Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1990, Qupperneq 11

Tölvumál - 01.04.1990, Qupperneq 11
Tölvumál Apríl 1990 Notkun þekkingar- kerfis við bilana- greiningu ErindiTorfa Helga Leifssonar á ráðstefnu SÍ, 8. mars1990 Vélgœsluráðgjafinn er nú komið á prófunarstig, en eins og gengur með slík kerfi, þá eru þau stöðugt í þróun með tiltœkilegri þekkingu hvers tíma. Gervigreindfelst íþví að láta forrit gera hluti, sem annars krefjast mennskrar greindar. Inngangur Árið 1987 var ákveðið hjá verkfræðistofunni Rafhönnun að ráðast í gerð þekkingarkerfis fyrir kælikerfi (vélgæsluráðgjafinn) sem hluta af áætlun fyrirtækisins í að nýta krafta þess í nýsköpun og þróun. Til verkefnisins hlaust styrkur frá Rannsóknaráði ríkisins. Ásamt höfundi hefur Sveinn Frímannsson unnið að verkefninu sem verkefnisstjóri og sérfræðingur í kælikerfum frystihúsa. Vélgæsluráðgjafinn er nú komið á prófunarstig, en eins og gengur með slík kerfi, þá eru þau stöðugt í þróun með tiltækilegri þekkingu hvers tíma, nýjungum í tækni og síðast en ekki síst samræmingu að eiginleikum einstakra kælikerfa. Markmið Markmiðið með gerð vélgæsluráðgjafans var að búa til forrit sem bæði auðveldar og samhæfir bilanagreiningu kælikerfa með því að geyma þekkingu og reynslu reyndra vélgæslumanna á einum stað á aðgengilegu formi. Bilanaleit í eldri kælikerfum getur oft tekið langan tíma, og er þá mikil hætta á að þær vörur sem eru í kælingu skemmist. Markmiðið var því einnig að reyna að stytta stopptíma kælikerfanna, þegar þau biluðu. Bilanagreining kælikerfa er tilvalið verkefni til þess að tölvuvæða með þekkingarkerfum og hefur fjöldinn allur af greiningarkerfum verið smíðaður með góðum árangri. Þetta er meðal annars vegna þess, að oft eru aðferðimar sem nota á við bilanagreininguna fyrirliggjandi í handbókum. í stað handbókanna, sem ekki er alltaf auðvelt að lesa úr, kemur þekkingarkerfi, sem leiðir menn kerfisbundið gegnum bilanagreininguna og inniheldur upplýsingar sem oft er erfítt að koma fyrir í handbókunum. 11 Gervigreind Eins og áður var sagt, var leiðin, sem farin var til lausnar á þessu verkefni sú, að búa til þekkingarkerfi, en þekkingarkerfi tilheyra því sviði tölvunarfræðinnar sem kallað hefur verið gervigreind. En hvað er gervigreind ? Á henni eru til ýmsar skilgreiningar, en þessi er útbreiddust: Gervigreind felst íþví að látaforrit gera hluti, sem annars krefjast mennskrar greindar. Gervigreindarforrit sýna því á einhvern hátt hegðun, sem við vanalega tengjum mennskri greind, svo sem málskilning, lærdóm, skynjun, ályktanir og lausn vandamála. Þekkingarkerfi eru ein tegund gervigreindar og má skilgreina þau þannig: Forrit, sem innihalda mennska sérfrœðiþekkingu á einhverju þröngu og afmörkuðu sviði. Þekkingin er geymd á þannigformi að einhver sem ekki er sérfrœðingur getur notað hana á auðveldan hátt. Mennskur sérfræðingur notar sérfræðiþekkingu sína og ályktanagáfu við að leysa vandamál. Á sama hátt byggjast þekkingarkerfi á sérfræðiþekkingu og ályktunum dregnum af henni til að herma efúr atferli sérfræðings þegar hann notar vitneskju sína til að leysa vandamál (sjá mynd 1). Staðreyndir, reglur, ályktunarvél Grunneining þekkingar í þekkingarkerfum er staðreynd, en staðreyndir eru umsagnir um hluti í kringum okkur. Dæmi um staðreyndir í vélgæsluráðgjafanum er til dæmis: olía freyðir ípressuhúsi

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.