Tölvumál - 01.04.1992, Side 34
Apríl 1992
Þó nettenging VAX-tölva sé ekki
ný hugmynd var árið 1990 ekki
hægt með góðu móti að prenta
skjal frá einni tölvu á prentara
tengdum annarri. Það sem verra
var, að ómögulegt var að opna
leið úr notendaforriti út á þannig
tengdan prentara. Með ein-
földum hugbúnaði leystum við
þetta vandamál til fulls og auk
þess fyrir prentara tengdum í
gegnumPADeðaX29. Þarsem
hugmyndin var góð voru sendar
greinar eða fréttatilkynningar til
helstu og virtustu tölvutímarita
víðsvegar um heim. Það kom
fljótlega í ljós að við vorum ekki
einir um þá skoðun því flest þeirna
birtu grein um hugbúnaðinn.
Við ákváðum því að auglýsa í
nokkrum þeirra til að kanna
undirtektir lesenda. Máteljavíst
að yfir 300.000 lesendur hafi
fengið grein eða auglýsingu um
kerfið inn á borð til sín.
Vonbrigðin voru hinsvegarmikil
því að af öllum þessum fjölda
lesenda virtust aðeins nokkrir
tugir hafa áhuga og innan við
tugur óskaði eftir að fá hug-
búnaðinn til reynslu. Af þeim
sem fengu hugbúnaðinn til
reynslu keypti hinsvegar enginn,
þannig að árangurinn af þessu
ævintýri var enginn. í sárabót
höfðu nokkur íslensk fyrirtæki
not fyrir hugbúnaðinn.
Niðurlag
Reynsla Vistfangs bendir til þess
að sýningar séu líklegastar til að
bera einhvern árangur, en auglýs-
ingar einar og sér gefi 1 ítið af sér.
Umboðsmenn sem fáríflegahlut-
deild í ágóðanum eru mikils
virði, en þeir verða að hafa næga
tækniþekkingu til að geta sinnt
viðskiptavinum upp á eigin
spýtur.
Hugbúnaður, sem krefst fylgi-
hlutar, eins og mótalds í okkar
tilfelli, sem er háður viður-
kenningu í hverju landi, er ekki
jafn heppilegur til útflutnings og
hugbúnaður sem stendur einn og
óstuddur.
Að lokum má nefna að lítinn
stuðning er að fá hér á landi til
að markaðssetja hugbúnað
erlendis. Bæði hvað varðar
fjármagn og reynslu og sambönd
annarra hugbúnaðarfyrirtækja.
Utflutningur á hugbúnaði krefst
mikil fjármagns og er að okkar
mati ekki vænlegur nema fyrir
fjársterka aðila, því þar er ekki
hægt að búast við neinum
skjótfengnum hagnaði.
Frá orðanefnd
Sigrún Helgadóttir, formaöur orðanefndar SÍ
í þessum pistli verður rætt um
íslensk heiti á þremur hugtökum,
þ.e. digital signature, pull-down
menu og pop-up menu.
digital signature
Til er uppkast að fyrirmynd af
samningi um EDI-samskipti
(TEDIS Programme/European
Model EDI Agreement). Þar er
þessi skilgreining á digital
signature (í lauslegri þýðingu):
"Aðferð við staðfestingu, fólgin
í því að gögnum er bætt við
önnur gögn eða gögnin eru
umrituð þannig að sendanda eða
viðtakanda sé kleift að sanna
uppruna gagnanna, að efni
sendingar sé óbreytt og að veita
vernd gegn fölsun."
Þeir sem unnu við að þýða þessa
fyrirmynd að samningi kölluðu
þetta tölvuundirskrift. Það er
þó nokkuð vafasamt þar sem ekki
er um eiginlega undirskrift að
ræða. Orðanefndin leggur því til
að kalla digital signature
undirmerki. Síðan mætti tala
um að undirmerkja eða merkja
undir, sbr. skrifa undir, og
aðgerðin væri undirmerking.
Einnig kæmi til greina uppruna-
staðfesting, upprunaáritun eða
því um líkt en þá er engin sögn í
boði.
pull-down menu og
pop-up menu
Nú eru hvers kyns gluggakerfi
orðin ntjög algeng. Má þar nefna
Windows-kerfið, kerfis-
hugbúnað Macintosh, OS/2 og
ýmis kerfi sem fylgja UNIX-
stýrikerfinu. Einakerfið afþessu
tagi sem hefur verið þýtt
skipulega er kerfishugbúnaður
34 - Tölvumál