Tölvumál - 01.06.1995, Blaðsíða 10
Júní 1995
ATM - Allt Til Margmiðlunar
Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á ráðstefnu SI21. mars 1995
Eftir Magnús Hauksson
Hvers vegna að hafa mörg fjar-
skiptakerfi, eitt fyrir hverja tegund
ijarskipta. Er ekki betra að byggja
upp eitt kerfi eða net sem getur flutt
allar tegundir upplýsinga. Núna
eru til dæmis til fjarskiptakerfi
fyrir:
- Síma.
- Sjónvarp.
- Útvarp.
- Tölvusamskipti.
- Flug.
Og fljótlega er þörf á fjarskipta-
kerfum fyrir:
- Háskerpusjónvarp.
- Gagnvirkt sjónvarp.
- Tölvuleikiogsýndarveruleika.
Þörf fyrir flutningsgetu er núna
um:
- Tal um 64Kb/s án þjöppunar.
- Útvarp um 128Kb/s.
- Sjónvarp um 3Mb/s með
þjöppun skv. MPEG 2.
- Háskerpusjónvarp35Mb/smeð
þjöppun skv. MPEG 3.
- Háupplausnar ljósmyndir um
lOOMb/s.
- Sending tölvusneiðmynda um
200Mb/s.
Eitt ofurnet
Frekar en bæta alltaf við fjar-
skiptakerfum þá er væntanlega
betra að hafa eitt kerfi sem getur
flutt allar tegundir upplýsinga.
Einn allsherjar svelg eða trekkt sem
tæki við öllu saman. Nú lítur út
fyrir að vera hægt að byggja upp
slíkt kerfi með aðstoð ATM
(Asyncrounus Transfer Mode) sem
hægt er að kalla „Allt Til Marg-
miðlunar“ en bein þýðing er
„ósamhæfður flutningsháttur“.
Það var árið 1986 sem fyrst var
sest niður og reynt að útbúa staðl-
aðar aðferðir fyrir slíka tækni sem
allir gætu sammælst um að nota.
Og 1988 var á vegum alþjóða fjar-
skiptastofnunarinnar fyrst birtir
staðlar fyrir ATM, reyndar sem
hluti af B-ISDN eða breiðbands-
samneti en um ISDN er fjallað í
annari grein í þessu blaði.
Síðan þá hafa framleiðendur
tekið höndum saman um að búa til
búnað sem vinnur samkvæmt
ATM. Reyndar hefur gengið á
ýmsu og stundum hefur virst von-
laust að sætta ólík sjónarmið um
hvernig ætti að útfæra ýmis atriði.
Ekki er enn búið að leysa allt sem
þarf að leysa og búast má við að
enn séu nokkur ár í að komið sé á
jafnvægi.
Hvaða tækni
Þegar farið var að huga að
ATM þá datt mönnum fyrst í hug
að nota eitthvað afþeirri tækni eða
aðferðum sem þegar var í notkun.
En við nánari skoðun kom í ljós
að ógerlegt var að steypa saman
svo ólíku upplýsingastreymi sem
tal, sjónvarp ogtölvusamskipti eru
með þeim aðferðum sem voru í
notkun og þekktar. Ekki var ein-
ungis þörf á mikilli flutningsgetu
eða bandbreidd heldur líka jafnri
seinkun í genum kerfið. Sú seinkun
sem óhjákvæmilega verður við
fluning upplýsinga á milli staða
verður að vera sú sama á öllum
tímum fyrir til dæmis tal og mynd.
Jafnframt er þörf á mikilli
bandbreidd eða upp í Gb/s svæðið.
Leiðstjórar (e. router) sem eru
til dæmis notaðir í Háhraðanetinu
og vinna þannig að gögn sem fara
frá A til B fara ekki endilega sömu
leið í sama samtali. Þannig getur
það komið til að gögnin koma ekki
í réttri röð á áfangastað. Það skiptir
litlu máli í tölvusamskiptum vegan
þess að það er einfaldlega hægt að
endurraða gögnunum á áfanga-
stað. En ef tal eða mynd berst ekki
í réttri röð þá verður það sem út
kemur óskiljanlegt. Leiðstjórar
vinna á svökölluðum ótengdum
samböndum (e. connectionless).
Enda ekki um það að ræða að sett
sé upp samband á milli A og B
þegar samskipti eiga sér stað. En
skiptar (e. switches) sem eru til
dæmis notaðir í símakerfinu vinna
aftur á móti þannig að sett er upp
rás á milli A og B þegar þeir þurfa
á henni að halda og síðan er rásin
tekin niður í enda samtals. Og
viðkomandi hafa einir not af rás-
inni á meðan. Leiðstjórar vinna
samkvæmt leiðarvalstöflum sem
þeir skipast stöðugt á og endurnýja
reglulega en skiptar samkvæmt
fyrirfram ákveðnum aðferðum og
hver skiptir er með sína uppsetn-
ingu.
í ljarskiptakerfum byggðum
upp á skiptum er lítil og jöfn seink-
un en jafnframt lítil bandbreidd. í
fjarskiptakerfi byggðu upp af
leiðstjórum er breytleg seinkun sem
getur jafnvel verið umtalsverð en
bandbreidd getur verið mikil.
10 - Tölvumál