Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 11
FAGRÁÐ
Stofnun sérstaks fagráðs innan Skýrslutæknifélagsins
hefur verið rædd innan stjórnarinnar. Fagráð er
aðili i likingu við það,sem stundum er nefnt akademia
á erlendum málum. Ráðið er æðsti umsagnaraðili innan
félagsins og að miklu leiti stefnumarkandi i faglegum
málum. í fagráði sitja 6 menn, sem hafa mikla reynslu
á sviði upplýsingamála og njóta almennra virðinga og
trausts á þeim vettvangi. Stjórn Skýrslutækni-
félagsins skipar menn í fagráð til tveggja ára i
senn. Við þá skipun styðst hún við tilnefningar frá
félagsmönnum. Menn geta setið i fagráði eins lengi
og þeir eru skipaðir, þ.e. þá má endurskipa. Ráðið
kýs sér sjálft formann.
Hugmyndir stjórnarinnar hniga í þá átt að ráðið móti
að verulegu leiti hlutverk sitt sjálft fyrstu árin.
Einnig að það starfi mjög sjálfstætt og lúti ekki
fyrirmælum stjórnarinnar.
í drögum sem fyrir liggja um starfsvettvang fagráðs
er frekari lýsing á starfssviði þess. Til dæmis er
áætlun um að skipun í tölvunefnd breytist á þann hátt
að stjórn Sí skipi mann i nefndina úr hópi 5 manna,
sem fagráð tilnefni. Þá er hugmyndin að ráðið geri
tillögur um meginlínur varðandi stefnu í stöðlunar-
málum og hugi vel að aðlögun tölvutækninnar að
íslenskri menningu. Einnig er stefnt að því að leita
megi til fagráðs með tilnefningu manna í gerðardóm og
hliðstæðar nefndir. Stjórn SÍ mun að sjálfsögðu
leita umsagnar ráðsins um öll tæknileg mál, sem
félaginu eru send til afgreiðslu.
Almennt er hugmynd stjórnarinnar að stofna ráð hæf-
ustu manna, sem hafið sé yfir daglegt þras og njóti
almenns trausts og virðingar. Áður en þetta mál
hlýtur meiri umræðu innan stjórnarinnar er nauðsyn-
legt að heyra skoðanir félagsmanna á því. Fljótlega
munu þau drög, sem nú liggja fyrir verða send nokkrum
aðilum til umsagnar. Einnig óskar félagið eftir að
heyra skoðanir hins almenna félagsmanns á þessu máli.
Ekki síst hvaða menn eru taldir koma til greina til
setu 1 ráðinu og hvaða kostum þeir eigi að vera
búnir. -si.
11