Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Qupperneq 32

Tölvumál - 01.04.1992, Qupperneq 32
Apríl 1992 Utflutningur hugbúnaöar Þórarinn Stefánsson, Vistfangi hf. Vistfang er hugbúnaðar- og verk- fræðifyrirtæki sem stofnað var árið 1984. Það hefur flutt út nokkuð stór kerfi á VAX-tölvur frá digital Corporation síðan 1987. Frá upphafi var stefnan tekin á norðurlöndin og þá sér- staklega Danmörku. Til þessa hafa verið seld u.þ.b. 15 kerfi í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Til samanburðar má nefnda að 10 samskonar kerfi hafa verið seld á íslandi. Hér á eftir verður rakið hvers vegna Vistfang tók upp á því að flytja út hugbúnað, hvernig staðið hefur verið að því og hver árangurinn hefur verið til þessa. llokinverðatalinuppþau atriði sem við hjá Vistfangi teljum mikilvæg til að ná árangri og hvað ber að forðast. Forsagan - telexkerfiö Vistfang hf. var stofnað formlega 1984 og var tilgangur félagsins upphaflega verkfræði- og tölvuráðgjöf. Reyndin varð sú að fyrirtækið hefur einkum stundað hugbúnaðargerð og sérsmíðað hugbúnað fyrir stór fyrirtæki með meðalstórar tölvur. Það var árið 1986 að tekin var ákvörðun um að gera pakkavöru úr einu af verkefnunum. Hér var um að ræða telexkerfi fyrir V AX- tölvur. Með því gátu notendur sent telex beint úr ritþór eða ritvinnslu. Einnig tók kerfið á móti telexskeytum og dreifði þeim til réttra aðila. Ekki var til slíkt kerfi á VAX-tölvur þannig að með réttu átaki áttu söluhorfur að veranokkuðgóðar. Fljótlega kom þó í ljós að markaðurinn hér á landi var of lítill og þá var byrjað að horfa út fyrir landsteinana. Eigandi lítils fyrir- tækis í Danmörku, sem hafði um- boð fyrir telexmótaldið sem kerfið byggði á, komst á snoðir um fyrirætlanir okkar og sýndi mikinn áhuga á að taka það í umboðssölu. Gerður var við hann samningur og töldum við hjá Vistfangi björninn nú unninn og kerfið myndi renna út eins og heitar lummur. Umboðsmaður- inn, sem ekki var fjársterkur, hringdi í notendur VAX-tölva sem líklegt var að hefðu not fyrir tölvuvætt telex og kynnti þeim kerfið. Þaðkomhinsvegaríljós að ekki er auðvelt að sannfæra danska aðila um ágæti íslensks hugbúnaðar og leið næstum ár þar til eitthvað rofaði til. Stórt lyfjafyrirtæki, Novo-Nordisk, óskaði eftir að fá kerfið til reynslu og keypti það síðan. Þar með var útflutningur hugbúnaðar á vegum Vistfangs hafinn. Áframhaldið - ekki telex heldur fax Eins og leiða má getum að hafði það áhrif á önnur dönsk fyrirtæki að danskt fyrirtæki hafði keypt kerfið. Fljótlega voru seld tvö kerfi til viðbótar, til orku- málaráðuneytisins og ELMI (Stóra-Norræna). Leiðnúlangur tími og ekkert gerðist. Við gerðum samning við fram- leiðanda telexmótaldsins um að nýta dreifinet þeirra um allan heim, en það var ekki til neins því þeir virtust leggja litla áherslu á að kynna þennan annars ágæta íslenska hugbúnað. Að lokum voru þeir gefnir alveg upp á bátinn. Notkun telxbúnaðar, sem byggir á ævagamalli hugmynd, virtist vera í rénum og annar miðill geystist fram á sjónarsviðið, sem var telefaxið. Sífellt fleiri fyrir- tæki tóku nú faxtæknina í sína þjónustu enda fullkomnari (myndræn) og ódýrari í rekstri. Sem dæmi má nefna að það kostar 3 krónur að senda eina A4 síðu með faxi á móti 50-100 krónum bréflega. Vistfang tók því ákvörðun um að búa til faxkerfi svipað telexkerfinu en þó eingöngu til að senda fax. Móttaka á fax- skeytum með tölvu var á þessum tíma og er reyndar enn ekki fýsilegur kostur, þar sem þau eru á myndrænu formi og því engin leið að sjá hver móttakandi er eða hvað þau innihalda. Ekki er því hægt að dreifa innkomandi faxskeytum til réttra aðila nema prenta þau út fyrst. Hugmyndaf- ræðin var því sú að faxkerfið gerði mönnum kleift á einfaldan hátt að prenta skjal beint frá skjá á milljónir faxtækja út um allan heim. Árið 1988 var faxkerfið tilbúið og fyrsta útgáfa kerfisins send umboðsmanninum í Danmörku. Samkeppni var nánast engin, en Digital (framleiðandi VAX- tölva) í Danmörku lét kaupendur VAX-tölva þó fljótlega vita að frá þeim væri væntanlegt faxkerfi sem félli vel að skrifstofupakka sem þeir höfðu einnig til sölu. Samstarf við Digital var því ekki til umræðu, en faxkerfi frá þeim kom hinsvegar aldrei. Má telja víst að þetta hafi tafið fyrir sölu á íslenska faxkerfinu allt fram til þessa. 32 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.