Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 14
Stundum er auðvelt að brjóta verkið niður i nokkurn
veginn sjálfstæða hluta, sem siðan er dreift á
undirtölvurnar. Oftast þarf þó að samræma
niðurstöður, sem fást frá undirtölvunum og stundum
þurfa þær að hafa samskipti sin á milli á meðan
verkið er leyst.
Tvö líkön
Til skamms tima voru engar raunverulegar samhliða
tölvur til. Af þeim sökum notuðust tölvunarfræðingar,
sem unnu að hönnun samhliða algóritma, við likön af
samhliða tölvum. í stórum dráttum eru til tvær
gerðir likana. Fyrri gerðin samanstendur af fast-
ákveðnum fjölda undirtölva, sem hver hefur sitt
einkennisnúmer og óbundinn fjölda minnishólfa. Hver
einstök undirtölva er tengd fastákveðnum fjölda
annara undirtölva og vinna þær saman að lausn
verkefna með þvi að senda hver annari skeyti. Hver
einstök undirtölva er þó venjulega ekki tengd öllum
hinum. Af þeim sökum þurfa skeyti stundum að fara i
gegnum nokkrar undirtölvur áður en þau komast á
áfangastað. Nokkrar samhliða tölvur hafa verið
hannaðar, sem byggja á þessu fyrirkomulagi, þar á
meðal "Cosmic Cube", sem áður var minnst á.
Seinni tegundin af þeim likönum, sem notuð eru
samanstendur af óbundnum fjölda undirtölva, sem hver
hefur sitt einkennisnúmer og minni til að geyma
fastákveðinn fjölda af tölum. Allar undirtölvurnar
nota sama forritið. Skipanir i forritinu geta
innihaldið einkennisnúmer undirtölvanna, t.d. i
IF-setningu, sem gerir það að verkum að hægt er að
stjórna þvi hvaða undirtölvur framkvæma ákveðna
verkhluti. Auk minnisins i undirtölvunum sjálfum er
sameiginlegt minni af óbundinni stærð. Allar
undirtölvurnar geta breytt innihaldi sameiginlega
minnisins. Tvær eða fleiri undirtölvur mega þó
aldrei reyna að lesa eða breyta sama minnishólfinu
samtimis. Þetta likan er notað i dæmunum hér. Þessi
gerð likana virðist ekki vera eins raunhæf og fyrri
gerðin. Tölvunarfræðingar i New York University eru
þó að hanna tölvu sem svipar til þessa likans. Hún
heitir "The Ultracomputer" og henni er lýst i grein i
febrúar hefti timaritsins "IEEE Transaction on
Computers" 1983.
14