Tölvumál - 01.04.1990, Page 16
Tölvumál Apríl 1990
Símabyltingin
Erindi Áma
Zophoníassonará
ráðstefnu SÍ, 26. janúar
1990
ATH: í erindinu var hringt í
nokkrar símaþjónustur sem í boði
eru. Ennfremur voru spilaðar
upptökur af símaþjónustum eins og
þœr munu heyrast íframlíðinni.
Verulegar breytingar eru að verða á
símtækninni og símanotkuninni sem
fela í sér að síminn verður stöðugt
mikilvægari sem tæki til
upplýsingamiðlunar.
Síminn er orðinn útstöð við tölvu.
Allir kunna á síma - frá fimm ára
aldri og fram á grafarbakkann
notum við símann.
Það kann að virðast að ég sé rúmum
80 árum á eftir tímanum að ræða um
símann á fundi um framtíðina. En
raunin er sú að verulegar breytingar
eru að verða á símtækninni og
símanotkuninni sem fela í sér að
síminn verður stöðugt mikilvægari
sem tæki til upplýsingamiðlunar.
Þessi breyting er það sem ég hef
kosið að kalla símabyltinguna.
Ég mun fjalla um símann sem
upplýsingamiðil. Fyrst fara
nokkrum orðum um söguna og þá
upplýsingasíma sem hafa boðist
símnotendum. Síðan ber ég saman
símann og annan frægan
upplýsingamiðil - tölvuna og reyni
með því að varpa ljósi á hvers vegna
síminn er svo árangursríkur og
öflugur upplýsingamiðill. Að
lokum fáið þið að heyra tvö dæmi
um hvemig nýta má símann sem
upplýsinga- og reyndar
afþreyingarmiðil í framtíðinni.
Þegar ég hef lokið erindi mínu
vonast ég til að þið sjáið símann í
nýju ljósi, sjáið möguleika símans
til að miðla okkur upplýsingum. Ég
ætlast til að þeir sem hér eru í
forsvari fyrir fyrirtæki og stofnanir
hugsi um hvemig þeirra fyrirtæki
geti nýtt símann til að koma
upplýsingum til viðskiptamanna
sinna. Hlustum nú á nokkur dæmi
um upplýsingasíma.
[ hringt í símsvara ]
Þetta era dæmi um gamla kunningja
sem hafa verið lengi við líði.
Sannleikurinn er sá að í þessar
þjónustur hringja þúsundir manns
daglega. í sumum tilvikum er um
gríðarlega öfluga gagnabanka að
ræða. T.d. hringja í 03 daglega 10 -
15.000 manns. Á árinu 1989
framkvæmdu stúlkumar á 03
tæplega 5 milljón uppflettingar. 03
er að líkindum lang mest notaði
gagnabanki á landinu - og helstu
ástæðuna tel ég vera að síminn
er notaður sem dreifdeið - miðill.
En lítum nú nær okkur í tíma og
kynnumst nýjum og nýlegum
símaþjónustum.
[ hringt í tölvubanka ]
Hér heyrðum við dæmi þar sem
tæknivæðingin hefur í meira mæli
áhrif. Það sem gerist í þessum
tilvikum er að fullkomnir tölvusím-
svarar skynja tónvalsboðin sem við
sendum með því að ýta á takkana á
símanum okkar og bregðast við eftir
fyrirfram forrituðum leiðum.
Þetta þýðir í raun að síminn er
orðinn útstöð við tölvu, eða kannski
frekar að síminn hefur nú öðlast
sömu eða svipaða stöðu og
lyklaborðið við tölvuna okkar.
Tölvan skilur og skynjar þegar við
ýtum á takkana. Munurinn er að á
símanum höfum við 12 takka og
ennþá engar myndrænar
upplýsingar. En það em aðrir kostir
sem síminn hefur í ríkum mæli og
gera það að verkum að síminn
stendur mun betur að vígi sem
upplýsingamiðill þar sem honum
verður við komið.
Allir eiga síma, allir kunna á síma,
við hringjum oft á dag, við höfum
síma í vinnunni, heima, sumir hafa
síma í bílnum, bílskúmum og
svefnherberginu. Allir kunna á
síma - frá fimm ára aldri og fram á
grafarbakkann notum við símann.
Það sem gerst hefur er að gamall
draumur tölvumanna um að allir
ættu tölvu og notuðu hana við
hversdagsverkin er orðin að
vemleika - reyndar tölvu með 12
takka lyklaborði sem flytur tal, en
engu að síður tæki sem hefur flesta
möguleika tölvunnar til að miðla
upplýsingum.
Þessi veruleiki, að hvert heimili hafi
yfir að ráða tölvuígildi sem allir
kunna á og nota reglulega, býður
upp á ótal möguleika. Fyrirtæki og
stofnanir geta miðlað fjölbreyttum
upplýsingum og boðið upp á ýmis
konar nýjar og spennandi þjónustur.
Möguleikamir em fjölmargir.
Flugfélög og skipafélög geta gefið
upplýsingar um áætlanir og
vöruúrval, ferðaskrifstofur sagt frá
ferðamöguleikum, fasteignasölur
kynnt fasteignir o.fl o.fl
Ég trúi því að þessar breytingar séu
svo umfangsmiklar að kalla megi
þær símabyltingu.
16