Tölvumál - 01.06.1995, Page 28

Tölvumál - 01.06.1995, Page 28
Júní 1995 þessu og má svo sem deila um hvernig tekist hefur til að þessu sinni. Engu að síður er minnst á höfundarréttarmál og einnig kveðið upp úr með að aðilar þurfa að gæta hagsmuna sinna við samningagerð. Hvað varðar verkkaupann þá segir í staðlinum um útboðslýsinguna, þ.e. hvað þurfí að taka þar fram: „hvaða réttindi verkkaupi áskilur sér vegna frumforrita sem sér- smíðuð eru vegna verksins. Ef annað er ekki tekið fram fær verk- kaupi afhent sérsmíðuð frumforrit og eignar og breytingarrétt á þeim. Honum er hins vegnar óheimilt að nýta þau til annarra þarfa en fram kemur í útboðsgögnum, nema að höfðu samráði við verktaka." Hvað varðar verktakann þá segir í staðlinum: „Bjóðandi skal gera grein fyrir hvaða réttindi hann áskilur sér vegna áður gerðra hugbúnaðareininga sem hann ætlar að nota til verksins. Lýsa skal hverri einingu, hvort frumforrit verða afhent verkkaupa og hvaða takmarkanir eru settar á notkun, breytingar og frekari dreifingu hennar. Bjóðanda er heimilt að gera kröfu um aðra tilhögum þessara réttinda en útboðslýsing gerir ráð fýrir. Tilboð sem fela í sér takmark- anir á rétti verkkaupa umfram útboðslýsingu teljast þó fráviks- tilboð.“ Eins og sést á þessum greinum er hér engan veginn um endanlega lausn á höfundaréttar- málum að ræða. Engu að síður er hér tekið mikilvægt skref í þá átt að gera réttindamál skýrari en ella. Samvinna í staðlinum er talað um sam- vinnu sem er afar mikilvægt. Það má lesa skýrt út úr staðlinum að verkkaupa og verktaka ber að vinna saman að því verkefni sem útboðið snýst um. bað er beggja hagur að aðilar standi við skuld- bindingar sínar og leggist á eitt um að verkinu ljúki samkvæmt samningi. Rétthæð gagna í staðlinum er að finna ákvæði um rétthæð útboðs og samnings- gagna. í staðlinum segir: „Rétthæð útboðs og samningsgagna er sem hér segir. Þau göng sem fyrr eru talin teljast rétthærri en þau sem á eftir koma: a) Verksamningur. b) Tilboð verktaka. c) Skilmálar útboðsgagna. d) Verklýsing og magntölur út- boðsgagna. Nákvæmar lýs- ingar og sundurliðanir hafa meira gildi en almennar lýsing- ar og samtölur. e) Staðallin ÍST 32. Nýjar ákvarðanir ógilda eldri ákvarðanir og sérákvæði hafa meira gildi en almenn ákvæði.“ Ákvæði af þessu tagi hefur ekki verið áður að finna í staðlinum, en er nauðsynlegt vegna þessa að gögn er varða flókin upplýsinga- kerfí geta verið mikil að vexti og nauðsynlegt að aðilar þekki rétthæð gagn ef úrskurða þarf um vafaatriði eða ósamræmi í gögnum. Verkfundur og skrifleg gögn í þessari nýju útgáfu staðalsins er hert á þeirri kröfu að samskipti aðila verði formlegri s.s. með verkfundum og að gögn og fyrirmæli séu alla jafna skrifleg. Það telst eðlilegt verklag að sem flest sé haft skriflegt og minnkar líkur á misskilningi og þar með deilum. Verklok, viðtaka og viðhald í staðlinum er skýrt kveðið á um að verk hafí upphaf og endi. Það er skylda verkkaupans að taka við verkinu og taka það út. Það er einnig ljóst að þegar verkinu lýkur hefst ábyrgð verktakans og hún er tímasett. Einnig vil ég minna á það nýmæli sem felst í ákvæðum um viðhaldshæfí verks og viðhalds- skyldu verktaka. Ágreiningsmál Við samningu staðalsins var valin sú leið að í fyrri hluta hans eru vinnuferli rakin með þeim hætti að ekki er gert ráð fyrir afbrigðum. Þannig geta lesendur lesið sig í gegnum „eðlilegt“ ferli við útboð og gerð verksamnings. I köflum þar á eftir er að fínna afbrigðin og hvemig á að bregðast við þeim. Því það verður víst seint hægt að útiloka slíkt í útboðum. ITversu vel sem aðilar hafa samið getur komið upp sú staða að aðilar verði ekki með nokkru móti sammála um einhver atriði samnings. Mig langar til þess að grípa niður í þá grein er varðar áfrýjun úrskurðar umsjónarmanns. „___Skulu þá aðilar reyna með sér sættir. Verði það árangurslaust getur hvor þeirra um sig skotið ágreiningnum til gerðardóms til endanlegs úrskurðar ef ekki er í samningi kveðið á um annað og ágrein- ingurinn er eingöngu eða aðallega um tæknileg efni. Hvor aðili um sig skal skipa 1 mann í dóminn og dómsyfirvald í héraði verkkaupa skal skipa oddamann." Lokaorð Ég hef hér í stuttu máli farið yfir nokkra áherslupunkta sem mér finnst skipta máli í þessum nýja staðli. Hér er ekki um tæmandi yfírferð að ræða eða ítarlega um- fjöllun. Ég vil ítreka það að ein- hugur ríkti innan nefndarinnar um það frumvarp að staðlinum sem nú liggur fyrir. Nefndin lagði á sig mikla vinnu og var samstarf þeirra nefndarmanna sem unnu að staðl- inum til fyrirmyndar. Ekki hvað 28 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.