Tölvumál - 01.04.1990, Blaðsíða 4
Tölvumál Apríl 1990
Frá
formanni
Halldór Kristjánsson,
formaöur SÍ
Nýjir stjórnarmenn í SÍ
Á síðasta aðalfundi voru tveir
félagar okkar kjömir til setu í stjóm
SÍ næstu tvö árin. Það em þau
Halldóra M.Mathiesen og Haukur
Oddsson. Halldóra er deildarstjóri í
tölvudeild Flugleiða en Haukur er
forstöðumaður tölvudeildar
íslandsbanka. Þá var Anna
Kristjánsdóttir kjörin varaformaður
með formlegum hætti, en hún hafði
gegnt því embætti sem varamaður
ffá því í september 1989, er Hjörtur
Hjartar fór erlendis til starfa. Býð
ég þau velkomin til starfa og vænti
góðs af samstarfinu við þau.
Breytingar á ritstjórn
Töivumála
Helgi Þórsson hefur óskað eftir því
að verða leystur undan skyldum í
ritstjóm Tölvumála vegna anna.
Hefur stjóm fallist á þessa ósk hans
og þakkar honum störf hans að
útgáfu tímaritsins.
Þá hefur Snorri Agnarsson tekið
sæti í ritstjóm sem tengiliður
stjómar. Á næstunni verður svo
fjölgað í ritstjóm um einn til tvo.
NordDATA 1990 í
Gautaborg
Á liðnum dögum hefur félögum
Skýrslutæknifélagsins borist boð um
þátttöku í NordDATA 1990 sem að
þessu sinni verður haldin í
Gautaborg. Félagið mun standa fyrir
hópferð á þingið en um 20
íslendingar sóttu þingið í fyrra er
það var haldið í Kaupmannahöfn.
Enginn íslendingur mun að þessu
sinni flytja erindi á þinginu en í
fyrra vom tvö íslensk erindi flutt.
Þrátt fyrir eftirgrennslan hafði
enginn þeirra sem leitað var til um
erindi tíma til þess að sinna því.
Mikil kynning er því samfara að
halda erindi á NordDATA og
ástæða til að hvetja menn til að
íhuga þetta fyrir næsta ár.
Skoðunarferð í
Landsvirkjun16. maí
Landsvirkjun hefur boðið félögum
SÍ í heimsókn hinn 16. maí
næstkomandi klukkan 14 til þess að
skoða nýjan kerfiráð Landsvirkjunar
sem er í stjómstöð Landsvirkjunar
við Bústaðaveg.
Er ekki að efa að þessi heimsókn
verður áhugaverð því með nýjum
kerfíráð Landsvirkjunar er hægt að
fylgjast með öllu kerfi hennar og
fjarstýra því. Em félagar eindregið
hvattir til að mæta, en tilkynning
verður send um þetta síðar.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku
til skrifstofu SÍ í síma 2 75 77.
Marilyn Parker 29. maí
Þriðjudaginn 29. maí næstkomandi
er stefnt að því að bjóða til
ráðstefnu í samvinnu við SKÝRR
og Stjómunarfélagið. Þegar þetta er
ritað er ekki búið að ákveða stað eða
tíma en líklegt talið að ráðstefnan
verði á hefðbundnum ráðstefnutíma
SÍ.
Fyrir milligöngu SKÝRR hefur
fengist hingað til lands Marilyn
Parker upplýsingahagfræðingur og
mun ráðstefnan fjalla um það efni.
Einnig verða fengnir íslenskir
fyrirlesarar.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
upplýsingatækni frá öðm sjónarmiði
en því vélræna og full ástæða til að
hvetja félaga SÍ til þátttöku.
Sumarið (vonandi) í nánd
Nú líður að sumri og um leið dregur
úr starfsemi SÍ. Ef tilefni gefst til
verður þó haldinn fundur eða annar
atburður. Starfið hefst svo að nýju í
haust með mikilli ráðstefnu um
stefnumótun i upplýsingatækni og
höfum við, þegar þetta er ritað,
fengið til liðs við okkur þrjá erlenda
sérfræðinga til að fjalla um efnið.
Það er því ástæða til að merkja strax
við 6. september í dagbókinni til
þess að missa ekki af þessum
atburði!