Tölvumál - 01.03.1990, Síða 4

Tölvumál - 01.03.1990, Síða 4
Tölvumál Mars 1990 Frá formanni Halldór Kristjánsson, formaðurSÍ Sameiginleg árshátíð SÍ, Félags tölvunarfræðinga og KERFÍS tímamótaviðburður Sameiginleg árshátíð þessarra þriggja félaga var haldin föstudaginn 26. janúar síðastliðinn að Hótel Loftleiðum. Árshátíðina sóttu yfír áttatíu manns og er skemmst frá því að segja að hún var frábærlega vel heppnuð. Er það ekki síst að þakka undirbúningsnefnd félaganna og skemmtinefndum þeirra að svona vel tókst til. Dagskráin hófst með fordrykk í boði Sjóvá-Almennra hf en að lokinni setningu tók við bráðskemmtilegt atriði frá skemmtinefnd tölvunarfræðinga en hún hafði gert símaat kvöldið áður á kostnað formanns SÍ. Þá voru ávörp formanna félaganna sem voru á léttari nótunum en í ávarpi mínu tilkynnti ég kjör heiðursfélaga SÍ og er það ánægjulegasta verk sem ég hefi unnið sem formaður félagsins. Þá flutti Sverrir Ólafsson framkvæmdastjóri hjá IBM hátíðarræðu sem var bráðskemmtileg eins og hans var von og vísa. Á eftir fylgdu skemmtiatriði félaganna sem voru hvert öðru betra. Dregið var í happdrætti kvöldsins í lok skemmtidagskrár en IBM á íslandi, HP á íslandi og GJJ gáfu glæsílega vinninga. Árshátíðinni lauk svo með því að stiginn var dans til 2 eftir miðnætti við undirleik hljómsveitarinnar Kaktus. Það er samdóma álit þeirra sem þátt tóku að þetta hafi verið vel heppnaður og skemmtilegur atburður sem ástæða sé til að endurtaka að ári. Ekki síst er ánægjulegt hversu vel tókst dl með samstarf þessarra þriggja félaga og svo sannarlega er hægt að kalla þetta tímamótaatburð! Ársfundur og aðalfundur SÍ Ársfundur SÍ var haldinn sama dag og árshátíðin. Hófst hann með ráðstefnunni Framtíð í ljósi fortíðar, sem sótt var af tæplega 120 manns. í lok ársfundar var haldinn aðalfundur SÍ. Á fundinum var fjallað um starf liðins árs og er skýrsla formanns um það efni birt hér í blaðinu. Þá voru kjömir tveir nýjir stjómarmenn í stað Jóns Gunnars Berg sem óskaði eftir að fá að draga sig í hlé frá stjómarstörfum og Hjartar Hjartar sem flutd til Þýskalands á árinu. Halldóra Mathiesen og Haukur Oddsson voru kjörin í þeirra stað og er mikill fengur að því að fá þau í stjómina. Þeim Jóni Gunnari og Hird eru þökkuð ánægjuleg viðkynni og gott starf fyrir félagið. Við vonum öll að fá að njóta krafta þeirra síðar. Oddur Benediktsson kjörinn heiðursfélagi Sí Á árshátíð SÍ var tilkynnt kjör heiðursfélaga Skýrslutæknifélags íslands. Við val á heiðursfélaga var fyrst og fremst litið á framlag til þróunar tölvu- og upplýsingatækni hér á landi. Var leitað tírfjölmargra aðila um tilnefningar og kom fljótlega í ljós að kastljósið beindist að Oddi Benediktssyni sem unnið hefur mikið og gott brautryðjendastarf á þessu sviði. Á stjórnarfundi 12. janúar síðaslliðinn var síðan einróma samþykkt að gera Odd að heiðursfélaga SÍ. Oddur hefur verið lykilmaður í uppbyggingu náms í tölvunarfræðum við Háskóla íslands. Þá má sjá spor hans víða f sambandi við tölvumál ,hcr á landi. 4

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.