Tölvumál - 01.04.1992, Side 26
Apríl 1992
stöðumanni Tölvudeildar Ríkis-
spítala, falið að kanna aðrar
leiðir. Við bjuggum til bækling
og að sendum hann út til nokkur
hundruð spítala. Svörunin varð
um 2% án þess þó að það skilaði
sér í sölu.
Snemma árs 1989 fórurn við að
leita að umboðsaðilum erlendis
enda þótti þá sýnt að ekki væri
hægt að selja kerfið beint héðan.
Eftir nokkra eftirgrennslan tókust
samningar við danskt fyrirtæki,
sem framleiddi ýmsan tækni-
búnað fyrir undirbúning geisla-
meðferðar. Danska fyrirtækið
hafði santbönd víða í vestur-
Evrópu og fékk einkasöluleyfi
fyrir það svæði ásamt Banda-
ríkjunum.
I upphafi gekk samstarfið vel,
kerfið var kynnt á sýningum í
París, London og San Fransisco
og fékk nokkra athygli auk þess
sem það kom í ljós að sam-
keppnisaðilar voru fáir. í ágúst
1989 var kerfið sett upp til prufu
á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum í
Danmörku. Kerfið reyndist vel,
sjúkrahúsið festi kaup á því og
hefur það verið í notkun þar
síðan. En góðri byrjun tókst
ekki að fylgja eftir þó erfitt sé að
benda á einhverja eina skýringu á
því. Þegar árangurinn varð lítill
þá komu brestir í samstarfið.
Okkur fannst umboðsaðilinn
ekki kynna kerfið nógu vel og
jafnvel vilja nota það sem
skiptimyntþegarhannvarað selja
sína eigin framleiðslu.
í nóvember 1990 var kerfið sett
upp á Sahlgrenska sjúkrahúsinu f
Gautaborg og var sú uppsetning í
samvinnu við sænskt fyrirtæki,
sem var umboðsaðili danska um-
boðsaðilans í Svíþjóð og Noregi.
Kerfið fékk mjög góða dóina á
Sahlgrenska sjúkrahúsinu og má
nefna sem dæmi að talið er að
nýting meðferðartækja hafi
aukist um yfir 5% vegnakerfisins
og er það umtalsvert ekki síst í
Ijósi þess að fjárfestingin í
meðferðartækjunum nemur
Sú stefna
var nú mörkuö
að búa
skyldi til kerfi
sem hjálpaði við
daglega starfsemi
deildarinnar
en leyfði um leið
skráningu þeirra
upplýsinga sem
áhugivar á
að safna
hundruðummiljónakróna. Þessi
árangur á Sahlgrenska sjúkra-
húsinu hefur orðið grundvöllur-
inn að frekari markaðsárangri í
Svíþjóð. Sjúkrahúsið í Lundi
hefur einnig keypt kerfið og
góðar líkur virðast á að fleiri
sölur í Svíþjóð fylgi í kjölfarið.
Sænska fyrirtækið fannst okkur
standa sig vel í markaðsfærslu í
Svíþjóð og því tókst auk þess að
fá töluvert betra verð fyrir kerfið
en það sem danski umboðs-
aðilinn hafði áður boðið kerfið
á. Þar sem fátt var að gerast í
markaðsmálum utan Svíþjóðar
varíjúní 1991 ákveðið að segja
danska umboðsaðilanum upp
samningnum og semja beint við
sænska fyrirtækið og losna þar
með við óþarfan millilið.
Tölvuþekking h.f. var frá stofnun
til húsa í húsnæði Tölvudeildar
Ríksspítala á Rauðarárstíg en rétt
fyrir síðustu áramót tókust samn-
ingar um að Tölvumiðlun h.f.
keypti öll hlutabréf Ríkisspítala
og Tækniþróunar h.f. í Tölvu-
þekkingu og í framhaldi af því
flutti fyrirtækið í nýtt húsnæði
Tölvumiðlunar á Grensásvegi 8.
Á árinu 1989 hafði Oddur
Benediktsson selt mestan hlut
sinn í Tölvuþekkingu þannig að
þrír stærstu stofnaðilarnir hafa
nú allir horfið frá fyrirtækinu.
Okkar næsta skref í markaðs-
málum verður að leita að um-
boðsaðiluin í fleiri löndum og
þá munum við hafa það í huga
að þeir selji beint til sjúkrahúsa
en eklci í gegnum aðra umboðs-
aðila. Þámunumviðforðastað
setjaöll eggin afturí söinu körfuna
eins og við gerðum þegar við
söindum við danska umboðs-
aðilann. í september verður
haldin alþjóðleg sýning í Svíþjóð
og ætlum við að taka þátt í henni,
bæði til að kynna kerfið og eins
til að leita að nýjum uinboðs-
aðilum.
Að lokum má geta þess að í
byrjun febrúar vartekin ákvörðun
í upphafi
gekk samstarfið
vel, kerfið var
kynnt á
sýningum
í París,
London og
San Fransisco
um að gera tengingu við sænskt
tölvukerfi, sem notað er til að
reikna geislaskammta og ýmislegt
íleira sem tengist sjálfri geisla-
meðferðinni. Þettasænskakerfi
er afrakstur af þátttöku svía í
CART verkefninu og má því segja
að markmið þess verkefnis séu
nú loks að nást.
26
Tölvumál