Tölvumál - 01.06.1995, Qupperneq 15
Júní1995
bitastraums.
Misskilningur er að það þurfi
ljósleiðara inn í hús fyrir Samnet.
Hægt er að nota gömlu kopar-
strengina því kopar getur flutt
hvort sem er stafrænt eða hliðrænt
merki.
Með stafrænum samböndum
verða tengingar, svo sem fyrir tölv-
ur, mun hraðari en almennt er í dag.
Mögulegt er að bjóða upp á mun
fjölbreyttari símaþjónustu og unnt
aö bjóða upp á hluti sem ekki eru
mögulegir með hliðrænni tækni.
Grunnurinn að Samnetinu eru
staðlar og fyrir nokkrum árum var
undirritað samkomulag rnilli þá-
verandi EB og EFTA ríkja urn að
Samnetstækni yrði samræmd innan
Evrópu og mun Samnetið á íslandi
fylgjaETSI, Euro-ISDN, stöðlum.
Rásir
Milli búnaðar hjá notanda og
Samnetsstöðvar eru notaðar mis-
munandi rásir. B-rásin er fyrir
almenn sambönd, hvort sem er
fyrir tal, fax eða tölvutengingar og
rnargt fleira. Hún er fyrir hraðann
64.000 bita/sek. D-rásin flytur
upplýsingar af ýmsu tagi á milli
búnaðar notanda og Samnets-
stöðvar. Hún erýmistá 16.000 eða
64.000 bitum/sek. H-rásir eru til í
nokkrum gerðum. H0 eru 6 B-rásir
fyrirhraðann 384.000 bitar/sek. og
H12 eru 30 B-rásir fyrir hraðann
1.920.000 bitar/sek.
Tengingarog búnaður
Tengingar eru tvenns konar.
Fyrir smærri aðila er notuð svo-
kölluð 2B+D tenging og er því tvær
B rásir og ein D rás. Slík tenging
kallast Grwmlenging á íslensku.
Hin tengingin er fyrir stærri aðila
eða þá sem þurfa fleiri rásir. Hún
kallast 30B+D og eru þrjátíu B-
rásir og ein D-rás. Slík tenging
kallast Stofntenging á íslensku.
Helsti búnaður sem kemur við
sögu er eftirfarandi: Netmarka-
búnaður, eða NT, er sá sem tengist
annars vegar símalínunni frá ISDN
stöð og hinsvegar notandabúnaði.
Netmarkabúnaður er til í tveimur
afbrigðum, NTl og NT2. Enda-
búnaður eða TE skiptist í TEI og
TE2. TEl er allur „hreinræktaður“
ISDN notandabúnaður, það vill
segja að hann „talar við“ Samnetið
á samskiptareglum þess. Allur
eldri fjarskiptabúnaður, hvort sem
eru símtæki, faxtæki og annað sem
tengist gömlu hliðrænu línunum
kallast TE2. Ef nota á eldri búnað
verður það að vera um Samnets-
tengildi eða TA. Samnetstengildið
er milliliður milli hins gamla og
nýja og um það má til dæmis tengja
tölvu með V.24 (25 pinna) tengli.
Tengi þau sem notuð eru á rnilli
tækja eru annarsvegar S og T á
milli ISDN tækja og R tengill sem
eru allir eldri tenglar svo sem V.24
og X.21.
Dæmi um
Samnetstengildi
Fullkomið Samnetstengildi gæti
boðið upp á eftirfarandi: Tenging
er við NT búnað með S tengli fyrir
Grunntengingu, og á því væru
tenglar fyrir tölvur, símtæki og fax.
Einnig hefði það Hayes skipanasett
fyrir tölvuna og svokallað CLIP
öryggi fyrir innhringivörn. Inn-
byggt í það er einnig DES dulmáls-
lykill. Tækið hefði V. 110 hraða-
breyti fyrir búnað sem þyrfti að
senda á lægri hraða en 64.000 bita/
sek. Tækið gæti tengt á sitthvorri
B rásinni, eða tengt þær saman og
búið til 128.000 bita/sek. línu ef
þörf er á meiri bandbreidd. Mótöld
eru óþörf í Samnetinu og Samnets-
tengildi kemur i þess stað.
Dæmi um ISDN síma
Sími fyrir Samnetið hefði að-
gang að fullkominni þjónustu
ISDN stöðvar, líkri því sem margir
þekkja úr fúllkomnum einkasím-
stöðvum. Hann hefði kristalskjá
sem gæti sýnt númer það sem er
að hringja eða sýnt kostnað
símtalsins. Hann gæti geymt í
minni númer þeirra sem hringdu
meðan notandinn skrapp frá og
þannig mætti velja þau númer beint
með hnapp. Sumir símar hafa
einnig tölvutengil og geta því unnið
jafnframt sem Samnetstengildi.
Dæmi um ISDN
leiðstjóra
Eitt dæmi til viðbótar væri
leiðstjóri (router) fyrir ISDN. Hann
gæti notað klukku til að tengja að
morgni og rjúfa að kveldi. Oþarfi
væri að nota leigulínu um lengri
leiðir ef notkun er til dæmis bundin
við tiltekinn tíma dags og með
ISDN væri borgað fyrir þann tíma
sem tengt er. Annað dæmi væri að
nota að öllu jöfnu eina 64.000 bita/
sek. B-rás á milli staða og ef álag
yrði mikið myndi leiðstjórinn
tengja eina B rás til viðbótar og
afköstin aukin í 128.000 bita/sek.
Þegar álagið minnkaði myndi
leiðstjórinn rjúfa viðbótarrásina.
Þannig má fá bandbreidd eftir
þörfum.
ISDN á íslandi
Fyrsta skrefið í áttina að ISDN
hérlendis er að setja nýtt stýrikerfi
í opinberu símstöðvamar. Vélbún-
aður kemur í framhaldi af því en
settar verða upp sérstakar ISDN
útstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
ISDN verður svo í boði um allt
land vorið 1996.
Einar H. Reynis er raf-
eindavirkj ameistari,
Fjarskiptasviði Pósts
og síma
Tölvumál -15