Tölvumál - 01.04.1993, Síða 25
Apríl 1993
kenna þær? (Sú siðasta er e.t.v. óþörf, því skólakerfið hlýtur
i framtiðinni að taka þessar greinar að sér).
Ég ætla ekki að svara þessum spurningum, en það liggur hins vegar
i augum uppi að þvi fleiri sem fá tilsögn i þessum efnum þvi betra.
Ég held lika að það muni verða auðveldara að kenna fólki þessa hluti
i skólum i framtiðinni og kemur þar einkumtvennt til. Skólar hl jóta
að taka tölvur i notkun til st jórnunar- og kennslustarfa og þannig
verður hægt að kenna fólki að nota tölvur á þann hátt að það sé
eðlilegur þáttur i námi i öðrum greinum. Ennfremur mun nýr
hugbúnaður, einkum stýrikerfi, valda þvi að notendur verði ekki
varir við hvaða vélartegund þeir eru að nota. Þannig verður
auðveldara fyrir skólakerfið að velja kennsluaðferðir án þess að
þurfa þar með að velja milli vélagerða eða framleiðenda.
Mér sýnist þvi bæði nauðsynlegt og sjálfsagt að skólar veiti sem
flestum (helst öllum) kennslu i almennum undirstöðuatriðum
tölvunotkunar og gagnavinnslu, en skólakerf ið þarf einnig að b jóða
upp á itarlegri kennslu fyrir þá, sem vilja hasla sér völl i
gagnavinnslu og tölvurekstri.
Þessi fundur er mjög timabær og hafi Skýrslutæknifélagið þökk fyrir
framtakið, þvi ég held að framundan sé talsvert starf við
skipulagningu kennslu i gagnavinnslugreinum og jafnvel enn meira
starf við að fylgjast með þróun mála og gæta þess að kennslan verði
samstiga þróuninni. Þessi fundur rrætti einnig vera upphaf i
samstarfi skóla að þessum málum, þvi i þessum efnum, ekki siður
en i mörgum öðrum, er kostnaðarsamt að hokra einn i koti sinu. Við
norðanmenn munum heilshugar taka þátt i sliku samstarfi, sem við
teljum að hafa muni ört vaxandi þýðingu.
Sígildur húmor qfárgangi 1981
25 - Tölvumál