Tölvumál - 01.10.1986, Blaðsíða 20
BESTU LAUN í BANDARÍKJUNUM
Bandaríska tímaritið Business Week birtir árlega
lista yfir þá stjórnendur fyrirtækja i Bandarikjunum,
sem hafa hæst laun. Við lestur yfirlitsins vekur
athygli hversu svimandi háar upphæðir um er að ræða.
Þá kemur nokkuð á óvart að ekki virðist vera samband
á milli almennrar afkomu fyrirtækja og þeirra launa,
sem forsvarsmenn þeirra skammta sjálfum sér. Þannig
má til dæmis nefna að Victor Posner, sem hafði um 520
miljón krónur i árslaun 1985 hefur að mati
timaritsins Business Week staðið sig hörmulega á
undanförnum árum. Timaritið setur hann til dæmis
efstan (eða neðstan) á lista yfir lélegustu
stjórnendur i Bandarikjunum 1985.
Einn á meðal hinna bestu
Á meðal 25 bestlaunuðu stjórnenda i Bandarikjunum er
einungis að finna einn "tölvumann". Það er George B.
Beitzel hjá IBM. Hann hafði 125 miljón króna tekjur
1985 og var 11. maður á lista timaritsins.
Business Week leggur einnig mat á þann árangur, sem
hinir vellaunuðu stjórnendur hafa skilað og ber hann
saman við þau laun, sem þeir fengu.
í blaðinu er birtur listi yfir þá 10 stjórnendur, sem
að mati þess hafa skilað hluthöfum fyrirtækja sinna
bestum árangri i hlutfalli við þau laun, sem þeir
fengu greidd. Einnig birtir blaðið lista yfir þá 10
stjórnendur, sem hafa skilað lélegustum árangri.
Fyrir þá sem áhuga hafa á upplýsingatækni eru þessir
listar mjög áhugaverðir. Á betri listanum er enginn
stjórnandi tölvufyrirtækis. Efstur á honum er
liðlega sextugur heiðursmaður frá Suðurrikjunum.
Hann nefnist Floyd D. Gottwald Jr. og er stjórnar-
formaður efnafyrirtækisins Floyd. Á listanum eru
einnig menn frá Pan Am, Polaroid og Campbell Soup,
svo dæmi séu tekin.
Tölvumenn í skammakróknum
Á slakari listanum er á hinn bóginn aðfinna nöfn sem
eru kunn i tölvuheiminum. í þriðja, fjórða og fimmta
sæti óæðri listans eru Edson D de Casto, stjórnar-
framh. á bls. 22
20