Tölvumál - 01.04.1990, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.04.1990, Blaðsíða 14
Tölvumál Apríl 1990 Forritun í OS/2: Landkostalíkan fyrir trjá og skógrækt Erindi Þorsteins Þorsteinssonarfrá ráðstefnu Sl, 8. mars 1990 Þegar forritao er i nýju styrikerfi eru mörg vandamál sem þarfað glíma við. Sagan hefst í Tölvuháskólanum vorið 1989, er við þrír, Sigurður Ólafsson, Skarphéðinn Héðinsson og Þorsteinn Þorsteinsson, ákváðum að skrifa saman lokaverkefni við skólann. Verkefnið skyldi skrifað í OS/2 stýrikerfinu og nota bæði Presentation Manager gluggakerfíð og Database Manager sem er SQL gagnagrunnur og fylgir IBM OS/2 Extended Edition. í ágúst fréttum við svo í gegnum IBM á íslandi að Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins hefði hug á að láta skrifa forrit fyrir sig sem uppfyllti einmitt þessar kröfur okkar. Fórum við því í heimsókn í Rannsóknastöðina og þar tók Þorbergur Hjalti Jónsson skógfræðingur á móti okkur, en hann hafði yfirumsjón með verkinu frá hendi Rannsóknastöðvarinnar. Okkur leist vel á verkefnið og ákváðum að hefjast handa hið snarasta. Hvaö er Landkostalíkan? Það sem Rannsóknastöðin vildi fá, var forrit sem gæfi upplýsingar um veðurfar og áætlaði vöxt og afkomu trjátegunda hvar sem er á íslandi. Það skyldi þannig úr garði gert, að hver sem er gæti sótt í það upplýsingar, en þó svo opið fyrir umbótum að það gagnaðist líka vísindamönnum. Með kerfinu ætti að vera: 1. Minni hætta á röngum ákvörðunum um fjárfestingu í skógrækt. 2. Von á betri árangri í yndisræktun almennings. 3. Von á bættri skipulagningu skógræktarframkvæmda. 4. Von á skilvirkara þekkingarstreymi frá rannsóknum í skógrækt til notenda og betri nýtingu rannsóknarkrafta í þágu ræktunarinnar. í þeirri útgáfu sem við skyldum skrifa yrðu þó einungis veðurfars- upplýsingar, þar eð gögn til að áætía vöxt og afkomu trjátegunda út frá veðurfarsgrunninum voru ekki fullunnin, og gerð veðurfarsgrunnsins yrði líklega alveg nóg í bili. Hönnun skyldi þó þannig úr garði gerð að auðvelt yrði að bæta við vaxtar- og afkomuspám, svo og hverju því sem starfsmönnum Rannsóknastöðvarinnar dytti í hug að bæta við kerfið í framtíðinni. Hafist handa Greiningu og hönnun unnum við þrír sameiginlega, en þegar kom að forritun skiptum við með okkur verkum. Sú skipting var í stórum dráttum sú, að Sigurður sá um meðhöndlun bitamynda, myndræna framsetningu og útlit kerfisins; Skarphéðinn sá um að lesa inn bitamyndir, notandaskil, skýringar og útíit kerfisins; og Þorsteinn sá um gagnagrunninn, þræði, útprentanir og yfirlitskort. Bar hver okkar ábyrgð á sfnu verki en við hjálpuðumst að við einstök vandamál eftir því sem þurfti. Þorbergur sá okkur svo fyrir reikniformúlum, gögnum og upplýsingum um skógfræðileg atriði. Þegar forritað er í nýju stýrikerfi eru mörg vandamál sem þarf að glíma við. Stærsta vandamálið er hve lítið hefur verið forritað í stýrikerfinu, en af því leiðir að lítið er til af bókum sem hægt er að nota til að dýpka skilninginn á afmörkuðum atriðum. Einu bækumar sem fundust, fjölluðu aðallega um atriði sem við þegar kunnum eftir námskeið á annari önn sem fjallaði um gluggakerfi og þá sérstaklega Presentation Manager. Hægt er að nefna sérstaklega fjögur atriði sem við þurftum að eyða tíma í, en þau em gagnagrunnskerfið, þræðir, bitamyndir og skýringakerfið í útgáfu 1.2. Nýjungar, sem þurfti aö glíma við Database Manager (DBM) er SQL gagnagrunnur sem fylgir IBM OS/2 Extended Edition. Þekking okkar á SQL var frekar takmörkuð og 14

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.