Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Page 33

Tölvumál - 01.04.1992, Page 33
Apríl 1992 Sem fyrr var fyrsta faxkerfið selt Novo-Nordisk enda höfðu þeir góða reynslu af telexkerfinu sem hafði verið í notkun hjá þeim í eittár. Nokkurfyrirtækiogstofn- anir fylgdu í kjölfarið, þar á meðal umhverfismálaráðu- neytið og utanríkisráðuneytið. A tveggja ára tímabili eða fram til ársins 1990 voru seld samtal 6 faxkerfi. Reynt var að auglýsa í fagtímaritum í Danmörku og Svíþjóð, en það bar lítinn eða engan árangur. Þó leiddi þetta til einnar sölu í Svíþjóð og er það eina salan þar til þessa. Fleiri umboðsmenn Að fenginni reynslu töldum við lykilatriði að fá góða umboðs- menn á hinum norðurlöndunum. f gegnurn framleiðanda fax- mótaldsins í Svíþjóð tókst að finna umboðsmann í Noregi. Fljótlega, eða nánar tiltekið seint á árinu 1990, seldi hann fyrsta kerfið til olíu- fyrirtækisins Norsk-Hydro. Ekki varð þó um fleiri sölur að ræða þar sem fyrirtæki þar virðast halda að sér höndum, einkum vegna slæms efnahagsástands og samdráttar. A sama hátt voru fengnir til umboðsmenn í Þýskalandi og Frakklandi, en ekkert hefur komið út úrþeim ennþá. Þar sem faxkerfið byggir á samskiptum gegnum fax- mótald er eingöngu hægt að markaðssetja það þar sem faxmótaldið er viðurkennt. Vistfang hefur því tekið upp samstarf við framleiðanda faxmótalda í Bretlandi og er stefnt að því að faxkerfi fyrir þeirra mótald verði tilbúið fyrir marslok 1992. Síðasta átak Vistfangs til að koma faxkerfinu á framfæri var að láta hanna og prenta glansandi einblöðunga sem sendir hafa verið umboðsmönnum til dreif- ingar. Vonumst við til að það beri einhvern árangur en ekki er komin reynsla á það ennþá. Aður en umfjöllun um faxkerfið lýkur ber að nefna að Vistfang gerði eina tilraun til að markaðssetja það í Banda- ríkjunum. Akveðið var að sýna kerfið á einni stærstu tölvu- og hugbúnaðarsýningu sem haldin erþarárlega. Þessisýninggengur undir nafninu DEXPO WEST og DEXPO EAST, eftir því hvort hún er haldin á vestur- eða austurströnd Bandaríkjanna. Sýningarbásinn kostaði svipað og heilsíðuauglýsing í tölvu- tímariti. Margir sýndu faxkerfinu áhuga og mörg góð sambönd náðust, meðal annars við FUJITSU sem framleiðir fax- mótöld. Vegna fjármagnsleysis varð þó aldrei úr því samstarfi. Það sem læra má af þessari tilraun, er að það er margfalt áhrifameira að sýna hugbúnað á sýningu en auglýsa í tölvutímaritum fyrir sama verð. Misheppnuð markaðssetning - vonbrigði Að lokum verður að segja frá þriðja hugbúnaðarpakkanum eða þeim sem Vistfang reyndi að markaðssetja erlendis upp á eigin spýtur. Hér var um að ræða hugbúnað til að nettengja prentara og krafðist því engra fylgihluta eins og telex- og fax- kerfið. 33 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.