Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Page 36

Tölvumál - 01.04.1992, Page 36
Apríl 1992 Samþykktir Skýrslutæknifélags íslands Félagssamþykkt Skýrslutæknifélags íslands var upphaflega samþykkt á stofnfundifélagsins, sem haldinn var 6. apríl 1968. Smávægilegar breytingar voru bornar upp og samþykktar á aðalfundi 1985. Þær breytingar fólu í sér að aðalfundur var fœrður fram í janúar en hqfði verið í marsmánuði áður. Á aðalfundi 1992, sem haldinn var 30. janúar s.l., var samþykkt að á vegum félagsins skuli starfa siðanefnd og ný grein þar að lútandi felld inn í félagssamþykktina Birtum við hér félagssamþykkt S1 í heild, ásamt siðareglum sem samþykktar voru á aðalfundi 1992. Félagssamþykkt SÍ 1. gr. Heiti félagsins er: Skýrslutæknifélag íslands. 2. gr. Tilgangur félagsins er að stuðla að hagrænum vinnubrögðum við gagnavinnslu í hverskonar rekstri og við tækni- og vísindastörf. Þessum tilgangi hyggst félagið ná með því að gangast fyrir sýningum, fyrirlestrahaldi, umræð- um, upplýsingamiðlun og námskeiðum, eftir því sem efni standa til. Enn fremur gangast fyrir samræmingu og stöðlun við vélræna gagnavinnslu, og stuðla að útvegun tækja með sem hagkvæmustum kjörum. 3. gr. Félagar geta verið stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar, sem nýta tölvulausnir, svo og aðrir, sem á slíkum málum hafa áhuga. Stofnanir og fyrirtæki geta átt fleiri en einn fulltrúa í félaginu. 4. gr. Aðalfundur ákveður félagsgjald fyrir eitt ár í senn. Séu fleiri en einn félagi frá sömu stofnun eða fyrirtæki, skal greiða fullt gjald fyrir einn mann, hálft fyrir annan og einn fjórða gjalds fyrir hvern hinna. Starfsár félagsins er almanaksárið, og gjöld til félagsins skulu greidd fyrir 1. apríl. Endurskoðaðareikningafélagsins skal leggjafyrir aðalfund. 5. gr. Stjórn félagsins skipa sex menn, formaður, varaformaður, ritari, féhirðir, skjalavörður og einn meðstjórnandi. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til 2ja ára í senn og ganga úr stjórninni á víxl, þannig að í upphafi ganga úr formaður, ritari og meðstjórnandi eftir eitt ár, en varaformaður, féhirðir og skjalavörður eftir tvö ár, og helst svo sama röð áfram. Enn fremur skulu kosnir á aðalfundi tveir varamenn í stjórn og tveir endurskoðendur. Missi stjórnarmaður seturétt í félaginu á kjörtímabilinu skal varamaður taka sæti hans til næsta aðalfundar, en þá skal kjósa í embættið til loka kjörtímabilsins. Nú er stjórnarmaður kosinn í annað starf í stjórninni en hann áður hafði, og skal þá kjósa nýjan mann í hans stað, út kjörtímabilið. Tillögur um stjórnarmenn skulu sendar stjórninni eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund. 36 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.