Tölvumál - 01.03.1986, Side 8
stærðfræðimðdel, sem lýsir einingum. Hægt er að
skilgreina nokkrar aðgerðir á innsetningar. Þær eru:
- samsetning eininga
- hliðsetning eininga
- takmörkun eininga
- ítrun
Þá má sanna ýmsar reiknireglur er varða þessar
aðgerðir. Innsetning eininga er sambland af sam-
setningu og takmörkun. Með því að líta á forrit sem
tré má ganga enn lengra £ útleiðingar á módelinu.
Kostir einingaforritunar lýsa sér I endurnýtanlegum
forritshlutum, minni tvíverknaði, skýrari skilum
milli eininga og upplýsingafal inn I einingar.
Kostir þess, að búa til stærðfræðilíkan fyrir
einingaforritun, sem kalla má formlegan grundvöll
eru, betri skilningur, skýrari lýsingar og möguleikar
á sönnun ýmissa setninga og hugmynda.
Fundinn sóttu um 40 manns og urðu allmiklar umræður
að fyrirlestri loknum. -bj.
HANNARR HANNAR HUGBÖNAÐ
Ráðgjafaþjónustan Hannarr, Síðumúla 1 greinir frá þv£
I nýútkomnu fréttabréfi að fyrirtækið hafi ákveðið að
bjðða upp á framleiðslustýrikerfi og verkbðkhald.
Tölvukerfin eru byggð upp á einingum þannig að kaupa
má og nota einstakar einingar. Nú eru tilbúin kerfi
fyrir:
- VERÐSKRÁR
- VERÐLAGNINGU
- TILBOÐS/KOSTNAÐARÁÆTLANIR
Hugbúnaðurinn er seldur með viðhaldssamningi fyrir
þá, sem þess óska. Þeir fá einnig allar úrbætur án
aukakostnaðar. Einnig býður Hannarr þeim viðskipta-
mönnum, sem ekki eiga tölvu, upp á að nýta sér
þjönustuna hjá fyrirtækinu. -si.
8