Tölvumál - 01.04.1990, Síða 8

Tölvumál - 01.04.1990, Síða 8
Tölvumál Apríl 1990 Kerfíshönnun lauk með því að kerfisfræðingur skilaði af sér kerfislýsingu, sem var vinnuplagg fyrir forritara. Kerfíslýsing innihélt lýsingar á vinnslum, forritum, skrám, færslum og svæðum og almennt orðaða yfirlitslýsingu, sem notandinn gat skilið og þá um leið allir aðrir. Forritalýsingar voru afar nákvæmar og mátti forritari ekki víkja frá þeim nema með samþykki kerfisfræðings, sem breytti þá um leið öllum lýsingum. Úttaksgögn voru öll í formi útskrifaðra lista og var lögð mikil áhersla á að teikna upp printsnið. Kaupandinn varð að samþykkja alla lista með því að skrifa nafn sitt á printsniðin. Á grundvelli kerfislýsingarinnar var kostnaður við gerð kerfisins reiknaður út og vinnslukostnaður og gerð var nákvæm tímaáætlun. Á þeim tímapunkti tók kaupandinn endanlega ákvörðun hvort hann vildi kaupa verkið eða ekki. Vinna við kerfishönnunina var mjög oft flokkuð sem söluvinna, sem kaupandi greiddi ekki fyrir. Ef um stórverkefni var að ræða, þá var samið fyrirfram um ákveðna upphæð, sem hönnunin skyldi kosta. Það var mjög sjaldgæft að tímaáætlanir stæðust ekki. Kostnaðurinn var oftast einnig mjög nærri lagi, en það kom aldrei kaupandanum við, hann greiddi eingöngu umsamda upphæð. Hver forritari prófaði sín forrit og þegar hann taldi forritið vinna rétt, þá prófaði kerfisfræðingurinn það og að lokum var síðan kaupandanum skylt að prófa kerfið. Útbúin voru prófgögn með samvinnu kaupanda og kerfisfræðings. Þegar kaupandinn var sáttur við kerfisprófið, varð hann að skrifa undir stimpil á öllum útskriftum, samþykki sitt fyrir því að kerfið ynni eins og um hefði verið samið. Ef villur fundust í kerfinu, eftir að kerfispróf hafði verið samþykkt, þá voru leiðréttingar algjörlega á kostnað kaupanda. Prófgögnin voru síðan geymd og notuð í hvert sinn, sem kerfinu var breytt. Beiðnir um breytingar á kerfum urðu alltaf að vera skriflegar frá kaupanda alveg sama hversu lítilfjörlegar þær voru t.d. að færa til samtalstölu í lok lista. Kaupandinn fékk síðan uppgefið hvað breytingin myndi kosta, sem hann varð að samþykkja áður en lagt var í breytinguna. Að lokinni breytingu fékk hann reikning fyrir upphæðinni, sem samið var um fyrirfram. Forritarar höfðu ströng fyrirmæli um að þeir mættu ekki breyta neinum forritum, nema fyrir lægi skrifleg lýsing frá kerfishönnuði, ásamt áætlun um kostnað, sem kaupandi hafði samþykkL Öll vinna við vinnslu kerfisins var í höndum tölvara. Þeir urðu alltaf að fá í hendur vinnslubeiðnir frá notendum og máttu einir sjá um vinnslur. Hvorki forritarar né hönnuðir máttu fara inn í vélasal. Ókosturinn við þessar ströngu reglur var að sjálfsögðu sá, að mikil skriffinnska var í kringum kerfishönnunina og allar breytingar tóku tíma. En kostimir voru líka margir, mjög góð samræming milli kerfishönnuðar og kaupanda, upplýsingar um hvemig kerfið vann voru aðgengilegar, kaupandinn hafði nákvæmar kostnaðampplýsingar og tímaáætlanir. Aðal kosmaðurinn við gerð kerfis lá í forritun. Því var nauðsynlegt að vanda allan undirbúning, þannig að forritin gerðu nákvæmlega það, sem þau áttu að gera. Nú þegar kosmaðurinn við forritun hefur lækkað vemlega, þá er eðlilegt að skrifa forrit beint í stað þess að skrifa fyrst nákvæmar forritalýsingar og bera niðurstöður forrits undir kaupanda og spyrja hvort þetta sé það, sem hann þarf á að halda, ef ekki þá er forritinu hent og byrjað að nýju. Slík vinnubrögð hafa þó margvíslegar hættur í för með sér. Kostur góðrar kerfissetningar er ekki að hanna kerfið eins og notandin biður um það í dag, heldur eins og hann biður um það á morgun. Kerfisfræðingurinn verður að vera nokkmm skrefum á undan notandanum og sjá fyrir, hvemig kerfið muni þróast. Til þess að slíkt sé hægt, þá verður kerfisfræðingurinn að hafa góða yfirsýn yfir þann starfsþátt, sem tölvukerfið á að þjóna og gera sér grein fyrir hvemig hann muni breytast með tilkomu nýja tölvukerfisins, því það munu örugglega verða til nýjar óskir. Kerfið verður að vera sveigjanlegt á réttum stöðum og gagnagrunnur þess verður að vera rétt upp byggður. Það er lítið mál að endurskrifa eitt og eitt forrit, ef ekki þarf að gera breytingar á gagnagrunni. Rangur gagnagrunnur er oftast dragbítur á þróun og endurbætur kerfa. 8

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.