Tölvumál - 01.10.1987, Qupperneq 20

Tölvumál - 01.10.1987, Qupperneq 20
FRÁ ORÐANEFND Orðanefnd hefur nú hafið störf á ný eftir sumarleyfi. Ritnefnd Tölvumála hefur látið i ljós þá ósk að pistill orðanefndar verði fastur liður i blaðinu i vetur. Mun reynt að verða við þeirri ósk eftir þvi sem timi og kraftar formannsins leyfa. Reynsla okkar sýnir þó að ekki má búast við að lesendur bregði við hart og skjótt og láti i ljós álit sitt á tillögum þeim sem við birtum i blaðinu. Væri okkur mikil ánægja að heyra oftar frá félögum i Skýrslutæknifélaginu. Mega menn gjaman láta i ljós álit sitt á tillögum þeim sem birtast hér i blaðinu og einstökum atriðum i Tölvuorðasafn- inu og einnig á þvi hvert ætti að vera hlutverk orðanefnd- arinnar nú þegar búið er að gefa Tölvuorðasafnið út. Litum nú á nokkur orð sem fjallað hefur verið um nýlega. LCD Að gefnu tilefni viljum við benda á orðið skuggastafagluggi sem birtist i Tölvuorðasafninu sem þýðing á liauid crystal displav. skammstafað LCD. Stafimir birtast sem skuggi á ljósum grunni og mætti þvi kalla skuggastafi. Sumum finnst e.t.v. að i heitinu ætti að vera einhver tilvisun til vökvakristalla. Datt okkur þá í hug að tala mætti um kristalsstafaglugga eða jafnvel kr istalsstafaskj ái. Stafimir sjálfir gætu heitið kristalsstafir. En menn mættu sem sé ihuga hvort við þurfum endilega að þýða úr ensku, og hvort sú hugsun sem býr að baki orðsins skuggastafur er ekki alveg eins góð þótt islensk sé. Stafir á skjá eru ljósstafir, en þeir sem hér um ræðir eru beinlinis skugga- stafir. hacker í Tölvuorðasafninu er gefin þýðingin tölvurefur á hacker i merkingunni 'maður sem reynir á ólöglegan hátt að fá aðgang að upplýsingum i tölvukerfi og e.t.v. breyta þeim á ýmsu vegu'. Hacker getur lika verið 'maður sem hefur mikinn áhuga á tölvum og er duglegur að nýta þær á ýmsa vegu'. Nýlega sá ég orðið tölvukeri (sbr. fagurkeri) i Morgunblað- inu og gæti það verið þýðing á hacker i seinni merkingunni. framh. á bls. 22 - 20 -

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.