Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Page 35

Tölvumál - 01.04.1992, Page 35
Apríl 1992 Macintosh. En öll eru þessi kerfi mjögkeimlík. Mjög æskilegt væri að samvinna tækist með þeim sem þýða þessi kerfi svo að til verði samræmdur orðaforði á íslensku. Nýlega litum við á heiti á tveimur fyrirbærum sem fylgja glugga- kerfum, þ.e. pull-down menu og pop-up menu. Pull-down menu er "valmynd sem birtist þegar heiti hennar hefur verið valið úr valrönd". Nafn hennar er dregið af því að hún eins og fellur niður undir heitinu. I þýðingu á kerfishugbúnaði Macintosh heitir pull-down menu fellivalblað en í þýðingum frá Þýðingarmiðstöð Orðabókar Háskólans og IBM er notað felligluggi eða felli- valmynd. Okkur sýndist að í fyrstu yrðu menn að ákveða hvað þeir vildu kalla menu á íslensku. I Tölvuorðasafni ergefinþýðingin valmynd. Þegar valmyndir voru nýjar voru þær yfirleitt frekar stórar, náðu gjarnan yfir allan skjáinn. I valmyndinni er listi yfir aðgerðir sem notandi getur valið um. í gluggakerfunum er það yfirleitt gert með því að smella með músinni á heiti aðgerðar eða atriðis. Þýðandi kerfis- hugbúnaðar Macintosh hefur kosið að kalla valmyndir frekar valblöð og margir tala um glugga. Einnig kæmi til greina að tala um valreiti eða aðeins reiti. Ef til vill er ekki heppilegt að nota orðið gluggi fyrir menu þar sem það er þýðing á window, og menu og window eru ekki það sama. Hér að framan notaði ég orðið valrönd fyrir menu bar. Ég hef séð heitin valblaðarönd, valbraut og valmyndastika notuð um menu bar. Eins og er hef ég valið -rönd fyrir bar og við skulum hugsa okkur að ég stytti valmyndarönd eða valreitarönd þannig að úr verði valrönd. En þessar hugleiðingar styrkja enn þá skoðun að samstarf þýðenda gluggakerfa sé nauð- synlegt til þess að unnt verði að koma við einhverri samræmingu. Forliðurinn felli- virðist eiga vel við pull-down menu þar sem glugginn "fellur" niður úr valröndinni. Pull-down menu gæti því heitið fellivalmynd eða fellireitur. Sést hefur heitið "rúlluvalmynd" ogerþásennilega vísað til þess sem stundum er kallað að dönskum sið "rúllugardína". En felligluggi sígurniðurlíkt og“rúllugardína”. í Orðabók Menningarsjóðs er orðið “rúllugardína” merkt sem vafasamt mál en gefið ágætt íslenskt heiti, vindutjald. Fellivalmynd gæti því einnig heitið vinduvalmynd. Pop-up menu er "valmynd sem birtist á skjá þar sem notandi hefur staðsett bendil". Hún birtist þegar stutt er á hamhnapp (hot key) eða vegna þess að forritið vill bjóða notandanum eitthvert val vegna þess sem verið er að gera í þeirri andránni. Ahorfanda virðist sem hún skjótist upp á yfirborðið. í þýðingu á kerfishugbúnaði Macintosh heitir pop-up menu uppskotsvalblað. í þýðingum Orðabókar Háskólans og IBM er talað um smelliglugga. Menn hugsa sér sennilega að uppskotsvalblaðið "skjótist upp". I Orðabók Menningarsjóðs er orðið uppskot til sem "frestun". Smelligluggi fyrirpop- up menu hefur það á móti sér að allar valmyndir eru í raun smelligluggar þar sem valið er með því að smella á tiltekið atriði í myndinni. Því hefur komið fram sú hugmynd að kalla pop-up menu sprettivalmynd eða sprettireit þar sem hún sprettur upp úr skjánum eða svo ýnist manni. Niðurstaðan er því þessi: pop-up menu - sprettivalmynd pull-down menu - fellivalmynd 35 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.