Tölvumál - 01.04.1993, Side 5
Apríl 1993
Frá formanni
Halldór Kristjánsson, formaður SÍ
Nýir menn til starfa í
stjórn
Eins og jafnan á aðalfundi verða
breytingar á stjórn. Að þessu
sinni voru þau Bjarni Ómar Jóns-
son og Laufey Jóhannesdóttir
kjörin í stjórn í stað þeirra Guð-
bjargar Sigurðardóttur og Karls
Bender sem ekki gáfu kost á sér
til áframhaldandi starfa. Um leið
og ég þakka Guðbjörgu og Karli
samstarfið býð ég Bjarna Ómar
og Laufeyju velkomin til starfa.
Breytt skipan innan
stjórnar
Jafnhliðaþeimmannabreytingu-
m sem áttu sér stað á aðalfundi
færðust nokkrir stjórnarmanna á
milli embætta. Haukur Oddsson
tók við embætti gjaldkera,
Douglas Brotchie var kjörinn ritari
og Halldóra Mathiesen var kjörin
skjalavörður.
Fleiri hádegisfundir
Stjórn SÍ hefur markað þá stefnu
að fjölga hádegisfundum og halda
þá u.þ.b. á tveggja vikna fresti á
háannatímanum. Hádegisfundir
eru vinsælt form, hæfilega stuttir
til þess að þeir tefji ekki um of frá
vinnu, en nægilega langir til þess
að unnt er að ná fram áhugaverðri
ogfróðlegri umræðu um afmörk-
uð mál. Nú þegar hafa verið
haldn i r t vei r hádegisverðarfund i r,
annar um nýju fjarskiptalögin en
hinn um Roder kerfið sænska. í
stað hádegisfundar 19. mars var
haldin kynning á sýndarveruleika
í samvinnu við Háskóla íslands
og Félag tölvunarfræðinga.
25 ára afmæli SÍ
6. apríl næstkomandi
Hinn 6. apríl 1968 var haldinn
síðari stofnfundur Skýrslutækni-
félags Islands og telst þessi dagur
því formlega afmælisdagur félags-
ins. Afmælisnefnd hefur til at-
hugunar að efna til móttöku eða
annars atburðar á þessum tíma-
mótum og verður félögum SI
tilkynnt um það sérstaklega ef af
verður.
Að öðru leyti verður afmælis-
árið viðburðaríkt eins og fram
kom í grein Önnu Kristjánsdóttur,
varaformanns, ísíðastatölublaði
Tölvumála.
Ráðstefna síðari
hluta aprílmánaðar
Koini ekkert óvænt til þá verður
ráðstefna um Tölvuvæðingu í
kreppu síðari hluta aprílmánaðar.
Heiti ráðstefnunnar er vísvitandi
hafttvírætt. Annars vegarverður
fjallað um það með hvaða hætti
unnt er að nota tölvutækni til
þess að ná betri árangri í kreppu,
en hins vegar verður komið inn
á það hvort tölvuvæðing sé í
kreppu. Ahugaverð ráðstefna
fyrir alla sem að tölvumálum
koma!
COPE’IT ’93 í
Kaupmannahöfn
14.-16. júní ’93
Danska skýrslutæknifélagið efnir
til alþjóðlegrar ráðstefnu íKaup-
mannahöfn undir merkjum Sam-
taka norrænu skýrslutæknifélag-
anna (NDU) um miðjan júní
næstkomandi. Þessi ráðstefnaer
gjörbreytt að formi til frá fyrri
Norddata ráðstefnum þar sem stór
hluti fyrirlesarakemurfrálöndum
utan Norðurlandanna. Má þar
nefna fyrirlesara eins og James
Martin, Willian Starbuck frá
Háskóla New York, Bob Philips
frá Ernst & Young, Chuck Whitc
frá Gartner Group, Peter Reid frá
AT&T og JohnP. Imlay fráD&B
Software. Ráðstefnan verður að
mestu leyti haldin á ensku.
Meginþemu hennar eru fjögur, (i)
Upplýsingabylting í fyrirtækjum,
(ii) Breytilegur heimur hug-
búnaðar, (iii) Breytt kerfishögun
og (iv) Net. Þá verður sérstakur
flokkur erinda um nýjustu þróun
þar sem fyrirlesarar fjalla um það
sem "heitast" er þá stundina.
Það leikur ekki vafi á því í mínum
huga að þessi ráðstefna verður
ákaflega vönduð og fróðleg en
dagskrá hennar barst mér snemma
í mars. Óhætt er að hvetja fél-
agsmenn SI til þess að sækja
COPE’IT’93 en skrifstofa okkar
getur haft milligöngu um að út-
vega dagskrá og skráningarblöð.
Vel heppnuð árshátíð
Arshátíð SI, Félags tölvunar-
fræðinga og Kerfís var haldin 5.
mars síðastliðinn á Ömmu Lú.
Er skemmst frá því að segja að
hún var mjög vel heppnuð. Frá-
bær skemmtiatriði, góður matur,
hresst fólk og veglegt happdrætti
lögðust á eitt til þess að gera
árshátíðina eftirmihnilega.
Nokkur fyrirtæki gáfu veglega
5 - Tölvumál