Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Qupperneq 10

Tölvumál - 01.04.1992, Qupperneq 10
Apríl 1992 Frá ársfundi SÍ: Hugbúnaður á Evrópumarkaði Vilhjálmur Þorsteinsson, íslenskri forritaþróun Inngangur í þessari grein mun ég fjalla um Evrópuþróunina frá sjónarhóli upplýsingatækni. Fyrst mun ég ræða þróunina almennt og hlutverk upplýsingatækninnar í henni, þá áhrif hennar á íslenska upplýsingatæknimarkaðinn, og loks líta á þá möguleika sem kunna að opnast fyrir íslensk fyrirtæki á sameinuðum Evrópu- markaði. Hætta á einangrun Að mínu mati er veruleg hætta fólgin í því fyrir Islendinga ef samningar takast ekki um evrópskt efnahagssvæði. Við eigum á hættu að einangrast og horfa á þróunina hlaupa framhjá okkur. Þegar gömlu austur- og vesturpólarnir hverfa, koma þrír meginpólar í staðinn í efnahagslegum og stjórnmála- legumskilningi: Stór-Bandaríkin (það eru Bandaríki Norður- Ameríku, Kanada og ef til vill Mexíkó), sameinuð Evrópa, og Austurlönd með Japan í broddi fylkingar. Auðvitað er þetta einfölduð heimsmynd en nægileg í samhengi þessarar umræðu. Augljóst er að ísland á tvo kosti: að verða "hlutlaust" og tengjast engum pól fremur öðrum, eða að taka virkan þátt í sameinaðri Evrópu, sem við eigum menning- arlegasamleiðmeð. "Hlutleysi" gæti þýttmeðal annars: Aðlsland yrði utan tollmúra þrípólanna og þyrfti að semja sérstaklega við hvern þeirra um ívilnanir. - Að ísland yrði sérstaklega að semja um fyrirgreiðslu fyrir námsmenn erlendis. - Að ísland yrði ekki sjálfkrafa aðili að sameiginlegumrann- sóknar- og þróunarverkefnum. - Að íslensk fyrirtæki nytu ekki jafnræðis á erlendum mörk- uðum. - Að Islendingar ættu erfiðara með að leita á erlenda atvinnumarkaði og svo mætti lengi telja. Eg tel hlutleysið vera ávísun á einangrun; það þýði að ísland missi af strætisvagninum og að ungir Islendingar muni heldur vilja starfa í hringiðu þróun- Aðeins eru nokkur ár síðan þeir möguleikar sem ég hef verið að lýsa um útflutning á Evrópumarkað voru nánast útilokaðir arinnar í Evrópu en heima á ísa köldu landi. Með virkri þátttöku Islands í samstarfi Evrópuþjóða eigum við samleið með ná- grannaþjóðum okkar og þeim þjóðum sem við berum okkur samanvið. Viðnjótumsamstarfs við þessar þjóðir á sviði menntunar, rannsókna, atvinnu- mála og svo framvegis, og njótum hagkvæmni stærðarinnar í auk- inni samkeppni og lægra vöru- verði. Á móti kemur að við verðum að standa okkur og fram- leiða vöru og þjónustu sem stenst samjöfnuð við það besta sem aðrar þjóðir bjóða. Auðvitað komumst við aldrei langt án þess, hvort sem við stöndum innan sameinaðrar Evrópu eða utan. Upplýsingatæknin í Evrópu Upplýsingatæknin verður ekki aðeins fyrir áhrifum af Evrópu- þróuninni, heldur beinlínis ein af forsendum hennar. Það gefur auga leið að erfiðara er að tvinna saman markaðssvæði sem sam- sett er úr mörgum og um margt ólíkum þjóðum heldur en svæði á borð við Bandaríkin, þar sem nánast allir tala sama mál og hafa búið við sameiginlega yfirstjórn í meira en 200 ár. Upplýsinga- tæknin er eitt mikilvægasta verkfærið við smíði samein- aðrar Evrópu. Síma- og fjar- skiptatækni tengir saman fólk, gagnanet tengja saman fyrirtæki og skóla í ólíkum löndum, og tölvur raða upplýsingum frá mismunandi svæðum saman í einaheild. Til þess að auðvelda upplýsingatækninni að gegna hlulverki sínu þarf stöðlun. Mér eru ofarlega í huga skjalaskipti milli tölva, SMT, sem á ensku nefnast EDI. Sameinuðu þjóð- irnar hafa haft forgöngu um stöðlun helstu viðskiptaskjala undir samheitinu EDIFACT. EDIFACT-stöðlunin þýðir ekki aðeins að unnt sé að senda 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.