Tölvumál - 01.10.1987, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.10.1987, Blaðsíða 6
hugbúnaður skilgreindur sem ritverk ("literary works"), sem njóta skal vemdar þar til 50 árum eftir dauða höfundar. Lagt er til að viðurlög við hugbúnaðarstuldi séu þyngd úr 200 Kanadadollara sekt, sem nú er hámark viðurlaga, i allt að 1 milljón dollara sekt og 5 ára fangelsi. Það litur þvi út fyrir að kanadískir "sjóræningjar" megi fara að vara sig. Páll Jensson, formaður Skýrslutæknifélagsins er nú í rannsóknarfrii i Flórida. Hann fór vestur með fjölskyldu sina i fyrra mánuði og kemur væntanlega aftur i febrúar. í fjarveru hans gegnir varaformaður félagsins, Jóhann P. Malmquist, formennsku. Enn um formanninn. Páll Jensson átti fertugsafmæli 3. október s.l. TÖLVUMÁL senda honum afinæliskveðjur yfir hafið og óska honum gæfu og gengis. Guðriður Jóhannesdóttir MÓTMÆLI GEGN SÖLUSKATTI A TÖLVUR, HUGBÚNAÐ OG TÖLVUÞJÓNUSTU Þegar ljóst var að ný rikisstjóm hyggðist afla ríkinu aukinna tekna með þvi að leggja söluskatt á tölvur, hugbúnað og tölvuþjónustu ákvað stjóm Skýrslutæknifélags íslands að koma á framfæri alvarlegri viðvörun vegna þessara áforma. Erindi þess efnis var sent til allra ráðherra, formanna stjómmálaflokkanna og fjölmiðla. í kjölfar þessara mótmæla frá stjóm Skýrslutæknifélagsins var hafður fundur með félagsmönnum i hugbúnaðarfyrirtækjum sem náðist i með stuttum fyrirvara. Á þeim fundi var stofnuð óformleg nefnd á vegum félagsins til að mótmæla fyrirhuguðum söluskatti og benda á þær óheillavænlegu afleiðingar, sem álagning hans hefði i för með sér. í nefndinni eru Hjörtur Hjartar, stjómarmaður i SÍ, Lúðvik Friðriksson frá Rafreikni hf og Vilhjálmur Þorsteinsson frá íslenskri forritaþróun sf. - 6 -

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.