Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 6
VETRARSTARF SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGSINS
Ætlunin er að byggja starf vetrarins upp á nokkuð
annan hátt en venja hefur verið hjá Skýrslutæknifél-
aginu hingað til. Félagsfundir verða reyndar haldnir
á hliðstæðan hátt og verið hefur. Reynsla siðustu
ára hefur hins vegar sýnt að sifellt erfiðara er að
ná til hins almenna félaga á þann hátt.
Ráðstefnur um ólík efni
í vetur er stefnt að þvi að halda nokkrar ráðstefnur
um ólik efni. Leitað verður samvinnu við aðila utan
félagsins um flestar ráðstefnunnar. Þær verða með
ólíku sniði og taka misjafnlega langan tima allt
eftir þvi hvaða efni fjallað er um og hvaða fólk þær
höfða til.
Fyrirhuguð er ráðstefna um tölvunet. Leitast verður
við að draga fram á henni reynslu þeirra aðila hér á
landi, sem nota tölvunet nú þegar. Einnig verður
fjallað um netin frá tæknilegu hliðinni. í kjölfar
ráðstefnunnar verður námskeið Skýrslutæknifélagsins
um tölvunet endurtekið. Sigfús Björnsson hefur
umsjón og leiðbeinir á námskeiðinu eins og s.l. vor.
Aðalfundur á PC - degi
Eins og þeir sem sótt hafa aðalfundi félagsins vita
eru það ekki fjölsóttar samkomur. Nú verður aðal-
fundurinn felldur inn í svonefndan PC-dag. Dagurinn
verður eins og nafnið bendir til helgaður einmenn-
ingstölvum. Litið verður á einmenningstölvur af ýmsum
gerðum, hin óliku tölvukerfi, sem fáanleg eru fyrir
þær og notkun þeirra við hin ólikustu verkefni. Gert
verður hæfilegt hlé um miðan daginn og aðalfundinum
skotið þar inn.
6