Tölvumál - 01.03.1989, Side 18
Tölvumál Mars1989
Kynning á
LBMS-
notenda-
hópnum
Guðbjörg Sigurðardóttir
Fyrsti Notendafundurinn
verður haldinn 17. mars
LBMS er skammstöfun á nafni
fyrirtækisins Learmonth & Burchett
Management Systems Ltd. Um
nokkura ára skeið hefur fyrirtækið
haldið námskeið hér á landi, fyrst á
vegum SKÝRR og nú vegum
Stjómunarfélags íslands. Fyrir-
tækið býður upp á námskeið í
kerfisgreiningu og hönnun (LSDM-
kerfisfræðiaðferðin) og hafa þau
verið fjölsótt. Einnig er boðið upp á
námskeið í stefnumótun í upplýs-
ingamálum (LEAP), verkefna-
stjórnun, skrifstofusjálfvirkni og
forritun.
Hópurinn var formlega stofnaður
þann 9. febrúar 1989 eftir nokkum
undirbúning. Tilgangurinn með
stofnun hans er að miðla þekkingu
og auka notkun á aðferðum LBMS.
Starfsemi hópsins felst aðallega í
notendafundum. Stefnt er að því að
halda 2 stóra notendafundi á ári, þar
sem notendur LBMS-aðferðanna fá
tækifæri til þess að hlýða á erindi
sem tengjast notkun þessara aðferða
eða nýjungum og ræða málin.
Erindi flytja notendur hér á landi og
einnig fulltrúar frá LBMS. Erindin
koma vafalaust að góðu gagni, en
það sem gefur notendafundum sem
þessum hvað mest gildi er að fólki
gefst tækifæri til að ræða þau
vandamál sem upp koma við aðra,
utan síns fyrirtækis. Einnig fæst
tækifæri til þess að koma með
fyrirspurnir til kennara í fræðunum
og þeirra sem hvað lengsta reynslu
hafa í notkun þessara aðferða.
En hvers vegna er verið að stofna
notendahóp fyrir þessa aðferð frekar
en einhverja aðra, er spuming sem
vafalaust vaknar hjá mörgum sem
lesa þessar línur.
Það hefur víða verið feimnismál, í
tölvudeildum fyrirtækja, að starfs-
fólk hefur notað þær aðferðir sem
því hefur hentað hverju sinni eða
bara sest niður og forritað. Frá-
gangur á kerfum hefur verið þannig
að þegar höfundur kerfis hættir hjá
fyrirtæki þá skapast hálfgert
vandræðaástand vegna þess að
meirihluti þekkingarinnar um kerfíð
er í höfðinu á höfundinum.
Flest fyrirtæki gera sér grein fyrir
nauðsyn þess að mennta starfsfólk
sitt en senda það næsta tilviljunar-
kennt á námskeið þ.a. ekki er fylgt
neinni heildarstefnu hvorki í mennt-
un starfsfólks né þeim aðferðum
sem notaðar em í kerfisgerð.
í stuttu máli sagt byggist val okkar á
LBMS- aðferðinni á þörfinni fyrir
vönduð, stöðluð vinnubrögð, sem
studd eru með góðri kennslu og hafa
sannað ágæti sitt. Allt þetta teljum
við að LBMS- aðferðimar bjóði upp
á ef notkun þeirra er vel fylgt eftir í
fyrirtækjunum. Með stofnun
LBMS-notendahópsins er svo verið
að styrkja stöðu þessarar aðferða-
fræði í þeim fyrirtækum sem valið
hafa að nota þessa aðferð og hafa
mörg hver gert hana að staðli fyrir
sína hugbúnaðargerð.
Eftirtaldir aðilar em í stjórn LBMS-
notendahópsins og taka við ábend-
ingum um fundarefni og veita upp-
lýsingar um starfsemi hópsins:
Bemt Kaspersen, Landsbanka
íslands (Mjódd)
Bjöm Thorarensen, Iðnaðarbanka
íslands
Glenn Michael, LBMS Aberdeen
Guðbjörg Sigurðardóttir,
Ríkisspítulum
Halldóra Mathiesen, Flugleiðum
Jónas Sigfússon, ÍSAL
Ómar Ingólfsson, SKÝRR
Stjórnunarfélag íslands hefur veitt
margvíslega aðstoð við að koma
LBMS-notendahópnum á laggimar
og á það hinar bestu þakkir skilið.
Stjómunarfélagið heldur utan um
félagaskrá LBMS-notendahópsins
og er þeim sem áhuga hafa bent á að
skrásigþar. Engin félagsgjöld eru
innheimt heldur er aðeins greitt fyrir
þátttöku í þeim notendafundum sem
viðkomandi sækir.
18