Tölvumál - 01.04.1990, Side 18

Tölvumál - 01.04.1990, Side 18
Tölvumál Apríl 1990 Skeið hefur prívatskala Tvær undantekningar eru á reglunni um einkunnir ættbókarfærðra stóðhesta og fallkandidata. Önnur er einkunn fyrir réttstöðu fóta, sem er eins og aðalreglan að öðru leyti en því, að allar tölur eru hálfum lægri, eins og hjá fallkandidötunum. Þær snúast í kringum 7,5 sem þungamiðju, en ekki í kringum 8 sem þungamiðju. Hin undantekningin er einkunn fyrir skeið, sem dreifist frá 10 og niður í 5, ef hesturinn kann ekki að skeiða. Til samanburðar má nefna, að hestur, sem ekki getur brokkað fyrir dómnefnd, fær 7,5 fyrir brokk. Og nú er verið að ræða um að gefa feiknarlegum tölthestum 7,5 fyrir skeið, ef þeir geta ekkert skeiðað. Fagleg meðferð meðfixi Fljótt kom í ljós, að reiknings- dæmið, - misjöfn margföldun einstakra hinna fjórtán liða - og samlagning margföldunartalnanna - og loks deilingin niður í aðaleinkunn, gaf ekki í aðaleinkunn niðurstöðuna, sem dómnefndir töldu hrossið eiga skilið. Hross, sem áttu skilið að ná átta í aðaleinkunn, fengu til dæmis ekki nema 7,94 og náðu ekki 1. verðlaunum. Hross, sem hins vegar átti að mati dómefndarmanna ekki skilið að fá 1. verðlaun, slefaði í reiknings- dæminu upp í til dæmis 8,06 og fékk 1. verðlaun. Þetta varð til, að dómnefndir fóru að fixa einkunnimar aftur á bak. Þær hækka eða lækka einstakar undir- einkunnir um minnsta mögulega mun, það er að segja um hálfan, unz aðaleinkunnin er komin í horf, sem dómnefndin getur sætt sig við. Þetta er orðað svo, að tölumar fái faglega meðferð. Fjórir fengu 7,89 Þetta gengur svo langt, að árið 1984 fengu fjórir stóðhestar nákvæmlega 7,89 í einkunn á Kaldármelum fyrir sex sýnd afkvæmi hver. Þá vantaði alla einn hundraðasta upp í að fá 1. verðlaun. Þetta var greinilega niðurstaða feiknarlegra deilna í dómnefnd eins og raunar hefur verið játað síðan, þótt fyrst væri því haldið fram með veikum mætti, að tilviljun hafi ráðið. Einhver reiknaði, að samkvæmt stærðfræðilögmálum tilviljana var möguleikinn 1 á móti 574, að fjórir hestar fengju allir 7,89 fyrir samtals 24 afkvæmi á einu og sama mótinu. Fluttendanna milli í skalanum Þegar einkunnir em fixaðar með þesum hætti, finnst dómumm þeir aðeins vera að hnika til tölum lítilsháttar. En í rauninni er tilfærslan miklu meiri. Hestur, sem lækkaður er úr 8,0 í 7,5 fyrir tölt, er færður um hálfan skalann, því að einkunnagjöfin er í reynd ekki nema á bilinu 7,5 upp í 8,5. Sé hestur hækkaður eða lækkaður um heilan í einhverju atriði, er verið að færa hann endanna milli á skalanum. Það, sem dómnefndarmenn halda litla þúfu, veltir í raun þungu hlassi. Þeir gera sér ekki grein fyrir víðtækum afleiðingum gerða sinna. Blöppað frá fallþunga til tölts og skeiðs, vilja og geðs Tekin var bandarísk reikningsaðferð á kynbótagildi búfjár og þýdd upp á íslenzka hrossakynið. Þetta var svonefnd Blöpp-aðferð, sem talin var hafa gefizt vel við að ræka fram aukinn fallþunga nauta og svína í Bandaríkjunum. Hún var svo notuð til að reyna að rækta fram aukið tölt og skeið, vilja og geðprýði íslenzkra hrossa, sem er auðvitað allt annar hlutur og öðmvísi hlutur en fallþungi þeirra. Breyting úr hefðbundinni einkunnagjöf í spá um kynbótagildi magnar vandamál, sem em tengd mismunandi skoðun dómnefnda á lítt þreifanlegum hlutum, svo og alkunnum aðferðum sýningarmanna við að ýkja gang hesta með sérstakri tálgun hófa og notkun hófhlífa, og við að breyta taugaveiklun í gerfi- 18

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.