Tölvumál - 01.04.1992, Page 18
Apríl 1992
Utflutningur á íslenskum róbótum til álvera
Jón Hjaltalín Magnússon, verkfræöingur
ídesember 1987 varfyrstiíslenski
róbótinn settur upp hjá íslenska
Alfélaginu hf í Straumsvík.
Fyrirtækin sem þróuðu þennan
róbóta voru JHM verk-
fræðiþjónusta í samstarfi við
Landssmiðjuna hf. Fengu þau
traust ISAL til að þróa þennan
róbóta eftir að tæknimenn ÍSAL
höfðu sannfærst um að hin
tæknilega lausn þessara íslensku
fyrirtækja væri betri en
mótsvarandi tilboð frá tveimur
norskumog þýskumfyrirtækjum.
Róbótakerfi þetta setur svo-
kallaðaálkragautan umjárntinda
rafskautanna. Þessir álkragar eru
síðan fylltir með kolasalla, sem
bakast utan um tindana þegar
skautin eru sett í kerin og raf-
straumur fer um tindana niður í
kolaskautinn. Þessir kragar gera
það að verkum, að minna járn
fer úr tindunum í álið og þannig
aukast gæði álframleiðslunnar.
Þá má nota rafskautin um 10%
lengur í kerjunum, án þess að
hætta sé á að járn komi úr
tindunum í álið og um leið
minnkar verulega viðgerð á
járntindunum. Hérerum sparnað
að ræða sem skiptir miljónum
dollara á ári fyrir stór álver.
Róbótinn sjálfur er loftdrifinn, en
notuð er PLC stýritölva til að
stýra loftventlunum.
I framhaldi af þessari uppsetningu
á róbótakerfinu hjá ÍS AL og þegar
ljóst var að tækjabúnaðurinn
uppfyllti kröfur þeirra um
áreiðaleika, þá hóf JHM al-
þjóðlega markaðssetningu á
róbótanum. I heiminum eru
starfandi um 180 álver, þar af um
100 sem nota forbökuð rafskaut
eins og ÍSAL og ættu því að hafa
áhuga á þessu tækjabúnaði. Eins
og við var búist, þá er kostnaður
við alþjóðlega nrarkaðsetningu
verulegur, sérstaklega þegar um
sölu á flóknum róbótakerfum er
að ræða. Ein eða tvær heim-
sóknir eru nauðsynlegar til við-
komandi álvers til að ræða alla
tæknilegaeiginleikakerfisins svo
og aðlögun að framleiðslukerfi
álversins áður en búast má við
pöntun. Send voru upplýs-
ingagögn lil allra 180 álveranna
og fengust strax jákvæð við-
brögð frá nokkrum þeirra. Þá
komu forsvarsmenn nokkra ál vera
til ISAL til að kynna sé róbóta-
kerfið. Gert var myndband um
róbótakerfið og
hefur það kornið
sér vel í markaðs-
setningunni.
Myndin sýnirfyrsta íslenska róbótann, sem settur var upp hjá ISAL í desemberárið
1987. Griptól róbótans er að setja álkraga utan um annan tind rafskautsins. Búið
er að setja á hinn tindinn.
Á síðastliðnu ári
var svo settur upp
fyrsti íslenski
róbótinn í norskt
álver, Sör - Norge
Aluminium AS í
Husnes.Þegarþetta
er ritað, hálfu ári
síðar, þá segja
N o r ð m e n n i r n i r
bara : "det er sko
fina grejer". Þetta
álver sýndi fyrst
áhuga á róbóta-
kerfinu árið 1988
og á árinu 1990 var
það heimsótt
tvisvar til að ræða
ýmiss tæknileg
mál. Pöntun barst
18
Töl vumál