í morgun.
Læknabiðstofur og lyfjabuðir
troðfullar út úr dyrum.
Fólk hamstrar læknaþjóimstoi.
Þeir sem leið áttu framhjá
Iyfjabúðum bæjarins í gær og
í morgun, veittu því athygli, að
blindös var þar inni, og engu
líkara en apótckin hefðu aug-
lýst útsölu, og fátt var nú ótrú-
legra. En þegar betur var að
gáð, var orsökin önnur Hún var
sem sé sú, að nú hækkar öll
læknisþjónusta um máhaðamót-
in.
Þegar Vísir átti tal við yfir-J
lyfjafræðinga í nokkrum lyfja-!
búðum í morgun, sagði einn
þeirra, að þetta væri víst í
fyrsta sinn í sögunni, sem fólk
hamstraði læknaþjónustu en
ekki vörur.
Hvers konar fólk fyllti lyfja-
búðirnar í gær? Fyrst og fremst
þeir sjúklinga, sem ganga með
„króniska“ sjúkdóma, svo sem
hjarta- og meltingarsjúkdóma
o. s. frv. Læknastofur voru
flestar yfirfullar í gær og í
morgun. Þeir, sem ganga til
Slys í Leirársveit.
Um klukkan 10.30 í gær-
morgun varð harkalegur árekst
ur á þjóðveginum í Leirár-
sveit >' Borgarfirði. Tveir bílar
rákust ?. á mikilli ferð oy einn
farþegi < hvorum þeirra slas-
iðist.
Þegar áreksturinn varð, var
vörubifreið á leið norður veg-
inn á milli Lækjar og Beiti-
staða, en á eftir honum kom
fólksbifreiðin R-2966 og ætl-
aði framúr vörubifreiðinni. En
í sama bili kom fólksbifreiðin
R-11062 á móti og skullu bíl-
arnir saman með þeim afleið-
ingum að báðir skemmdust
stórlega, en tvennt slasaðist.
Kona, Ragna Einarsdóttir að
nafni, sem var farþegi í R-
11062, skarst allmikið og var
lögð inn i sjúkrahúsið á Akra-
nesi, en Árni Pálssoní yfirverk
fræðingur hjá Vegagerð ríkis-
ins var í R-2966 og skarst í
andliti. Gert var að meiðslum
hans á Akranesi, en að því
búnu mun Árni hafa haldið
aftur til Reykjavíkur.
Bílstjórarnir í báðum bif-
reiðunum sluppu við meiðsli.
Lögreglan á Akranesi tók
málið til meðferðar.
lækna að staðaldri, báðu lækn-
ana um lyfseðla fyrir stærra
magni af lyfjum en venja er.
Yfirlyfjafræðingur í einu apó-
teki sagði, að það hefði verið
áberandi fleira fólk, sem kom-
ið hefði í gær en gengur og
gerist, og þó miklu meira magn
af lyfjum, sem lyfseðlarnir
hefðu hljóðað upp á. Maður
einn kom inn í eina lyfjabúð-
ina í morgun og var í öngum
sínum. Hann þurfti nauðsyn-
lega á lyfi að halda hið bráð-
asta. Hann hafði farið á' stofu
síns læknis, en þar voru svo
margir fyrir, að honum leist
ekki á að bíða, sneri síðan frá
og fór á aðra læknastofu. En
þar tók ekki betra við. Hann
komst hreinlega ekki inn. Þess
vegna kom hann í apótekið og
bað þá þar fyrir alla muni að
afgreiða sig með lyfið án lyf-
seðils. Qg ösin var svo mikil
hjá okkur, sagði lyfjafræðing-
urinn, að það minnti helzt á
bolludag í bakaríi.
-jJc Komizt hefir upp ráðabrugg
til að steypa stjórn Liberiu
og koma þar á kommúnista-
stjórn. Forsprakkinn hefur
verið handtekinn. Hann
hafði samstarf við sendiráð
sovétstjórnarinnar í höfuð-
borg Liberiu.