Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 22
framh. af bls. 20
formaður Data General, An Wang aðaleigandi Wang
Labaratories og John Scully, forstjóri Apple
Computers. Þeir eru reyndar i góðum félagsskap þvi
næst á eftir þeim kemur sjálfur kraftaverkamaðurinn
Lee A. Iacocca hjá Chrysler.
Það er til marks um þá erfiðleika, sem upplýsinga-
iðnaðurinn hefur átt við að etja undanfarin misseri,
að svo margir stjórnendur tölvufyrirtækja skuli
standa á listanum. Öll þau þrjú tölvufyrirtæki, sem
nefnd voru á undan hafa náð undraverðum árangri á
liðnum árum þó stjórnendur þeirra sitji nú i
skammakrók Business Week.
Til gamans er hér á eftir birtur listi um tekjur
þeirra 10 manna, sem höfðu hæst laun hjá fyrirtækjum
i Bandarikjunum 1985:
Hæstu laun stjórnenda 1985:
1. Victor Posner DWG 520 milj.kr.
2 . Lee A. Iococca Chrysler 460 If II
3 . T. Boone Pickens Jr Mesa Petroleum 340 II II
4. Drew Lewis Warner Ames 240 II II
5. Robert L. Mirchell Celanesed 190 II II
6. Sidney J. Sheinberg MCA 180 II II
7 . Robert Anderson Rockwell 145 II II
8 . Clifton C.Garvin Jr Exxon 140 11 II
9. David S. Lewis Gen. Dynamics 135 II II
10 .John H. Gutfrund Phibro-Salomon 130 II II
11 .George B. Beitzel IBM 120 II II
Hvernig er málum háttað hérlendis
Marga mun fýsa að vita hvernig launamálum stjórnenda
fyrirtækja er háttað hér á landi. Fróðlegt væri að
gera hliðstæðan samanburð á árangri þeirra og launum
og bandariska timaritið gerir. Þessi mál eru hins
vegar feimnismál hér og engar likur á þvi að
hliðstæðir listar verði birtir i viðskiptaritum.
Stjórnendum er illa við að opinbera laun sin og láta
gera mat á hæfni sinni. Þeir tölvumenn hér á landi,
sem kæmu inn á svona lista myndu þó vafalitið vera i
hópi betri manna. Sumir þeirra kæmu að likum til
álita á lista þeirra, sem hafa skilað bestum árangri
i samræmi við laun. -si.
22