Tölvumál - 01.01.1991, Síða 12
Janúar 1991
Myndlíkingar
Guðmundur Sverrisson, Hjarna hf
Myndlíkingar er íslenskun á enska
heitinu "Metaphor graphics".
Myndlíking er ný hugmynd um
myndræna framsetningu á
gögnum. Þessi framsetning
auðveldar yfírsýn á miklu
gagnamagni.
í nútíma tölvunotkun er
gagnasöfnunin ötníleg að umfangi
og sífellt verður erfiðara að
umbreyta gögnunum í skiljan-
legar upplýsingar.
Vaxandi afköst
40 ára ferli tölvunotkunar má
skiptaítvofasa. Við fasaskiptin
' jukust afköst tölvunotenda
verulega hvað varðar með-
höndlun upplýsinga.
Tölvur voru mjög dýrar þegar
fyrri fasinn hófst. Tölvu-
krafturinn var allur nýttur til
útreikninga og gagnavinnslu.
Ekkert var gert til að spara vinnu
fýrir notandann, því tími hans
var miklu ódýrari en tölvunnar.
Við erum nú stödd í öðrum fasa.
Tölvur eru orðnar ódýrar og
vinnutími manna hlutfallslega
verðmætari en áður. Því er allt
gert til að auðvelda tölvu-
notkunina og vaxandi tölvukraftur
er notaður í þessum tilgangi.
Þetta tímabil einkennist af notkun
á myndrænum notendaskilum sem
áttu upptök sfn í Star tölvunni
frá Xerox og eru orðin allsráðandi
á markaðinum í dag.
Nú er komið að þriðja fasanum.
Þar verður megin áherslan lögð
á að ná valdi á mjög miklu magni
gagna og skilja hvaða upplýsingar
þau bera. Gervigreind hefur enn
ekki nýst sem skyldi á þessu
sviði, nema hvað varðar
tiltölulega einfaldar upplýsingar.
Samvinna tölvu og
manns
William G. Coleer sálfræðingur
og sérhæfður í skynjun. Hann
hefúr unnið mikið með upp-
lýsingatækni í læknisfræði og
starfar nú við University of
Washington, í Seattle.
Fyrir 5 árum starfaði hann við
háskóla í San Fransisco. Þá
voru komnar fram vaxandi
efasemdir um að gervigreind væri
ffamtíðarlausn í upplýsingatækni,
ef unnið væri með flókin hugtök.
Ég mun hér á eftir kynna
hugmyndir hans um framsetningu
á gögnum.
Hann leggur til að tölvur vinni
gögnin á það form sem menn
eiga auðvelt með að skynja.
Þannig kemst á samvinna í
gagnavinnslu milli tölvu og
manns.
Hugmyndin byggir á því að nýta
saman sterkustu eiginleika
tölvunnar og hæfileika mannsins
til að meta og túlka gögnin.
Menn standa tölvum mun framar
á eftirfarandi sviðum:
1. Að þekkja aftur myndhluta
og sjá þá { samhengi.
2. Að hafa þekkingu á sviðinu.
3. Að geta beitt skilningi og
dómgreind.
Tölvur hafa hins vegar eftirfarandi
eiginleika umfram menn:
1. Gleyma engu.
2. Ráða við stór gagnasöfn.
3. Meðhöndla gögnin eldsnöggt.
Það eru engin ný vísindi fyrir
okkur að tölvur séu nautheimskar.
Það þarf að segja þeim bókstaflega
allt. Það er mjög langt í að
gervigreind breyti einhverju þar
um nema á mjög afmörkuðum
sviðum.
Þekking, skilningur og dómgreind
eru eiginleikar sem tölvur hafa
alls ekki, en við erum fær um að
beita. Þetta er í rauninni hin
eiginlega lokavinnsla gagnanna.
Hingað til hefur það gagnamagn
sem við náum að túlka í senn
verið mjög takmarkað. Það er
vegna þess að tölvur sýna okkur
gögnin í formi talna og bókstafa.
Menn hafa háþróaðan eiginleika
til að túlka myndir. Mjög stór
hluti heilans hefur þetta sem
aðalverkefhi. Sem dæmi um
hvað þetta er öflugt þá er það
mjög auðvelt fyrir okkur að
þekkja aftur andlit úr stórum
hópi einstaklinga. Tölvur eiga
mjög erfitt með slík verkefni.
Hugmynd Cole byggir á því að
láta tölvuna setja gögnin fram á
myndrænu formi þannig að ein
lítil mynd eða vémynd (íkon)
tákni hvert spjald ("record" eða
"case") í gagnagrunninum.
Myndhlutar breytast sfðan í
samræmi við breytingar í svæðum
spjaldsins.
12. - Tölvumál