Tölvumál - 01.04.1990, Side 6
Tölvumál Apríl 1990
UNIX-
Valkostur
við
tölvuvæðingu
Ágúst Úlfar Sigurðsson,
ritstjóri
Skýrslutæknifélag íslands hélt
almennan félagsfund í hádeginu
þann 28. mars 1990 á Hótel
Loftleiðum, Höfða.
Ræðumenn voru tveir, Maríus
Ólafsson reiknifræðingur og
Dr. Douglas A. Brotchie.
Maríus ræddi þróun UNIX kerfisins
úr System-V og BSD útgáfunum
ásamt Unix Intemational og OSF
yfír í samræmda staðlasafnið
X/OPEN.
Einnig ræddi Maríus um
notendahópinn, sem sífellt fer
vaxandi og er ekki lengur
takmarkaður við háskóla og
tæknimarkað því viðskiptageirinn er
farinn að sýna mikinn áhuga.
Margir hugbúnaðarkaupendur, sem
kjósa að vera óháðir vélbúnaði era
famir að krefjast þess að
hugbúnaðartilboð séu miðuð við
UNIX.
Helstu atriðin sem mæla með UNIX
taldi Maríus vera þessi:
Óháð vali á vélbúnaði
(vélbúnaðarseljendum).
Flytjanleiki hugbúnaðarkerfa
er mikill.
Flytjanleiki þekkingar
notandans er mikill.
Vaxtarmöguleikar eru miklir.
Eitt hugbúnaðarumhverfi.
Dr. Douglas A. Brotchie tók síðan
við og ræddi um stefnu SKÝRF. við
kaup á hugbúnaði og viðhorf til
UNIX.
í máli hans kom fram að SKÝRR
hafi tilnefnt IBM og Software
AG sem aðalhugbúnaðarbirgja sína
og kaupi frekar frá þeim en öðrum
bjóðendum.
IBM hefur nú sýnt að þeir eru á
fullri ferð í UNIX kapphlaupinu og
auk þess hefur Software AG tekið
upp notkun á UNIX við eigin
hugbúnaðarþróun. Má því álykta að
ekki sé þess langt að bíða að einhver
UNIX kerfi komi í notkun hjá
SKÝRR og taldi Douglas
hugsanlegt að það yrði innan árs.
Aðgangstakmörkun í UNIX hefur
oft verið talin ófullnægjandi, en
Douglas benti á að sama gildi um
núverandi aðalstjómkerfi SKÝRR,
sem er MVS frá IBM. Til að
fullnægja öryggiskröfum er rekið
sérstakt öryggiskerfi auk
stjómkerfisins. Vel má huga að
hliðstæðum lausnum í UNIX ef
ástæða þykir til.
Helstu atriðin, sem munu ráða því
hvort eða í hverjum mæli SKÝRR
taki upp notkun á UNIX em þessi:
Öryggi.
Smækkun eininga
(downsizing).
Software AG.
Uppitímamarkmið.
Vemdun fjárfestinga í
hugbúnaðarkerfum,
sérkunnáttu og tölvubúnaði.
Að erindunum loknum komu
nokkrar fyrirspumir og
athugasemdir frá fundarmönnum.
Heildarfjöldi þátttakenda var 94.
Frá ritstjóra
í síðasta hefti Tölvumála birtist
mynd af stjóm og
framkvæmdastjóra
Skýrslutæknifélags íslands.
Ekki voru nöfn með myndinni, en
þau eru þessi:
Standandi frá vinstri: Guðbjörg Sigurðardóttir meðstjómandi, Kjartan Ólafsson féhirðir, Haukur Oddsson varamaður, Bjami
Júlíusson ritari, Snorri Agnarsson skjalavörður, Halldóra M. Mathíesen varamaður.
Sitjandi frá vinstri: Helga Erlingsdóttir framkvæmdastjóri SÍ, Halldór Kristjánsson formaður, Arrna Kristjánsdóttir varaformaður.
6