Tölvumál - 01.04.1990, Síða 7

Tölvumál - 01.04.1990, Síða 7
Tölvumál Apríl 1990 Samskipti verkkaupa og verksala Erindi Björgvins Schram frá ráðstefnu SÍ, 8. mars 1990 Undirbúningur vinnslu verkefnis var fólginn íþví að raða saman stýrspjöldum, forritum í vélarmáli og síðan sjáljum inntaksgögnunum. Úttaksgögn voru öll íformi útskrifaðra lista og var lögð mikil áhersla á að teikna upp printsnið. Kostur góðrar kerfissetningar er ekki að hanna kerfið eins og notandin biður um það í dag, heldur eins og hann biður um það á morgun. Augu manna beinast mjög að öllum nýjum hugmyndum og aðferðum við skipulagningu verkefna og var síðasti fundur félagsins haldinn til þess að upplýsa félagsmenn um eitt og annað, sem til nýjunga getur talist. Mig langar hins vegar að rifja upp ýmislegt sögulegs eðlis um það, hvemig staðið var að hönnun tölvuverkefna fyrir u.þ.b. 20 ámm síðan. Tæknin hefur að sjálfsögðu breyst mikið og haft mikil áhrif á vinnubrögð við kerfísgerð. Engu að síður er hægt að læra af reynslunni, því að mörgu leyti stöndum við frammi fyrir sömu vandamálum og áður við að skilgreina hvað tölvukerfið á að gera og að viðhafa góða stjómun á þróun þeirra. Lífið var að mörgu leyti einfaldara í þá daga. Tölvukerfí vora einfaldari, eingöngu var um runuvinnslu- verkefni að ræða, skjáir vom ekki til, nema ef vera skyldi sem “console” skjáir á stærstu tölvum. Samskipti við tölvumar var í formi gatspjalda, þessara góðu gömlu, 80 dálkar, 12 línur. Þetta var fyrir daga disklinga. Forritun var lang dýrasti verkliðurinn við kerfisgerð, sem skilst vel, þegar við rifjum upp hverjar aðstæðumar vom. Forrit vom skrifuð á þar til gerð eyðublöð, sem skráningardeild sá um að gata á gatspjöld. Spjöldunum var komið til tölvuvinnslu með beiðni um þýðingu, en þýðingar vom framkvæmdar tvisvar á dag. Samkvæmt forritunarlista vom spjöldin leiðrétt af forritaranum og send aftur til þýðingar. Það tók því yfirleitt marga daga að þróa eitt forrit eins og gefur að skilja. Þegar þýðarinn fann ekki fleiri villur í forriti, þá gataði tölvan út forritið í vélarmáli og þá var hægt að hefjast handa með prófun forritsins. Undirbúningur vinnslu verkefnis var fólginn í því að raða saman stýrspjöldum, forritum í vélarmáli og síðan sjálfum inntaksgögnunum. Spjaldahaugurinn var lesinn inn og unnið úr spjöldunum. Nýjar stofnskrár vom gataðar út af tölvunni eftir uppfærslu. Þegar lesa þurfti inn gögn í mismunandi röðum, þá var gagnaspjöldunum raðað í þar til gerðum röðunarvélum. Öll kennsla á tölvur var afar takmörkuð. Ekki var um neina kennslu að ræða í skólum landsins. Það vom fyrst og fremst tölvuseljendur, sem stóðu fyrir kennslu með námskeiðahaldi bæði hérlendis og erlendis. Námskeiðin vom fyrst og fremst á tæknisviðinu, þ.e.a.s. tölvustjómun og forritun. Kennsla í hugbúnaðargerð var af afar skomum skammti enda voru vinnubrögð við kerfishönnun margbreytileg og hafði hver kerfisfræðingur sína hentisemi í þeim efnum. IBM rak hér áður fyrr tölvuþjónustu, þ.e.a.s. tók að sér að hanna og vinna tölvuverkefni. Eins og fyrr segir giltu mjög takmarkaðar reglur um það, hvemig standa skyldi að hönnun verkefna, en þegar kom að uppsemingu, þ.e.a.s. gerð kerfislýsinga, forritun, prófun og gangsetning, vom til mjög ákveðnar reglur, sem var fylgt stranglega og aldrei bmgðið út af. Hlutverk og ábyrgðasvið þeirra, sem komu nálægt uppsetningu var mjög vel skilgreint, þ.e.a.s. notenda, kerfisfræðinga, forritara og tölvara. Enginn mátti fara inn á verksvið annars, t.d. mátti kerfisfræðingur aldrei skrifa nein forrit. Mjög skýr skil vom á milli verkþátta og hófst næsta aldrei fyrr en fyrra stigi var lokið. Forritun hófst Ld. aldrei fyrr en kerfislýsingu var lokið og hún samþykkt af kaupendum.

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.