Tölvumál - 01.10.1987, Page 4
NÝ RITNEFND
Ritnefnd TÖLVUMÁLA. hefur tekið miklum breytingum. Úr gömlu
ritnefndinni eru Jóhann Gunnarsson og Stefán Ingólfsson
einir eftir. Þá má ekki gleyma Kolbrúnu Þórhallsdóttur,
framkvæmdastj óra SÍ, sem ber hitann og þungann af frágangi
blaðsins. Til liðs við okkur hafa komið Guðriður Jóhannes-
dóttir, Halldór Kristjánsson, Jón R. Gunnarsson og Vil-
hjálmur Sigurjónsson. Þetta blað er hið fyrsta, sem nyja
ritnefndin sendir frá sér. Útlit og innihald blaðsins er
þó ekki fullmótað miðað við þau áform, sem nefndin hefur um
efnistök. Nefndarmenn hafa ákveðið að skipta með sér
ákveðnum föstum dálkum auk greinaskrifa.
Ætlunin er að hafa fréttapistla með stuttum klausum af
helstu tiðindum i tölvuheiminum hér á landi og einnig
erlendis. Guðriður verður ábyrgðarmaður fréttapistlanna.
Þá er ætlunin að flytja reglulega fréttir af þvi sem stjóm
félagsins er að sysla. Það mun Halldór Kristjánsson
annast. Til reynslu höfum við opnað flóamarkað i TÖLVUMÁL-
UM. Þeir, sem óska að selja tól og tæki geta auglýst án
endurgjalds á flóamarkaðinum. Einungis þarf að hafa
samband við Kolbrúnu. TÖLVUMÁL standa öllum opin. Þeir,
sem þess óska geta sett þar fram skoðanir sinar um hvað-
eina, sem snýr að upplýsingamálum. Blaðið mun ekki gera
athugasemdir við skoðanir manna - jafnvel þótt gagnrýni
verði beint að Skýrslutæknifélaginu eða blaðinu sjálfu.
Það orð hefur legið á "tölvumönnum" að þeir séu pennalatir
og láti gagnrýni oftast ósvarað. Vonandi afsanna lesendur
TÖLVUMÁIA það i vetur.
Á fyrsta helmingi yfirstandandi árs voru fluttar inn tölvur
og tölvutæki fýrir tæpan milljarð króna. Þá er ótalin öll
innlend þjónusta. Þetta sýnir okkur að á upplýsingasviðinu
eru mikil umsvif. Fagleg og fagpólitisk xmiræða er þó i
algjöru lágmarki. Það stafar þó ekki af áhugaleysi. Hin
góða aðsókn, sem er að öllum ráðstefnum Skýrslutæknifélags-
ins sýnir svo ekki verður um villst að mikill og almennur
áhugi er á öllum hliðum upplýsingamála. Mönnum er hins
vegar ekki lagið að setja fram skoðanir sinar i rituðu
máli. Það er ósk okkar að þessi áhugi endurspeglist i
starfi félagsins og útgáfu TÖLVUMÁIA á komandi vetri.
- 4 -
Stefán Ingólfsson.