Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 4

Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 4
FRÁ FORMANNI í þessu tölublaði TÖLVUMÁLA birtist dagskrá Skýrslutæknifélagsins fyrir vetur komandi. Við mótun vetrardagskrárinnar hefur stefna félagsins komið nokkuð til umræðu i stjórninni eins og oft áður. Eins og oft er vitnað til þá lifum við á timum tölvubyltingarinnar. Svo virðist sem engu timabili mannkynssögunnar sé hægt að likja saman við þetta timabil hvað snertir breytingar i viðtækasta skilningi þess orðs. Það fyrirbæri sem við nefnum tölvu snertir nú orðið allar mannlegar athafnir á einn eða annan hátt. Stefnumótun fyrir félag eins og Skýrslutæknifélagið hlýtur að vera sifellt i endurskoðun með tilliti til þess, sem áður er sagt. Dagskrá komandi vetrar einkennir einkum þrennt. í fyrsta lagi er nú leitað i mun rikari mæli en áður eftir samstarfi við aðra aðila i þjóðfélaginu i sambandi við ráðstefnur og fundahöld. Á þann hátt náum við til fleiri aðila en félaga Skýrslutækni- félagsins til að kynna upplýsingatæknina og skiptast á skoðunum hvað varðar áhrif hennar. Við sem störfum við upplýsingatækni hljótum að vera tæknisinnuð. Ef við hins vegar gleymum að athuga áhrif þessarar tækni á einstaklinginn og þjóðfélagið allt er hætt við að við lokumst inni og ekki náist fram allur sá árangur sem tölvur og upplýsingatækni eiga að geta gefið. í öðru lagi er nú ætlunin að stofna deildir eða "klúbba" innan félagsins þar sem myndast geta hópar sem hafa áhuga á ákveðnum tæknilegum sviðum. Þær raddir hafa heyrst að félagið sé ekki nægilega tæknilega sinnað hin seinni ár. Eftir þvi sem upplýsingatæknin hefur teygt arma sina inn á fleiri svið, hefur reynst erfiðara að halda félagsfundi um einstök afmörkuð tæknileg svið. Hér opnast til dæmis tækifæri fyrir þá sem starfa við ákveðna tegund tölva eða vinna að svipuðum verkefnum að bera saman bækur sinar. 4

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.