Tölvumál - 01.04.1990, Side 13

Tölvumál - 01.04.1990, Side 13
Tölvumál Apríl 1990 Helstu gallar þekkingarkerfa eru meðal annars þeir að þau skortir ýmsa mennska þætti svo sem frumleika, hæfileika til að læra sjálf og brjóstvit. Kostir og gallar þekkingarkerfis Helstu kostir við að nota þekkingarkerfi eru meðal annars að þau verða ekki veik, fara ekki á eftirlaun, deyja ekki og auðvelt er að búa til nýjan sérfræðing. Helstu gallar þekkingarkerfa eru meðal annars þeir að þau skortir ýmsa mennska þætti svo sem frumleika, hæfileika til að læra sjálf og brjóstvit. Þetta eru hæfileikar sem fleyta manninum langt áfram við lausn vandamála, og hann hefur yfírburði yfir þekkingarkerfí við lausn vandamála á sviðum þar sem þarf að beita víðtækri þekkingu ásamt þeim hæfileikum sem taldir voru upp hér áður. Lokaorð Fyrir um það bil 20 árum voru þekkingarkerfi varla til og fyrir 10 árum þurfti búnað upp á 20-30 milljónir til þess að búa til þekkingarkerfi. Fyrir 5-7 árum kostaði sams konar búnaður um það bil 1-2 milljónir. Nú á tímum er hægt að fá hugbúnað til hönnunar þekkingarkerfa fyrir um 30 þúsund krónur. í þjóðfélagi nútímans eru þekking, reynsla og upplýsingar alltaf að verða dýrmætari og dýrmætari. Og ef þróunin heldur áfrarn eins og hún hefur gert undanfarin ár er ljóst að þekkingarkerfí eiga eftir að gegna mikilvægu hlutverki í upplýsinga- þjóðfélagi framtíðarinnar. Mynd 2 13

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.