Tölvumál - 01.03.1989, Síða 18

Tölvumál - 01.03.1989, Síða 18
Tölvumál Mars1989 Kynning á LBMS- notenda- hópnum Guðbjörg Sigurðardóttir Fyrsti Notendafundurinn verður haldinn 17. mars LBMS er skammstöfun á nafni fyrirtækisins Learmonth & Burchett Management Systems Ltd. Um nokkura ára skeið hefur fyrirtækið haldið námskeið hér á landi, fyrst á vegum SKÝRR og nú vegum Stjómunarfélags íslands. Fyrir- tækið býður upp á námskeið í kerfisgreiningu og hönnun (LSDM- kerfisfræðiaðferðin) og hafa þau verið fjölsótt. Einnig er boðið upp á námskeið í stefnumótun í upplýs- ingamálum (LEAP), verkefna- stjórnun, skrifstofusjálfvirkni og forritun. Hópurinn var formlega stofnaður þann 9. febrúar 1989 eftir nokkum undirbúning. Tilgangurinn með stofnun hans er að miðla þekkingu og auka notkun á aðferðum LBMS. Starfsemi hópsins felst aðallega í notendafundum. Stefnt er að því að halda 2 stóra notendafundi á ári, þar sem notendur LBMS-aðferðanna fá tækifæri til þess að hlýða á erindi sem tengjast notkun þessara aðferða eða nýjungum og ræða málin. Erindi flytja notendur hér á landi og einnig fulltrúar frá LBMS. Erindin koma vafalaust að góðu gagni, en það sem gefur notendafundum sem þessum hvað mest gildi er að fólki gefst tækifæri til að ræða þau vandamál sem upp koma við aðra, utan síns fyrirtækis. Einnig fæst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir til kennara í fræðunum og þeirra sem hvað lengsta reynslu hafa í notkun þessara aðferða. En hvers vegna er verið að stofna notendahóp fyrir þessa aðferð frekar en einhverja aðra, er spuming sem vafalaust vaknar hjá mörgum sem lesa þessar línur. Það hefur víða verið feimnismál, í tölvudeildum fyrirtækja, að starfs- fólk hefur notað þær aðferðir sem því hefur hentað hverju sinni eða bara sest niður og forritað. Frá- gangur á kerfum hefur verið þannig að þegar höfundur kerfis hættir hjá fyrirtæki þá skapast hálfgert vandræðaástand vegna þess að meirihluti þekkingarinnar um kerfíð er í höfðinu á höfundinum. Flest fyrirtæki gera sér grein fyrir nauðsyn þess að mennta starfsfólk sitt en senda það næsta tilviljunar- kennt á námskeið þ.a. ekki er fylgt neinni heildarstefnu hvorki í mennt- un starfsfólks né þeim aðferðum sem notaðar em í kerfisgerð. í stuttu máli sagt byggist val okkar á LBMS- aðferðinni á þörfinni fyrir vönduð, stöðluð vinnubrögð, sem studd eru með góðri kennslu og hafa sannað ágæti sitt. Allt þetta teljum við að LBMS- aðferðimar bjóði upp á ef notkun þeirra er vel fylgt eftir í fyrirtækjunum. Með stofnun LBMS-notendahópsins er svo verið að styrkja stöðu þessarar aðferða- fræði í þeim fyrirtækum sem valið hafa að nota þessa aðferð og hafa mörg hver gert hana að staðli fyrir sína hugbúnaðargerð. Eftirtaldir aðilar em í stjórn LBMS- notendahópsins og taka við ábend- ingum um fundarefni og veita upp- lýsingar um starfsemi hópsins: Bemt Kaspersen, Landsbanka íslands (Mjódd) Bjöm Thorarensen, Iðnaðarbanka íslands Glenn Michael, LBMS Aberdeen Guðbjörg Sigurðardóttir, Ríkisspítulum Halldóra Mathiesen, Flugleiðum Jónas Sigfússon, ÍSAL Ómar Ingólfsson, SKÝRR Stjórnunarfélag íslands hefur veitt margvíslega aðstoð við að koma LBMS-notendahópnum á laggimar og á það hinar bestu þakkir skilið. Stjómunarfélagið heldur utan um félagaskrá LBMS-notendahópsins og er þeim sem áhuga hafa bent á að skrásigþar. Engin félagsgjöld eru innheimt heldur er aðeins greitt fyrir þátttöku í þeim notendafundum sem viðkomandi sækir. 18

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.