Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Side 31

Tölvumál - 01.04.1992, Side 31
Apríl 1992 að gæta þess að vanda valið á þeim aðila. Þar sem dreifingar- aðilinn ræður oftast öllu um markaðssetninguna á forritinu geta mistök hjá honum verið afdrifarík varðandi söluna. Þessa áhættu er unnt að lágmarka með því að semja við fleiri en einn aðila um markaðssetningu á mis- munandi svæðum. Þegar samið er á þennan hátt heldur höfund- urinn meiri réttindum en í fyrra tilvikinu, en gerðar eru meiri kröfur til hans, sér í lagi varðandi uppfærslur og endurbætur á forritinu. Einnig þarf að hafa í huga vandamál varðandi þýðing- ar á forritunum - að sjálfsögðu má láta sér nægja að dreifa enskri útgáfu, en sölumöguleikar forrits- ins aukast til muna í flestum löndum sé það þýtt yfir á tungu- í sumum löndum - sér í lagi í Evrópu er litið á deilihugbúnað sem “ókeypis” málviðkomandilands. Þaðgetur jafnvel verið mjög æskilegt að gera forritið fjölmála ("multi- lingual"), þannig að notandinn geti valið það tungumál sem hann vill nota. Þannig borgar sig tvímælalaust að leyfa notand- anum að velja milli frönsku og ensku sé ætlunin að dreifa forritinu í Kanada. Samningar við dreifingaraðila fela venjulega ekki í sér afsal á forritakóða - þannig að það er á ábyrgð höfundarins að bæta inn í forritið þeim ntöguleika að geta unnið á mörgum málum. í Lykla-Pétri var valin sú leið að geyma alla texta í sérstakri skrá - þannig að ekki er þörf á að breyta forritinu sjálfu þótt nýrri útgáfu sé bætt við. Bein sala Gallinn við dreifingaraðila er að þeir hirða umtalsverðan hluta af innkomunni. Forritarinn fær því mun meira í sinn hlut af hverju seldu eintaki við beina sölu heldur en þegar því er dreift í gegnum dreifingaraðila erlendis. Þótt bein sala eigi fyllilega rétt á sér þegar um stór og dýr forrit er að ræða, sem eru eingöngu seld í örfáum eintökum, erhúntæplegaraunhæf þegar um almenningshugbúnað er að ræða, sér í lagi ef höfundur forritsins hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir miklum auglýsingakostnaði. Annað vandamál við að selja hugbúnað beint frá íslandi eru takmarkanir sem gildahjáýmsum aðilum. Þannigermjögerfittað selja hugbúnað til bandarískra ríkisstofnana nema í gegnum dreifingaraðila í Bandaríkjunum og hugsanlega gæti ástandið líka þróast í þá átt í ríkjum EB. Mestu rnáli skiptir þó, að erfitt er að veita viðunandi þjónustu héðan frá íslandi. Þetta skiptir að vísu ekki máli ef um er að ræða forrit sem þarf litla sem enga þjónustu, svo sem flest leikjaforrit, en kaupendur stærri forrita setja það oft fyrir sig ef sækja þarf alla þjónustu til annarrar heimsálfu. Deilihugbúnaður Dei lihugbúnaðarleiðin felst í því að hugbúnaðinum er dreift án þeirra takmarkana sem venjulega gilda um afritatöku. Þeir sem fá forritið eru oft beinlínis hvattir til að taka afrit af því og gefa öllum vinum ogkunningjum. Þeir sem nota forritið eru síðan beðnir að greiða einhverja lága upphæð fyrir það, sem oftast er á bilinu 15-50 bandaríkjadalir. Það er mjög algengt að almennings- hugbúnaði sé dreift á þessu formi, sér í lagi tölvuleikj um, enda hefur þessi dreifingaraðferð einn stóran kost fyrir forritarann - hún er nánast alveg kostnaðarlaus. Nokkrir aðilar hérlendis hafa Mjög erfitt er að selja hugbúnað til bandarískra ríkisstofnana nema í gegnum dreifingaraðila í Bandaríkjunum reynt að dreifa forritum á þennan hátt út um allan heim, en árangur- inn hefur verið ærið misjafn. I sumum löndum, sér í lagi í Evrópu, er litið á deilihugbúnað sem "ókeypis" og mjög lítill hluti notanda sendir inn umbeðnar greiðslur. I Bandaríkjunum, Kanada, Astralíu og Nýja- Sjálandi gengurþessi aðferð hins vegar allvel og þótt fáir verði ríkir á þennan hátt getur þetta verið dágóð búbót fyrir lítil fyrir- tæki eða einstaklinga sem hafa þróað foiTÍt, en hafa ekki bolmagn til að markaðssetja þau í samkeppni við hugbúnaðar- risana. Þessi síðasta leið var valin þegar Lykla-Pétur var settur á mark- aðinn erlendis og hefur árangur- inn verið þokkalegur,en sjálfsagt hefði mátt standa betur að markaðsmálunum. 31 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.