Tölvumál - 01.10.1987, Síða 9

Tölvumál - 01.10.1987, Síða 9
laust fengið forrit úr þessu safni. útgáfustarfsemi DECUS er fjölbreytt. Gefin eru út mörg rit um f jölbreyttustu efni sem varða notkun DEC tölva. Vinsælar ráðstefnur Ráðstefnur DECUS eru mjög vinsælar. Þær nefnast DECUS Syitposium. Ráðstefnumar eru haldnar árlega. X hverju landi halda einstakar deildir ráðstefnur, eiríkum á vorin. Þá heldur DECUS Europe mikla ráðstefnu á hverju hausti. Hún flyst á milli borga i Evrópu. Nú i september var hún haldin i Rómaborg. Ráðstefnumar em f jölbreyttar. Digital Equipment sýnir á þeim athyglisverðar nýjungar. Sérfræðingar þeirra svara fýrirspumum og gestir geta "fiktað i tækjunum". Þá eru haldin erindi um helstu nýjungar og það sem efst er á baugi i "Digitalheiminum". Revkiavik á vorin Félagar i íslandsdeild DECUS sem nefnist DECUS ÍSLAND eru nú hátt á annað hundrað. Starfsemin hefur verið lifleg siðustu árin. Digital tölvur eru mjög vinsælar hér á landi og endurspeglast það i vaxandi áhuga á starfi DECUS ÍSIAND. Félagið er opið öllum áhugamönnum um tölvunotkun. Engin félagsgjöld eru greidd i DECUS. DECUS ÍSIAND gengst fyrir ráðstefnu, DECUS Symposium, á hverju vori oftast fyrri hluta mai. Ráðstefnur félagsins hafa tekist mjög vel og verið fjölsóttar. Á siðustu ráðstefnu voru til daanis erindi og kynningar á svonefndum fjórðu kynslóðar forritunarmálum. Einnig var fjallað um kosti UNIX stjómkerfisins og stefnu Digital varðandi samtengingar á tölvutækjum. Tveir erlendir sérfræðingar frá Digital héldu erindi á ráðstefnunni. Kristján Ó. Skagfjörð hf umboðsaðili Digital Equipment hér á landi setur upp sýningu á nýjum tækjum og tölvukerfum fýrir ráðstefnugesti i tengslum við ráðstefnumar. Opið félaq Eins og áður segir eru DECUS félögin opin öllum áhugamönnum um tölvur. Menn þurfa einungis að láta skrá sig i samtökin til þess að taka þátt i ráðstefnunni. Heimilisfang DECUS ísland er hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð hf. Guðni Kristjáns- son verkfræðingur er formaður félagsins og Diana Simonar- dóttir er framkvaardastj óri. -si - 9 -

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.