Tölvumál - 01.03.1986, Qupperneq 9
DECUS
Notendur Digital tölva hafa með sér félagsskap,
sem nefnist Digital Equipment Computers Users
Scoiety, skammstafað DECUS.
DECUS var stofnað 1961 og verður því aldarfjðrðungs-
gamalt á þessu ári. Meðlimir DECUS eru fleiri en 90
þúsund einstaklingar. Samtökin skiptast í þrjú
svæðasamtök. Bandaríkin, Evrðpa og aðrir heimshlutar
mynda þessi þrjú svæði. Evröpusamtökin nefnast DECUS
Europe. 1 DECUS Europe eru ellefu deildir, sem
nefnast chapters á ensku. Hver deild annast
starfsemi á ákveðnu landsvæði. Oftast eru svæðin
þjððlönd. 1 DECUS Europe eru liðlega 25 þúsund
félagar.
íslenska félagið nefnist DECUS Island. Það tilheyrir
deild með danska félaginu. DECUS Danmark/Island er
samtals með um 600 félaga. Þar af eru um 160
Islendingar. Félagar, sem eiga sömu hagsmuna að gæta
eða hafa svipuð áhugamál 1 tölvumálum eiga aðild að
svonefndum séráhugahópum. Þeir nefnast Special
Interest Group, skammstafað SIG. Innan DECUS Island
eru starfandi tveir þannig hðpar. VAX-SIG er hðpur
notenda VAX tölva. Þær eru öflugustu tölvur frá
Digital, sem hér eru 1 notkun. PC-SIG er hðpur
áhugamanna um einmenningstölvur.
DECUS klúbbarnir hafa mjög einbeitt sér að dreifingu
hugbúnaðar til félagsmanna. Forritasafn DECUS er
mikið að vöxtum með um 2000 forrit og "hugbúnaðar-
pakka". Meðal forrita má nefna þýðara (compilers),
ritstjðra (editors), tölfræðiforrit, samskiptaforrit,
mörg hagnýt forrit og jafnvel tölvuleiki. Félagar I
DECUS Island hafa aðgang að öllum forritum gegn mjög
vægu gjaldi.
Árlega eru haldnar ráðstefnur eða þing svonefnd DECUS
symposium. Á hverju hausti heldur DECUS Europe mikla
ráðstefnu. Einstakar deildir (chapters) halda árlega
þing, oftast á vorin. Á ráðstefnum gefst meðlimum
tækifæri til að bera saman bækur slnar. Stjðrnendur
og sérfræðingar frá Digital Equipment eru einnig
mættir á staðinn og svara fyrirspurnum. Oftast er
spurt um stefnu fyrirtækisins, tækin sjálf og lausn
9