Tölvumál - 01.04.1990, Qupperneq 3
Tölvumál Apríl 1990
TÖLVUMÁL
FRÉTTABRÉF SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGS ÍSLANDS
3. tbl. 15. árg. Apríl 1990
Frá ritstjóra.
Enn hefur útkomu blaðsins seinkað og eru allir hlutaðeigandi beðnir
afsökunar. Þetta skiptið eru ástæður fyrir töfinni einkum tæknilegs eðlis. I
stað þess að kaupa utanaðkomandi aðstoð við setningu blaðsins ætluðum við
að standa á eigin fótum og nota eigin aðstöðu félagsins við útgáfustarfið.
Þetta tókst ekki að þessu sinni.
Nokkrar breytingar hafa átt sér stað í ritnefndinni. Guðríður Jóhannesdóttir
og Helgi Þórsson hafa látið af störfum í henni vegna annríkis. Þökkum við
þeim fyrir unnin störf. Eftir sitja Hólmfríður Pálsdóttir og Daði Jónsson,
auk mín, og hefur Daði fallist á að deila ritstjórastörfum með undirrituðum.
Laufey Ása Bjamadóttir og Bjöm Þór Jónsson munu á næstunni koma til að
fylla skörðin eftir Helga og Guðríði. Býð ég þau velkomin til starfa.
Efnisyfirlit:
4 Frá formanni.
5 Ráðstefnur
6 UNIX - valkostur við
tölvuvæðingu
7 Samskipti verkkaupa og
verksala
Meginefni þessa heftis eru fyrirlestrar frá tveim síðustu ráðstefnum SÍ og
kann ritstjóm höfundum bestu þakkir fyrir. En til að auka á fjölbreytni í
efnisvali óskar ritstjóm eftir ábendingum, tillögum og efni frá lesendum.
Þeim má koma á framfæri á ótal vegu, til dæmis:
9 SVARIÐ fyrir IBM AS/400
10 Fundur hjá LBMS
• Bréf til ritnefndar Tölvumála, Pósthólf 681,121 Reykjavík.
• Símleiðis til rimefndarmanna, t.d má oft ná í undirritaðan í síma 695213
á vinnutíma.
• Símabréf (fax) í síma 25380, stílað á S.í. rimefnd Tölvumála eða í síma
695251, stflað á undirritaðan.
• Tölvupóst um alþjóðlega Intemet kerfið og tölvu Háskóla íslands á
netfangið agust@rhi.hi.is.
• Tölvupóst um tölvu SKÝRR (boðbera) til SK.AGUST.
11 Notkun þekkingarkerfis við
bilanagreiningu
14 Forritun í OS/2
16 Símabyltingin
17 Tölvuböl graðhesta
Greinar, sem ætlaðar eru til birtingar þurfa að vera aðgengilegar á tölvutæku
formi, t.d. PC-, PS- eða Macintosh disklingi.
Næsta blað á að koma út fyrir maílok og verður það síðasta blaðið fyrir
sumarfrí. Þeir sem ætla að leggja til efni í það em hér með hvattir til dáða.
Stjórn Skýrslutæknifélags íslands
Formaður:
Varaformaður:
Ritari:
Féhirðir:
Skjalavörður:
Meðstjómandi:
Varamenn:
Halldór Kristjánsson, verkfræðingur
Anna Kristjánsdóttir, dósent
Bjami Júlíusson, tölvunarfræðingur
Kjartan Ólafsson, viðskiptafræðingur
Snoiri Agnarsson, tölvunarfræðingur
Guðbjörg Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur
Halldóra M. Mathíesen
Haukur Oddsson
Ritnefnd 3. tbl. 1990:
Ágúst Úlfar Sigurðsson, tæknifræðingur, Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Daði Jónsson, reiknifræðingur, Ritstjóri
Hólmfríður Pálsdóttir, tölvunarfræðingur
Efni TÖLVUMÁLA er sett upp í
PageMaker á Macintosh-tölvu.
Fjölritað hjá Offsetfjölritun hf.
3