Tölvumál - 01.04.1992, Side 20
Apríl 1992
Hugbúnaður sem útflutningsgrein
Ásgrímur Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri og
Dröfn Hreiðarsdóttir, Tölvusamskiptum
Faxhugbúnaður
fyrir Windows 3.0
og staðarnet
Fyrirtækið Tölvusamskipti er
hugbúnaðarfyrirtæki, stofnað
1988, sem hefur sérhæft starfsemi
sína á sviði samskipta og upp-
lýsingatækni. Aherslahefurverið
lögð á að framleiða hugbúnað
til útflutnings. Markviss útflutn-
ingur hjá Tölvusamskiptum hófst
í apríl á síðasta ári. Sá hugbún-
aður sem um ræðir er fax-
hugbúnaður fyrir staðarnet og
Windows 3.0 sem hlotið hefur
heitið Skjáfax hér á landi en
Traffic Manager á erlendum
markaði.
Til að átta sig betur á því um
hverskonar útflutningsvöru hér
um ræðir er rétt að lýsa henni í
fáum orðum. Skjáfax (Traffic
Manager) er fjölnotenda sam-
skiptakerfi fyrir Windows 3.0 og
staðarnet, til að senda og taka á
móti föxum. Sending faxa getur
farið fram frá öllum gerðum
Windows forritaeins og t.d. Word
og Excel. Uppsetning hugbún-
aðarins getur farið fram á hvaða
DOS staðarneti sem er og vinnur
að auki á öllum CAS-sam-
hæfðum faxkortum eins og
GammaFax XP/CP frá Gamma-
Link, Connection Coprocessor/
Satisfaction frá Intel o.fl.
Hvert fax er sent með HP-Laser-
Jet eða PostScript gæðum og
viðtakandi prentar það út á
gæðaprentara á venjulegan
pappír.
Sá árangur sem þegar hefur náðst
með útflutningi á Skjáfax (Traffic
Manager) hefur opnað augu okkar
og treyst okkur enn frekar í þeirri
trú að framleiðsla á hugbúnaði
sé raunhæf og arðvænleg atvinnu-
grein sem ekki sé rétt að láta
ósnerta.
V egna síaukinnar notkunar á hug-
búnaði í öllum greinum atvinnu-
lífsins hafa flestar vestrænar
þjóðir veitt stórum upphæðum
til þess að tryggja sem mesta
þekkingu á sviði hugbúnaðar-
framleiðslu heima fyrir. Þetta
hefur leitt til þess að upp hefur
sprottið ný atvinnugrein sem
skapar verðmæti úr hugviti einu
saman. Árangur þessa er svo að
sjálfsögðu hagræðing á meðal
hefðbundinnar atvinnustarfsemi.
Hvaö þarf til
hugbúnaðarframleiðslu?
Flest hugbúnaðarkerfi eru hönn-
uð af fámennum hópum fólks
sem vinnur á skrifstofu. Það er
rangt að tala sífellt um hundruð
mannára í hvert skipti sem þróun
hugbúnaðar ber á góma á meðal
fræðimanna. Slíkar yfirlýsingar
draga einungis úr fólki kjark og
geta orðið til þess að fullfærir
forritarar leggi aldrei af alvöru út
20
Tölvumál